Bændablaðið - 08.03.2018, Side 36

Bændablaðið - 08.03.2018, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018 Ísbúðin Ísleifur heppni hefur vakið mikla athygli fyrir gott og ferskt bragð hvar sem ísinn hefur verið í boði. Þar sem eitthvað sérstakt er um að vera má alveg eins búast við því að félagarnir frá Ísbúðinni Ísleifi heppna séu á staðnum. Þannig var það líka á Matarmarkaði Búrsins í Hörpu um síðustu helgi. Þar sýndu aðstandendur Ísleifs listir sínar og buðu gestum og gangandi að smakka ís sem er engum öðrum líkur. Á bak við Ísleif heppna standa feðgarnir Einar Ólafsson arkitekt, sem var á árum áður þekktur skíðakappi frá Ísafirði, og matreiðslumaðurinn Gunnar Logi Malmquist Einarsson. Þegar tíðindamann Bænda- blaðsins bar að garði á Matarmarkaði Búrsins sl. sunnudag voru Gunnar Logi og Aron Garðar Másson að gefa gestum ís að smakka. Búðin er annars með aðsetur í Hlemmi – Mathöll og hafa eigendur einnig verið með eins konar „popup“ á hinum ýmsu viðburðum. Þannig mátti sjá þá félaga á opnun á nýjum sýningarsal Bílasölu Benna fyrir skömmu og hafa þeir víða troðið upp með sín tæki og tól. /HKr. Eymundur Magnússon, bóndi í Vallarnesi, stóð vaktina hjá fyrirtæki sínu Móður jörð á Matarmarkaði Búrsins um liðna helgi ásamt Jóni Guðmundssyni og Eygló Björt Ólafsdóttur. Eymundur er landsþekktur frumkvöðull í þróun margvíslegra matarafurða úr íslensku hráefni. Fyrir það hlaut hann m.a. riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag 2012 fyrir frumkvæði á sviði búskaparhátta og matvælamenningar. Eymundur, sem hóf búskap í Vallarnesi 1979, sagði í samtali við blaðamann að hann væri nú kominn með í framleiðslu 100 vörutegundir. Vantar bara tíma til að vaxa meira „Þetta hefur vaxið mikið og gæti vaxið meira ef maður hefði tíma. Það er eiginlega það eina sem vantar núna, tíminn til að koma nýjum hugmyndum á koppinn. Þetta er mjög gaman. Áskorunin hjá okkur er að rækta sjálf sem mest af því sem við erum að framleiða. Það er alltaf okkar fyrsta hugsun, ef okkur dettur í hug að framleiða einhverja nýja vöru, hversu stórt hlutfall af hráefninu við getum ræktað sjálf. Við reynum að hafa aldrei minna úr okkar eigin ræktun í hverri vörutegund en 50%. Grunnurinn á bak við þetta allt er ræktunarmaðurinn.“ Ræktun og framleiðsla skapar sjö ársverk Í dag eru um sjö ársverk í kringum þessa starfsemi sem er býsna gott á sveitabýli á hjara veraldar. Við erum með þrjá starfsmenn yfir vetrartímann sem eru að vinna við bygg og framleiða súrkál og sultur. Síðan fjölgum við í starfsliðinu yfir sumartímann. Það eru mörg handtök við þetta, en þetta er líka mjög gaman. Það nýjasta er repjuolía til matargerðar. Það er kannski svolítið „exotískt“ hér á Íslandi að koma með innlenda matarolíu á markað. Auk þess að nýtast beint í matargerð er hún líka góð sem innihald í margar aðrar afurðir. Við eigum eftir að koma með fleiri útgáfur af þessari repjuolíu og þá með kryddblöndum sem dressingu. Við erum með lítinn veitingastað og þar steikjum við buffin okkar upp úr repjuolíunni og það virðist gefa þeim aukið bragð. Það er svolítið gaman að geta sameinað það sem við erum að rækta og lokað hringnum beint á disk neytenda,“ segir Eymundur. /HKr. MATVÆLI&MARKAÐSMÁL Vaxandi áhugi er fyrir fullvinnslu bænda á afurðum sínum og fjölbreytnin er stöðugt að aukast. Þau stóðu vaktina í bás Móður jarðar á Matarmarkaði Búrsins um liðna helgi. Talið frá vinstri: Eymundur Magnússon, bóndi í Vallarnesi, Jón Guðmundsson og Eygló Björt Ólafsdóttir. Mynd / HKr. Eymundur Magnússon, bóndi í Vallarnesi: Endalaus uppspretta frjórra hugmynda um vörur úr íslenskum náttúruafurðum Ísbúðin Ísleifur heppni kætir bragðlauka landans til að sinna fyrirsætustörfum fyrir Bændablaðið. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.