Bændablaðið - 08.03.2018, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Saga frönsku Someca
dráttarvéla er nokkuð
flókin. Dráttarvélarnar
komu fyrst á markað
árið 1953 og framleiddar
af SIMCA sem var þá
dótturfélag Fiat Auto Italia.
Árið 1934 stofnaði FIAT
fyrirtæki í Frakklandi sem
kallaðist SAFAF, Société
Anonyme Française des
Automobiles Fiat. Fyrirtækinu
var ætlað að framleiða
bifreiðar og bifreiðahluti.
Það fyrirtæki hóf einnig strax
innflutning á dráttarvélum frá Fiat
og Steyr til Frakklands.
Síðar stofnaði Fiat SIMCA,
Société Industrielle de Mécanique
et Carrosserie Automobile, sem
var ætlað að framleiða ítalska bíla
og dráttarvélar í Frakklandi.
Árið 1953 hófst framleiðsla
í Frakklandi á dráttarvélum sem
fengu heitið Someca sem voru
byggðir að hluta á dráttarvélum
sem kölluðust MAP en síðar á
hönnun ítalskra Fiat dráttarvéla
undir frönsku vörumerki.
Undir lok sjötta áratugar
síðustu aldar varð Someca hluti
að SIMCA iðnaðarsamsteypunni.
Fyrst MAP síðar SOM 40
Áður en SIMCA hóf framleiðslu
á dráttarvélum keypti fyrirtækið
dráttar vélaframleiðsluhluta
fyrirtækis sem kallaðist MAP,
Manufacture d´Armes de
Paris. Auk þess að framleiða
landbúnaðartæki var MAP
helsti vopnaframleiðandi
Frakklands og hafði verið
það frá 1665 þegar stofnandi
fyrirtækisins hóf framleiðslu
á hnífum og sverðum og
síðar skotvopnum. MAP er
helsti framleiðandi hátækni
skotvopna í Frakklandi í dag.
Tæknibúnaður MAP var
eftir kaup SIMCA notaður til
að framleiða fyrstu Someca
traktoranna.
Fyrsti Someca traktorinn, sem
fékk heitið DA50, var að stórum
hluta byggður á eldri dráttarvél
sem kallaðist MAP DR3 og gat
afkastað 37 hestöflum við 1500
snúningahraða á klukkustund.
Næsta týpa kom á markað
1957 og fékk heitið SOM 40.
Sá traktor var einn af allra
stærstu dráttarvélum
sem smíðaðar höfðu
verið í Frakklandi og
nutu mikillar velgengni í
landinu og stolt Frakka á
þeim tíma.
Vélin í SOM 40 var af
gerðinni Fiat OM COID
45, fjögurra strokka, 4165
cc dísilvél, sem afkastaði
um 45 hestöflum við 1500
snúninga á klukkustund.
Árið 1964 var
framleiðslu SOM 40
hætt en á þeim tíma höfðu verið
framleiddir 18.741 slíkur en
alls ríflega 40.000 SOMECA
dráttarvélar í Frakklandi.
SOMECA í Argentínu
Árið 1953 setti Fiat á fót
dótturfyrirtæki í Argentínu til að
framleiða dráttarvélar. Í fyrstu
kallaðist fyrirtækið Fiat Someca
Construcciones Córdoba
en árið 1959 var nafninu
breytt í Fiat Concord.
Flestar dráttarvélarnar sem
Fiat framleiddi í Argentínu
á þessum árum voru undir
merki SOMCA
SOMECA síðan Fiat
Miklar breytingar urðu á
framleiðslu SOMECA árið
1965 þegar fyrirtækið setti á
markað svonefnda 15 seríu
sem var hrein eftirmynd af Fiat
Trattori dráttarvélum.
Fiat var allt frá upphafi
meirihlutaeigandi í SOMECA
en árið 1983 var fyrirtækið flutt
undir FiatAgri sem var sá hluti
Fiat sem sá um framleiðslu á
landbúnaðarvélum. Heiti FiatAcri
var breytt í Fiat New Holland árið
1993 og kallast í dag Fiat CNH
Global. / VH
Someca, franskur Fiat
Breski ljósmyndarinn Tim Flach
gaf á síðasta ári út ljósmyndabókina
Endangered, eða Í hættu, þar sem
sjá má undurfallegar ljósmyndir
af 180 dýrategundum sem eru í
útrýmingarhættu. Tim ferðaðist
um allan heim til að ná myndum
af ótrúlegum dýrum og vistkerfum
sem glíma við óblíðar áskoranir.
„Meginskilaboð með bókinni
er að núna verðum við að breyta
menningarlegu sambandi okkar við
hinn náttúrulega heim. Við þurfum
að auka tilfinningalega nánd við
dýrin sem eru í útrýmingarhættu sem
hvetur okkur til björgunaraðgerða,“
útskýrir Tim en að bókinni koma
einnig dýralæknirinn Jonathan
Baillie og Sam Wells.
Breytingar orðnar mjög
aðkallandi
Tim hefur alltaf haft ástríðu fyrir
og áhuga á því hvernig mannfólkið
mótar dýrin og merkingu þeirra.
„Þessi tilfinning um aukna
vitund, okkar eigin kaffæring inn
í ríki náttúrunnar er orðið eitthvað
sem ég er alltaf að reyna að
leitast við að miðla í mínum
verkum sem ljósmyndari. Í
hinum einfaldasta skilningi
þá líkar mér hin stjórnaða
ringulreið við að taka myndir
af dýrum en ég hef einnig
áhuga á skynjun sem er skipt
niður milli áberandi vera.
Það er þessi óttatilfinning og
undrun sem kemur saman og
það er alltaf óöryggi yfir því
hvað mun koma í ljós í settinu.
Mér finnst gott að hvetja til
hugmynda um það hvernig við
sjáum hvert annað,“ útskýrir
Tim og segir jafnframt:
„Hugmyndin um að
hinn náttúrulegi heimur sé
berskjaldaður hefur aðeins
komið inn í nútíma almenna
meðvitund á síðustu áratugum.
Við lifum á einstökum tíma í
sögunni þar sem við verðum að
gera menningarlegar breytingar
og ég skynjaði þetta aðkallandi
ástand. Þetta verkefni sem varð
afrakstur bókarinnar tók mig tvö
ár að vinna en ég og teymið mitt
unnum sex mánaða rannsóknarvinnu
áður en fyrsta mynd var tekin fyrir
þetta verkefni. Ég varð að ferðast
víða til að ná að segja þá sögu
sem ég vildi, sumir staðir þekktari
en aðrir og stundum fór ég að
mynda í öfgakenndu umhverfi með
öfgakenndu hitastigi!“
Fjölbreytni og áskoranir
Tim ferðaðist líkt og áður sagði um
allan heim með teymi sínu til að ná
hinum fullkomnu myndum en hann
myndaði allt frá fílum og niður í
minnstu skordýr fyrir bókina.
„Mesta áskorunin var að mynda
Saiga antílópuna. Ég reyndi fyrst
um sumar en það bar ekki árangur
og mætti ég eingöngu vandamálum
við þá tilraun. Þessi tegund af
antílópum er mjög feimin þannig að
ég beið fyrir sólarupprás liggjandi
á jörðinni í felulitunum og bjó mig
undir að þær kæmu. Um 10-leytið
skildi ég ekkert í því að myndavélin
mín var eingöngu að ná óskýrum
myndum á hvolfi, en þá hafði hitinn
frá jörðu brenglað ljósið svo mikið
að myndin hafði undist í loftinu. Ég
kom aftur um veturinn og lenti þá í
öðru eins öfgafullu hitastigi en þá var
-35 gráður og ég náði nokkrum
römmum áður en antílópurnar
flúðu. Það var vel þess virði
að endurskoða þetta skot því
vetrarbúningurinn er allt annar en
sumarstemningin sem gaf þessari
töku ævintýralegri blæ. Mér líkaði
fjölbreytnin við tökurnar en síðan
er þetta ögrun að tengja fólk við
náttúruna með myndunum,“ segir
Tim og varðandi framhaldið
bætir hann við:
„Næsta verkefni mitt er
bók þar sem ég fagna undri
fugla, bæði þeim sem eru í
útrýmingarhættu og þeim sem
eru það ekki. Mig langar að
skapa myndir sem kemur við
okkur tilfinningalega þannig
að við, mannfólkið, finnum þá
þörf hjá okkur að vera þvinguð
til aðgerða og til að skilja sögu
þessara dýra. Með því að tengja
fólk við persónuleika dýranna
og einkenni held ég að við
getum framkallað breytingar
og hvatt til aðgerða.“ /ehg
Tim Flach hefur myndað 180 dýrategundir í útrýmingarhættu:
Undur náttúrunnar í einni bók
UTAN ÚR HEIMI
Órangútan-apar í Borneo eru meðal tegunda sem taldar eru í útrýmingarhættu. Mynd / Tim Flach
Breski ljósmyndarinn Tim Flach
hefur myndað 180 dýrategundir í
þar sem gefur að líta einstakar
ljósmyndir af dýrategundum um
allan heim.
gefur góð fyrirheit um það sem koma ska
l við