Bændablaðið - 08.03.2018, Qupperneq 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
SK4-316, stundum kölluð kínverska
appelsínugulrótin, mest ræktað.
Rætur afbrigðisins eru eilítið dökk
appelsínugular, velfylltar, sléttar á
yfirborðinu, um 17 sentímetra langar
og 4,5 sentímetrar að ummáli og
vaxtarhraði þeirra eins. Sem sagt
hin fullkomna gulrót þrátt fyrir að
nafnið líkist fremur heiti á íslensku
aflandsfélagi frekar en afbrigði af
gulrót með langa ræktunarsögu.
Undanfarin ár hefur erfðatæknin
talsvert fitlað við gen gulróta til að
auka vöxt þeirra, sjúkdómaþol og
til að auðvelda neytendum upptöku
næringarefna úr þeim.
Svíinn Carl Linnaeus var fyrstur
til að lýsa gulrótum á prenti í
bók sinni Species Plantarum árið
1753 og árið 2016 var genamengi
gulrótarinnar kortlagt.
Uppruni og saga
Uppruni gulróta er rakinn til Evrópu
og Asíu og er vitað til að fræja þeirra
hafi verið neytt fyrir 7.000 árum þar
sem nú er Afganistan. Þaðan bárust
þær til nágrannasvæða þar sem
í dag eru Rússland, Íran, Indland
og Pakistan. Talið er að ræktun á
gulrótum hefjist í Kína og Japan á
14. til 17. öld eftir Krist.
Villtar gulrætur og fyrstu ræktuðu
gulræturnar voru litlar, grannar,
greinóttar og nánast hvítar á litinn
enda lengi framan af voru það fræin
sem voru nýtt en ekki ræturnar.
Gulrætur, eins og við þekkjum
þær, eiga sé aldalanga ræktunarsögu
og kynbætur að baki. Flest bendir
til að ræktun með áherslu á rót
plöntunnar hafi hafist í Afganistan,
Íran og Írak fyrir um 1000 árum.
Fyrstu gulræturnar í ræktun voru
gular eða fjólubláar. Rússneski
plöntuerfðafræðingurinn Vavilov
taldi aftur á móti að uppruni
gulrótaræktunar væri í Mið-Asíu
og -stan löndunum, Úsbekistan,
Túrkmenistan, Tadsjikistan,
Kirgisistan og Kasakstan.
Grikkir lögðu sér villtar gulrætur
til munns. Sagt er að hermennirnir
sem voru í Trójuhestinum og lögðu
borgina að lokum eftir tíu ára
umsátur Grikkja hafi eingöngu lagt
sér gulrætur til munns til að orsaka
hægðatregðu svo að síður kæmist
upp um þá. Á sinn hátt áttu því
gulrætur þátt í falli Trójuborgar.
Grikkinn Dioscorides, sem oft
er nefndur faðir grasafræðinnar,
og rómverski náttúrufræðingurinn
Pliny trúðu því staðfastlega að
villtar gulrætur væru lostavekjandi.
Rómverjar höfðu reyndar ofurtrú á
gulrótum sem ástarhvata og sagt er
að rómverskir karlmenn hafi gefið
konum gulrótarsúpu til að fá þær
til lags við sig. Einnig segir að
Kalikúla keisari hafi boðið þinginu
til gulrótarveislu í von um að
þingmennirnir misstu stjórn á sér
og að hann gæti horft á þá riðlast
hver á öðrum.
Bandaríski iðnjöfurinn Henry
Ford var haldinn gulrótarblæti og
taldi þær allra meina bót.
Ræktaðar gulrætur berast eftir
verslunarleiðum um Litlu-Asíu á
10. til 12. öld, líklega fyrst með
Márum frá Marokkó til Spánar en
ræktun á þeim í Evrópu hófst ekki
fyrr en á 14. öld og voru þær eins
og gulræturnar fyrir austan, gular,
hvítar, rauðvínsrauðar, svartar og
fjólubláar. Gulrætur voru fyrst
ræktaðar á Bretlandseyjum á 15.
öld og þeirri 17. sunnarlega á
Norðurlöndunum.
Appelsínugular gulrætur komu
fram á sjónarsviðið á 16. öld
þegar hollenskir garðyrkjumenn
frjóvguðu saman rauðu og gulu
afbrigði gulróta. Þjóðsagan segir
að Hollendingar hafi ræktað
sérstaklega appelsínugular gulrætur
til heiðurs William Orange sem
leiddi þjóðina í sjálfstæðisbaráttunni
undan yfirráðum Spánverja á 17.
öld. Orange varð síðar konungur
Hollendinga.
Eftir að kynbætur á gulrótum
hófust fyrir alvöru voru menn fljótir að
móta þær eftir eigin höfði og ná fram
einstofna, stórri og sífellt sætari rót.
Spænskir sjófarendur fluttu
með sér gulrótarfræ og sáðu þeim
á eyjunni Margaríta úti af strönd
Venesúela 1565. Gulrætur bárust
til Norður-Ameríku með fyrstu
evrópsku landnemunum og náðu
fljótlega fótfestu þar og sáðu sér út
í náttúruna þar sem aðstæður voru
þeim hagfelldar. Fyrstu gulræturnar
spíruðu í Ástralíu 1788.
Gulrætur voru orðinn hluti
af daglegri fæðu almennings í
Evrópu og víða á 17. og 18. öld og
gríðarmikil áhersla var lögð á ræktun
þeirra í álfunni í heimsstyrjöldinni
síðari.
Í dag eru appelsínugul, sæt og
stökk afbrigði gulróta ríkjandi í
ræktun. Fjólublá afbrigði eru enn
ræktuð í Afganistan og úr þeim
bruggað sterkt áfengi.
Nafnaspeki
Enska heitið carrot var fyrst skráð
um 1530 og er tökuorð úr frönsku,
corotte, sem er aftur tökuorð úr
mun að finna í indó-evróskumáli
og tengist það orðinu horn vegna
lögunar rótarinnar. Þjóðverjar eiga
nokkur heiti yfir gulrætur eins og
karotte og rübe sem virðist vera
samheiti yfir gulrætur og næpur.
Reyndar er rübe einnig ruddaheiti
yfir mannslim, rübenkraut eða
gulrótarlundur fyrir skapahár og
rübensaft eða gulrótarsafi fyrir sæði.
Heitið gulerod er aldagamalt í
dönsku og vísar til litar rótarinnar
og notar danski náttúrufræðingurinn
Simon Paulli það í Flora Danica frá
1648. Eggert Ólafsson talar um gular
rætur í Lachanoloia eða matjurtabók
frá 1774.
Ekki er vitað fyrir víst hvenær
heitið gulrót festist í íslensku en
Móritz Halldórsson-Friðriksson,
læknir notaði orðið við þýðingu
sína á garðyrkjubók Frederik
Christian Schübeler sem kom út
1883.
Gulrætur, kanínur og
teiknimyndapersónur
Bugs Bunny, eða Kalli kanína, er
líklega sú teiknimyndapersóna sem
flestir tengja við gulrótarát. Kalli er
líklega einnig ástæða þess að margir
halda að gulrætur séu uppáhalds
fæða kanína. Svo er þó ekki því
dæmin sýna að ef kanínur komast
í matjurtagarð og fá að éta óáreittar
háma þær flestu öðru í sig áður en
þær leggjast á gulræturnar.
Önnur skemmtileg teiknimynda-
persóna sem vert er að hafa augun
opin fyrir er Flaming Carrot Man
sem tekur nokkuð annan pól í hæðina
en Kalli kanína.
Fyrstu tilraunir með ræktun
gulróta á Íslandi
Í tímaritinu Íslendingi frá 1863 er
grein sem segir frá ágæti garðyrkju
og nokkrum plöntum sem rækta má
á Íslandi. Undirskrift greinarinnar er
J.B. „Gulrótin (Gulerödder) er ein af
jurtum þeim, er efnamenn ættu að
rækta sjer til sælgætis; fyrir þær má
ekki pæla grynnra en 15 þumlunga;
þeim er sáð í miðjum maí, með 4–5
þumlunga millibili. Þær eru teknar
upp í lok septembermánaðar; blöðin
eru skorin af þeim og gefin kúm;
en rótin er geymd eins og kálrófur.
Hin stóra Altringham-gulrót, er ein
af hinum beztu tegundum hennar.
Þær skulu ræktast í sama reitnum
og næpurnar.“
Schierbeck landlæknir segir
aftur á móti í skýrslu um nokkrar
tilraunir til jurtaræktunar á Íslandi,
sem birtist í Tímariti Hins íslenska
bókmenntafélags 1886. „Gulrótin
mun víst naumast verða neitt til
muna útbreidd á þessu landi, þar
- eð hún þrífst eigi vel. Stærstu
gulræturnar, sem jeg hef fengið, hafa
verið á digurð við mannsfingur. Þær
tegundir, sem bezt heppnast, virðast
vera „Hornske Carotte“ og „Nates-
gulrót. Í ár hef jeg eptir ráðleggingu
Schúbelers prófessors reynt að sá
í septembermánuði, og láta fræið
liggja veturinn í jörðunni.“
Skömmu eftir þarsíðustu aldamót
var farið að rækta gulrætur hér á
landi í heitri jörð, í vermireitum og
í gróðurhúsum.
Ræktun á gulrótum
Hér á landi eru ýmis yrki af
sumargulrótum algengust í ræktun.
Gulrætur þrífast best í léttum
djúpum, sendnum og vel unnum
frjósömum jarðvegi. Sé gefið of
mikið af köfnunarefni hleypur það
í ofanjarðarvöxtinn og undirtekjan
verður lítil.
Gulrótarfræ eru lengi að spíra
og missa spírunarhæfni sína með
tímanum og því best að sá alltaf
nýju fræi. Best er að sá gisið beint í
beð eins snemma og hægt er. Rásir
fyrir fræ þurfa að vera eins til tveggja
sentímetra djúpar og með 15 til 20
sentímetra bili á milli plantna. Einnig
er hægt að fá borða með fræjum
með réttu millibili sem sett eru í
jarðveginn. Æskilegur jarðvegshiti
við sáningu er 8°C. Þegar plönturnar
hafa myndað tvö blöð skal grisja sé
þess þörf. Skiljið eftir hraustlegar
plöntur með 4 sentímetra millibili.
Gott er að rækta gulrætur í vermireit
eða undir gróðurhlíf til að flýta fyrir
sprettu og varna því að gulrótarfluga
verði til ama.
Gulrætur og tómatar eru vinir og
fara vel saman í samplöntun.
Algeng yrki í ræktun eru ‘Nantes‘,
‘Napoli‘, ‘Nelson‘ og ‘Alamo‘ sem
eru fljótsprottin og appelsínugul.
‘Purpel Haze’ er fjólublátt afbrigði
en ‘Rainbow’ gultog hvít. Auk þess
sem á netinu má finna alls kyns
svokölluð Heirloom-yrki sem gaman
væri að prófa.
sumarið 2010. Gulrótin er tæpir
30 sentímetrar að lengd og 15
sentímetrar að ummáli þar sem
upptöku. Yrkið er Early Nantes sem
manns.
langstærsti ræktandi gulróta í heiminum.