Bændablaðið - 08.03.2018, Side 51

Bændablaðið - 08.03.2018, Side 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018 NÝKOMIN SENDING AF COSMO JARÐTÆTURUM www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar JARÐTÆTARAR Holstein kúakynsins í Brasilíu, sem ætla má að sé með 25–30% meiri afurðir en íslenska kúakynið. Afar athyglisvert er einnig að sjá að niðurstöðurnar sýna að þetta samspil hækkunar á frumutölu og minni daglegrar mjólkurframleiðslu kemur fram langt undir 200 þúsund frumur/ml. Fyrstu merki um áhrif til nytlækkunar fundust strax þegar frumutalan var ekki nema rétt í kringum 12.400 frumur/ml. Með öðrum orðum þá fer afurðasemin að dragast örlítið saman nánast um leið og mæla má hækkun frumutölu. Eins og áður segir benda niðurstöðurnar til þess að þetta samspil á milli hækkunar á frumutölu og samdráttar í afurðasemi sé mismunandi innan og milli hvers mjaltaskeiðs og því er erfitt að koma með eina gullna tölu um það afurðatap sem verður þegar frumutala hækkar t.d. úr 100.000/ ml í 200.000/ml, en þó má notast við eftirfarandi viðmið niðurstaðna rannsóknarinnar að þegar frumutala kúa á fyrsta mjaltaskeiði er komin í 200 þúsund/ml er meðal afurðatap þeirra 6,5%, 8,5% hjá kúm á öðru mjaltaskeiði og 9,0% hjá kúm á þriðja mjaltaskeiði. Gildir einnig um íslenska kúakynið Þrátt fyrir að framangreind rannsókn byggi á gögnum um Holstein-kýr í Brasilíu er afar líklegt að áþekkt samhengi frumutölu og afurðasemi gildi einnig um íslenska kúakynið enda hafa ótal aðrar rannsóknir á öðrum kúakynjum í öðrum löndum bent í sömu átt. Það eru því miklar líkur á því að eftir því sem frumutala kýrsýna er hærri því hærri er væntanlegur tekjumissir vegna samdráttar í daglegri mjólkurframleiðslu. Það er því eftir miklu að slæðast og má í raun miklu til kosta til þess að ná og viðhalda góðu júgurheilbrigði. Jákvæð áhrif þess að ná stjórn á júgurheilbrigði kúabús felast auk þess ekki einungis í betri afkomu viðkomandi bús, heldur einnig mun skemmtilegra vinnuumhverfi með heilbrigðari gripum þar sem allt smitálag snarminnkar og nýgengi júgurbólgu fellur verulega. Þá tala þeir bændur um það sem náð hafa næsta fullkomnum tökum á frumutölunni að öll vinna á búinu verði miklu léttari og skemmtilegri, enda tekur tíma að sinna veikum kúm og er oft miðað við að ein veik kýr taki til sín áþekkan vinnutíma á búi og 30–40 heilbrigðar kýr. Heimild: Goncalves ofl., 2018. Milk losses associated with somatic cell counts by parity and stage of lactation. Journal of Dairy Science Vol 101 no. 5 (í prentun). Þrátt fyrir að framangreind rannsókn byggi á gögnum um Holstein-kýr í Brasilíu er afar líklegt að áþekkt samhengi frumutölu og afurðasemi gildi einnig um íslenska kúakynið Aðalfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) verður haldinn að Hótel Sögu, fundarsal Kötlu II, þann 15. mars og hefst klukkan 13.15. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Breytingar á 5. gr. samþykkta félagsins er lýtur að fundarboðun. 3. Málþing hefst að aðalfundi loknum, um kl. 14.30. Efni: Áform ríkisins um stofnun miðhálendisþjóðgarðs og reynsla af núverandi þjóðgörðum. Frummælendur á málþingi: » Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra. » Guðrún María Valgeirsdóttir, stjórnarmaður í LLÍ. » Anna María Ragnarsdóttir, eigandi Hótels Skaftafells. Fundurinn er öllum opinn og bæði félagar í LLÍ og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta. Fyrir hönd stjórnar LLÍ Örn Bergsson AÐALFUNDARBOÐ UTAN ÚR HEIMI Skrifaði SOS í olíupálma- akur á eyjunni Súmötru Litháski landlistamaðurinn og aðgerðarsinninn Ernest Zacharevic mundaði fyrir skömmu keðjusög og felldi 1.100 olíupálma á olíupálmaakri á eyjunni Súmötru. Eftirstandandi pálmar mynduðu alþjóðlega hjálparkallið SOS í landslaginu. Akurinn er í eigu umhverfis- samtaka sem leggja áherslu á verndum órangútan-apa á eyjunni og er skriftinni í skóginum ætlað að vekja athygli á fellingu náttúrulegra skóga og eyðingu búsvæða órangúta. Ákall um hjálp Hver stafur samanstendur af mörgum trjám og saman eru þeir hálfur kílómetri að lengd og því aðeins sýnilegir úr lofti af fuglum og farþegum í flugvélum og því eins og ákall af jörðu niðri um hjálp. Eyðing náttúrulegra skóga og eyðilegging búsvæða villtra dýra vegna ræktunar olíupálma er með því allra mesta sem gerist í heiminum. Ódýrasta matarolían á markaði Olíuna er að finna í fjölda vöruflokka og ekki síst í matvælum. Markaðshlutdeild pálmaolíu er 56% af allri verslun á jurtaolíu í heiminum. Pálmaolía er ódýrasta jurtaolían á markaðinum og að finna í einni af hverjum sex tilbúnum matvörum sem framleiddar eru. Hana er meðal annars að finna í súkkulaði, kexi, laufabrauði, rískökum, flögum, pitsudeigi, kökum, frosnu grænmeti, hnetusmjöri, núðlum, morgunkorni, þurrkuðum ávöxtum, smjörlíki og barnamat. Auk þess sem pálmaolía er notuð í sleipiefni, sápur, kerti, sjampó, þvottaefni og snyrtivörur, eins og tannkrem, varasalva, varalit og í framleiðslu á lífdísil. /VH Alþjóðlegt neyðarkall til verndunar náttúrulegra skóga og búsvæða villtra dýra á eyjunni Súmötru.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.