Bændablaðið - 08.03.2018, Side 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Undanfarin fjögur ár hefur RML
boðið bændum að taka þátt í
ráðgjafarpakka sem kallaður
er Sprotinn. Markmiðið með
honum er að ná vel utan um
alla jarðræktina á búinu með
skráningum m.a. á því sem er
ræktað, borið á og uppskorið og
einnig eftir því sem þurfa þykir,
sýnatöku á jarðvegi til að greina
það sem hugsanlega má bæta.
Ráðgjöfinni lýkur síðan alltaf á
að unnin er áburðaráætlun þar
sem gögn úr skýrsluhaldinu og
niðurstöður hey- og jarðvegssýna
eru höfð til stuðnings.
Meðal þess sem haldið er til haga
eru upplýsingar um áburðargjöf og
uppskeru í Jörð.is og út frá þeim
upplýsingum er unnin skýrsla þar
sem spildur á búinu eru bornar
saman. Slíkur samanburður gefur
þeim sem til þekkja, möguleika
á að greina hvort það kunni að
vera ástæða til að skoða hvort
ræktunarskilyrðum einhverra túna sé
ábótavant og einnig hvort uppskeran
sé í samræmi við það áburðarmagn
sem borið var á.
Meðal þess sem er reiknað út í
skýrslunni er kostnaður í ábornu N, P
og K á hvert þurrefniskíló í uppskeru
og á fóðureiningar. Í þeim útreikningi
eru áætluð nýtanleg áburðarefni í
búfjáráburði reiknuð til jafns við
áburðarefni í tilbúnum áburði.
Áhugavert er síðan að bera saman
niðurstöður „Sprotabændanna“ en
þeir hafa fengið slíkan samanburð
sendan. Rétt er að hafa í huga að
svona samanburður takmarkast af
mörgum þáttum og til dæmis er ekki
tekið tillit til beitar og uppskerutíma.
Verðmæti áburðarefnanna var
reiknað út frá lægsta áburðarverði
ársins 2017 samkvæmt verðskrám
áburðarsalanna. Flutningskostnaði
og viðskiptakjörum var haldið utan
við og einnig var ekki tekið tillit til
eðlis- og efnafræðilegra eiginleika
áburðarins. Einnig verður að hafa
fyrirvara á útreikningum þar sem
munur getur verið á aukaefnum.
Verðmæti köfnunarefnis reiknaðist
162 kr/kg, fosfórs er 218 kr/kg
og kalís er 117 kr/kg. Talsverður
breytileiki var á áburðargjöf og
uppskeru á milli búa en að meðaltali
kostaði kíló þurrefnis í uppskerunni
7 krónur í áburði en breytileikinn
var frá 3 kr. og upp í 12,4 kr.
Niðurstöðurnar gefa til kynna að
víða sé hægt að ná fram hagræðingu
í notkun áburðar. Það er þó einnig
ljóst að skráning skýrsluhalds í
jarðrækt þarf almennt að batna til
að samantekt sem þessi gefi sem
gleggsta mynd af þessum þætti í
kostnaði við gróffóðuröflun.
Góð nýting búfjáráburðar er
mikilvæg og þarf að skoðast í
samhengi við heildar áburðarkostnað
uppskerunnar. Þar sem verðmæti
áburðarefna í búfjáráburði eru
metin til jafns við áburðarefni í
tilbúnum áburði getur sá sem e.t.v.
nýtir búfjáráburðinn illa, komið vel
út úr greiningu á áburðarkostnaði
á uppskerunni. Þetta og fleira þarf
því að skoðast í stærra samhengi.
Það eru því þeir sem eru með hátt
hlutfall áburðar úr búfjáráburði og
með lágan heildaráburðarkostnað á
kíló þurrefnis sem koma best út úr
þessari greiningarvinnu.
Rétt er að nefna að allir bændur
sem hafa skráð bæði áburðargjöf og
uppskeru geta fengið svona yfirlit
hjá RML.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Samantekt á uppskeru og áburðargjöf
Borgar Páll Bragason
fagstjóri í nytjaplöntum
hjá RML
bpb@rml.is
Umsókn um orlofsdvöl
Undirrituð/Undirritaður sækir hér með um:
Umsóknina skal senda fyrir . nk. á
netfangið ho bondi.is
eða á póstfang Bændasamtaka Íslands:
Bændahöllin v/Hagatorg,
107 Reykjavík, merkt Orlofsdvöl sumarið 201
Sumarið 201
Nafn umsækjanda Kennitala
Heimilisfang Símanúmer
Undirskrift félaga og dagsetning
Póstnúmer og staður
Hefur þú áður fengið úthlutað orlofsdvöl í
sumarhúsi hjá Bændasamtökunum?
Já Nei
Orlofsdvöl að Hólum - Tímabilið:
Orlofsdvöl á Flúðum - Tímabilið:
Hér að neðan er að finna umsóknareyðublað um orlofsdvöl í húsunum að Hólum í
Hjaltadal og á Flúðum, Hrunamannahreppi sumarið 201 .
Frestur til að skila inn umsóknum rennur út .
201 .
Framleiðnisjóður
landbúnaðarins auglýsir:
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum um
styrki til stuðnings við nýsköpun, vöruþróun kynningar- og
markaðsstarf til stuðnings íslenskri sauðfjárrækt.
Sjá nánari upplýsingar inn á heimasíðu sjóðsins www.fl.is,
undir Markaðssjóður/verklagsreglur.
Styrkþegar geta verið einstaklingar, hópar, félög, samtök,
rannsóknarstofnanir, háskólar eða fyrirtæki. Styrkhæf eru þau
verkefni sem talin eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og falla
undir það að teljast nýsköpun, vöruþróun, kynningar- eða
markaðsstarf.
Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar:
a) Listi yfir þá sem eiga aðild að verkefninu.
b) Yfirlit um tilgang og markmið verkefnis.
c) Tímaáætlun verkefnisins og upplýsingar um helstu áfanga þess.
d) Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild.
e) Upplýsingar um hvernig niðurstöður verkefnisins verða kynntar
eða nýttar.
Umsóknafrestur er til 1. apríl n.k.
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð má finna á www.fl.is/
markaðssjóður. Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum
sem þar er að finna.
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyri 311 Borgarnesi, merktum: Markaðssjóður.
Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hjá thorhildur@fl.is.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300