Bændablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 201858
MENNING&LISTIR
Gudrun Kloes á Laugarbakka í Miðfirði rekur bókaútgáfuna túrí ehf.:
Gefur út framtíðarspennusögu,
matreiðslubækur og póstkort
Gudrun Kloes á Laugarbakka í
Miðfirði rekur þar bókaútgáfuna
túrí ehf. en hún var stofnuð
árið 2003. túrí ehf. er ekta
landsbyggðarfyrirtæki, en Gudrun
er fyrrverandi atvinnuráðgjafi,
starfaði við það í 15 ár, fyrst hjá
Hagfélagi og síðan hjá Samtökum
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
á Hvammstanga, þýskukennari,
þýðandi og póstburðarkona, svo
eitthvað sé nefnt af fyrri störfum
hennar.
Fyrsta bókin sem Gudrun gaf út
var Islandkochbuch, bók um íslenska
matargerð á þýsku, en hún kom
einnig fljótlega út á frönsku með
heitinu Cuisiner islandais.
Starfsemin var svo víkkuð út þegar
útgáfa á póstkortum hófst, en Gudrun
fékk kúamyndir frá listamanninum og
bóndanum á Búrfelli, Jóni Eiríkssyni,
sem jafnframt er sveitungi hennar.
Nú er bókaútgáfan túrí að
gefa út spennubókina „Leitin
að engli dauðans“ eftir Jóhann
Fönix Arinbjarnarson, ættaður frá
Brekkulæk. Þetta er önnur bók
Jóhanns, en fyrri skáldsaga hans,
Skaðamaður, kom út árið 2010 og
seldist að sögn Gudrunar ágætlega.
Framtíðarspennusaga
Gudrun segir hina nýju bók Jóhanns
spá fyrir um framtíðina eftir hrun
lýðræðisins í Bandaríkjunum, en
bókin gerist á árinu 2039. Sagt er frá
Gladys sem er 17 ára gömul og þarf
skyndilega að yfirgefa fjölskyldu
sína, vini og allt sem henni þykir vænt
um þegar upp kemst að faðir hennar
er einn valdamesti mafíuforingi
landsins. Leggur hún á mikinn
flótta þvert yfir Bandaríkin ásamt
dularfullum launmorðinga sem þátt
tók í byltingu sem varð landinu að
falli. Lögreglumenn, leyniþjónustan,
hermenn, öryggismyndavélar og
njósnabúnaður af ýmsu tagi leitar
uppi hvert fótspor sem þau skilja
eftir sig. Markmiðið er að komast
yfir til Kanada, þar sem allt er óbreytt
að undanskildu því að reistur hefur
verið múr á landamærunum til að
aftra Bandaríkjamönnum að komast
yfir landamærin. „Þessi bók segir frá
breyttum heimi, hann er að sumu
leyti grimmari og háskalegri en
nútíminn, en að öðru leyti öruggari
og upplýstari,“ segir Gudrun.
„Bókin er auðvitað skáldsaga, ekki
spádómsrit.“
Prentar allt á Íslandi
Gudrun er í óða önn að kynna þessa
nýju spennubók og segir viðtökur
góðar. Jafnframt sinnir hún öðrum
verkum á vegum útgáfunnar, hefur
endurútgefið uppskriftarbækur
sínar en þær seljast jafnan vel á
ferðamannastöðum. „Ég reyni að
prenta allt efni frá útgáfunni hér á
Íslandi þrátt fyrir hagstætt gengi og
stundum betri tilboð í útlöndum. Mér
finnst betra að fylgja verkinu eftir,
vera í samskiptum við þá sem það
vinna og geta skoðað sýniseintök
hér heima,“ segir Gudrun.
Dásemdin ein á Laugarbakka
Íbúar á Laugarbakka eru 47 talsins,
en staðurinn stendur við Miðfjarðará
og hefur byggst upp í nokkrum
áföngum. Saga Grettis sterka
Ásmundssonar tengist staðnum
sterkum böndum, en í sögunni fór
m.a. fram hestaat á Löngufit, neðan
Laugarbakka. „Það er yndislegt
að búa á Laugarbakka, hér er 3ja
stjörnu hótel rekið í endurbættu og
breyttu húsnæði grunnskólans og
er það opið árið um kring. Hér er
einnig handverkshús, bensínsala,
félagsheimili, tjaldsvæði og
ættarmótaþjónusta er rekin hér á
staðnum og vinsælt að blása til slíkra
móta hér,“ segir Gudrun.
Þá nefnir hún að um nokkurra
ára skeið hafi tónlistarhátíðin
Norðanpaunk verið haldin á
Laugarbakka, en þar koma saman
og gera sér dagamun helstu
pönkarar landsins. Þá er gróðurhúsið
Skrúðvangur með jarðarberjarækt á
Laugarbakka, Jógahús Pálínu er rekið
þar sömuleiðis auk þess sem flinkir
handverksmenn og -konur starfa á
svæðinu. „Ekki má svo gleyma því
að tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti
er sannur Laugarbakkamaður sem og
Jóhann Fönix höfundur. Það er sem
sagt dásemd ein að búa hér,“ segir
Gudrun. /MÞÞ
Laugarbakki stendur við Miðfjarðará og byggðist upp í nokkrum áföngum.
Húsið Laugarbakki sem staðurinn dregur nafn sitt af.
Hestar á beit við Syðri Reyki, ofan Laugarbakka.
ekta landsbyggðarfyrirtæki.
IS Hurðir I Sími 564 0013 I www.ishurdir.is I ishurdir@ishurdir.is
IÐNAÐARHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
• Íslensk framleiðsla, smíði og samsetning.
• Allar hurðir smíðaðar samkvæmt máli.
• Áratuga reynsla starfsmanna í hurðum.
• Hágæða hráefni.
• Þolir íslenskt veðurfar.
• Sér meðhöndlaðar brautir gegn ryði og álagi.
• Stuttur afgreiðslutími.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS
Bænda
iblb . s Fa obce ok