Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 62

Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018 Tilkynningar Á lögbýlið eða bæjarnafnið þitt skráð samsvarandi lén? Stendur til að hefja sölu beint frá býli, eða bjóða upp á heimagistingu á Internetinu? Lén er hvoru tveggja fyrir vef, t.d. www. merkigil.is, og fyrir tölvupóst, t.d. monika@merkigil.is. Kannaðu hvort lén sem samsvarar bæjarnafninu þínu er skráð á https://www.isnic.is/ is/. Nánari upplýsingar og ráðgjöf fæst í síma 578-2030, eftir morgunmjaltir og fyrir kvöldmjaltir. Veiði Tveir vinir óska eftir langtímaleigu á gæsa- og andaveiðilandi, akri/ ökrum, nýræktum, tjörnum. Gjarnan ekki lengra frá Reykjavík en 2-3 tíma akstur. Einnig koma til greina stakir dagar. Vinsamlega sendið uppl. á jkgudmundsson@gmail.com eða hringið í síma 699-2317. Leiga Ungt par með barn óskar eftir langtíma leigu á jörð í fullum rekstri. Blandað bú kemur helst til greina. Uppl. í síma 845-3160, Þröstur. Þjónusta Opnum kl. 8 alla virka daga, bara mæta og við klippum þig. Sími 587- 2030, heitt á könnunni. Allir velkomnir. Topphár, Dvergshöfða 27, Rvk. Tek að mér viðgerðir á flestum tegundum sjálfskiptinga. Hafið samband í síma 663-9589 til að fá upplýsingar og tilboð. HP transmission Akureyri, netfang: einar. g9@gmail.com, Einar G. Málningarþjónustan M1 ehf. tekur að sér öll almenn málningarstörf. Tilboð eða tímavinna. Uppl. í síma 696-2748 eða loggildurmalari@gmail.com RG Bókhald, Alhliða bókhaldsþjón- usta. Get tekið að mér fleiri verkefni. Ragna, sími 772-9719, netfang: rgbokhald@gmail.com Sanddreifarar fyrir traktóra Nokkrar stærðir í boði, Vinnslubreidd 1–2,3 m Verð frá: 340.000 kr. + vsk. Fjölplógur VB-3200 Vinnslubreidd 3,2 m, SBM tengi, 1,2 t Verð frá: 1.390.000 kr. + vsk. Snjótönn, 3000 HD 3 m, með Euro festingu Verð: 290.000 kr. + vsk. Salt- og sanddreifari, HZS-10 Fyrir þrítengi, 1 m³ Verð: 1.300.000 kr. + vsk. Fjölplógur, PUV 3300 3,3 m Verð: 695.000 kr. + vsk. Aflvélar ehf., Vesturhraun 3, 210 Garðabær, S: 480-0000 www.aflvelar.is sala@aflvelar.is Fjölplógur, PUV 3300 3,3 m Verð: 890.000 kr. + vsk. Salt- og sanddreifari, EPT15 Verð: 1.190.000 kr. + vsk. Til sölu tvö olíumálverk eftir Veturliða Gunnarsson. Stærðirnar eru 90x120 cm í römmum. Önnur myndin er af Dyrfjöllunum og hin er af Njarðvíkurfjöllunum. Stend í flutningum og vildi gjarnan að einhver sem kann að meta þessi listaverk fái að njóta þeirra. Upplýsingar í síma 699-5905. Borgarfjörður Eystri Auglýsinga- og áskriftarsími Bændablaðsins er 563-0303 AUGLÝSING VEGNA ÚTBOÐS Á VEIÐI Í HÍTARÁ, GRJÓTÁ, TÁLMA OG HÍTARVATNI Á MÝRUM Veiðifélag Hítarár óskar hér með eftir tilboði í lax- og silungsveiði á starfssvæði félagsins fyrir árin 2019 til 2022, að öllum árum meðtöldum, samkvæmt meðfylgjandi útboðsskilmálum og fyrirliggjandi upplýsingum. Útboðsgögn eru hjá umsjónarmanni útboðsins, Ólafi Sigvaldasyni, formanni Vf. Hítarár, Brúarhrauni, 311 Borgarnesi. Sími: 661 9860 og netfang: oli@emax.is. Gögnin verða afhent í tölvupósti gegn 10.000.- kr. skilagjaldi. Frestur til að skila tilboði rennur út fimmtudaginn 12. apríl 2018, kl. 12:00. Tilboðin verða opnuð opnuð í veiðihúsi Vf. Hítarár laugardaginn 14. apríl 2018 kl. 14:00 í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Tilboðum skal skila til: Ólafs Sigvaldasonar, Brúarhrauni, 311 Borgarnesi dnæB a garýsingS áaum l 0030365 - - rH áaa fhf i Eldri blöð má finna hér á PDF: MENNING&LISTIR Fornar hafnir Út er komin bókin Fornar hafnir – útver í aldanna rás eftir Karl Jeppesen. Hér er að finna ljósmyndir og frásagnir af 160 verstöðvum á Íslandi. Ferðalagið hefst á Horni og fer síðan hringferð allt í kringum landið. Áningarstaðirnir eiga það allir sameiginlegt að héðan reru forfeður okkar í landinu til fiskjar. Karl sagði í samtali við Bændablaðið að allvíða á landinu megi greina búðir sem hafa að hluta sokkið og horfið í gras eða sand. „Annars staðar hefur nútíminn ruðst yfir hinar fornu minjar með landfyllingum og mannvirkjum. En jafnt er landslag staðanna og útsýn þaðan til menja um hina hörðu lífsbaráttu og mannlíf liðinna alda.“ Útver allt í kringum landið „Aðdragandi bókarinnar er að fyrir nokkrum árum vann ég að fræðslumyndbandi um þann tíma sem oft er nefndur enska og þýska öldin og í þeirri vinnu kom ég á ýmsa staði á landinu þar sem bændur höfðu stundað útgerð í mismiklum mæli. Síðar fór ég að kynna mér stórvirki Lúðvíks Kristjánssonar, Íslenska sjávarhætti, þar sem hann fjallar meðal annars um fornar verstöðvar á Íslandi og segir frá staðsetningu þeirra. Oft líktust þessir staðir litlum þorpum á vertíðum og þar bjuggu 300 til 400 manns. Flest útveranna voru samt minni og heimaver í nágrenni bóndabæja og sum þeirra voru í notkun allt frá landnáni.“ Margra ára vinna Karl segir að eftir að áhugi hans var vakinn hafi hann tekið markvisst til verka og hann heimsótt ákveðin landsvæði til að mynda útverin. „Fyrsta ferðin var farin 2011 og síðan þá hef ég heimsótt útgerðarstaði og tekið myndir af þeim. Fyrr á öldum þóttu mikil hlunnindi að eiga kost á stað til uppsáturs, það sem gott var að lenda bát og verja hann gegn sjógangi. Algengt var að bændur ættu útróðrarskip og voru byggðar verbúðir við næstum hverja vík á strandlengjunni.“ Karl segir að ástand verbúðanna sé slæmt og þær hafi grotnað niður og orðnar grasi vaxnar, komnar á kaf í sand eða hreinlega horfnar í sjóinn vegna brots. Annars staðar hafa þær horfið undir hafnar- eða önnur mannvirki. Bókin er liðlega 300 síður í stóru broti og hefur að geyma 550 litmyndir. Útgefandi er bókaútgáfan Sæmundur. Karl Jeppesen

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.