Fóstra - 01.10.1931, Page 7

Fóstra - 01.10.1931, Page 7
Ávarp. Þessi litla bók á að vera eins og framrjett hönd frá skólunum til heimilanna og er vonað, að henni verði tekið lilýlega. Það er hin fyrsta tilraun til að koma á samvinnu hinna tveggja stofnana, heimilis og skóla, sem hafa það sameiginlega markmið að verða börnun- um að liði. Uppeldi barna er svo þýðingarmikið og vandasamt starf, að öllu, sem reynt er að gera í þarf- ir þess, ætti að vera vel tekið. Sumargjöfin annast út- gáfu þessa heftis, og er það nú undir viðtökum fólks- ins komið, hvort annað hefti kemur fljótlega, og livað af öðru, svo að úr þvi verði tímarit, sem ræðir aðallega uppeldismál. Það virðist mjög hjáleitt, að algerð þögn sje um uppeldi barna, meðan tíinarit og liátalarar hera góð ráð um land alt til að bæta búf járuppeldið. Sumargjöf hefir nú á fjórða hundrað fjelaga, en hún þarf að verða að foreldrafjelagi Reykjavíkur og sje þar enginn kennari og ekkert foreldri utanveltu. Mætti sá kraftur fylgja þvi fjelagi, sem umskapaði þennan bæ. Heimili og skóli verða að vinna saman, og tímarit, sem ræddi af einlægni og áhuga málefni foreldra og keim- ara, yrði þarft tæki í þvi starfi. Sumargjöf hefir nokkr- um sinnum reynt að koma á almennum foreldrafund- um, en þó að 3—4 lmndruð hafi mætt, þegar best gegndi, verður það að teljast sáralííið i stað, þar sem 30 þús- undir eru saman komnar. Tilraun til að stefna öllum foreldrum hjer saman mun jafnan reynast erfið, einkum

x

Fóstra

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fóstra
https://timarit.is/publication/1425

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.