Fóstra - 01.10.1931, Page 11
Fóstra. 1. hefti. I. ár.
9
við það eins og þjer mynduð tala við fullorðinn mann,
sem þjer bæruð virðingu fyrir.
Varist að gera lítið úr barninu eða gera það hlægi-
legt. Varist að tala um það í viðurvist þess. Berið það
aldrei saman við önnur börn, svo að þjer ekki fóstrið
með því öfund og óvild. Gleymið ekki einu barninu af
áhuga fyrir öðru. Virðið hina guðdómlegu einlægni
barnsins, og sýnið því einlægni á móti. Gefið því skýr-
ingu á öllu, sem það vill vita, með orðum, sem það
skilur.
Ætlið ekki skólanum einum fræðslustarfið. Það veit-
ir ekki af að bæði skóli og heimili vinni að því. Eng-
inn hefir slik skilyrði og þjer, til þess að hafa áhrif
á barnið. Þjer hafið endalaust færi á að tala við það
í einrúmi, það hefir kennarinn sjaldan. Þjer eruð með
barninu langtum lengri tima en liann, og getið fremur
en kennarinn veitt því tækifæri til starfs, sem sje við
þess hæfi. En umfram alt þarf að komast á samstarf
milli skóla og heimilis og gagnkvæm hjálp, annars er
hætt við að annað rífi niður, það sem hitt byggir upp.
Gerist þvi starfandi fjelagar í Barnavinafjelaginu
Sumargjöf, sem hefir velferð allra barna borgarinnar
að aðaltakmarki. Hjálpið til að gera fjelagið að öflug-
um tengilið milli skóla og heimila.
Steingr. Arason.
Við getum aldrei leyst hnútinn, fyr en okkur skilst
það, að mentun foreldranna er eins mikill hluti af
barnauppeldinu og afskifti okkar af börnunum sjálf-
um. • Abbott.