Fóstra - 01.10.1931, Qupperneq 13
Fóstra. 1. hefti. I. ár.
11
Nokkrar leiðbeiningar til mæðra.
Sjerhverjir foreldrar muiiu óska eftir að hörn þeirra
verði að nýtum og góðum mönnum í þjóðfjelaginu.
Skólanum er umliugað um, að barnið hljóti þá
fræðslu, sem geti orðið þvi að gagni í lífinu, en skól-
inn einn er ekki megnugur að veita slíka fræðslu ’án
aðstoðar heimilanna og þá sjerstaklega móðurinnar.
Fyrir hverri góðri móður lilýtur að vaka umhugsun-
in um velferð barns hennar og hún ein er færari en
nokkur annar einstaklingur um að tryggja framtíð
barnsins með því að kenna því þær venjur ,sem hjálpi
þvi gegnum alt lífið. I þessu atriði vill skólinn vera
móðurinni lijálplegur, en gleymum ekki að á heimilinu
er hornsteinninn lagður.
Hraustur likami er eitt af aðalskilyrðunum fyrir því,
að barnið geti notið sín.
Heilbrigðisreglur þær er hjer fara á eftir eru settar
fram mæðrunum til íhugunar og leiðbeiningar.
1. Klæðnaður. Fötin eru heppilegust hlý og einföld
og þannig sniðin, að þau hindri ekki lireyfingar barns-
ins. Varist teygjubönd, sem þrengja að (stöðva hlóð-
rásina).
2. Fæði. Látið barnið drekka eins mikla mjólk og
hægt er, en ekki te eða kaffi. Einfalt og kjarngott fæði
er hollast (mjólk, hafragrautur, ostur, brauð, smjör,
grænmeti, kartöflur, ávextir, egg, en fisk og kjöt ekki
oftar en einu sinni á dag). Varist of mikið krydd. Gef-
ið barninu ekki sætindi á milli máltíða, en geymið þau
þangað til á eftir máltíðinni. Látið barnið tyggja fæð-
una vel. Látið barnið drekka 3—4 glös af vatni á dag.
Gefið barninu lýsi, ef það er of ljett. Gætið þess, að