Fóstra - 01.10.1931, Side 16
14
Fóstra. 1. hefti. I. ár.
Börn gleyma sjer í leikjum og látum. Þau hafa fæst
hjá sér tímamæli.
Skólarnir eru að reyna að kenna nemöndum sín-
um stundvísi. Gengur það misjafnlega, og liggja að
því margar rætur. Foreldrar og húsbændur eiga að
sjá um, að börnum og unglingum sje lijálpað til að
koma á rjettum tíma í skóla. Allur þorri húsbænda og
foreldra gerir þetta, en engir mega úr leik skerast.
Nemendur geta ekki verið stundvísir, án aðstoðar
heimilanna, og síst þeir, sem yngstir eru. Munið þetta:
Snemma þurfa þeir til hvildar að ganga, sem árla
verða úr rekkju að rísa. Sú óhæfa má ekki henda for-
eldra nje húsbændur að senda börn sin út um borg
í erindagerðum, þegar komið er að skólatima.
Lögregla Reykjavikur ætlar nú að leggja þeim heim-
ilum og börnum lið, er helst þurfa þess. Mun hún hafa
vakandi auga á kveldnorpi barna.
Kennarafundir liafa samþykt að leita til yfirvalda
borgarinnar um framkvæmd í þessu efni. Hefir þótt
nauðsynlegt að gera eitthvað til þess að minna börn
á hættutíma.
Gæti komið til mála að hringja klukkum, þegar
börn ættu að fara heim til sin eftir erfiði dagsins.
Hallgrímur Jónsson.