Fóstra - 01.10.1931, Síða 17
Fóstra. 1. hefti. I. ár.
15
Stundahlje í skólum.
Frímínútur skólans eru vinnuhlje til hvíldar og
hressingar nemendum.
Námið er erfiði. Frímínúturnar eru því venja, sem
nauðsyn skólalífsins hefir skapað. Börn og foreldrar
verða því að skilja, að frímínúturnar eru ekki óþarfa
iðjuleysi, sem ekkert sje meint með, heldur mikilsverð-
ur liður i skólastarfinu, sem ekki má vanrækja. Sje
það Jgert, er nám og vinna skólans einnig vanrækt.
Skólar eru bygðir með stórum leiksvæðum. Þar er
nemendum ætlað að dvelja í stundahljei og hafa frelsi
til leikja, teyga hreint, ferskt loft, rjetta úr sjer, reyna
á vöðva sína og örfa blóðrás. Inni í þröngum skóla-
stofum verður slíkt ekki framkvæmt, svo að gagni sje.
Veðrátta hjer á landi er svo mild, að stormar og kuld-
ar hamla sjaldan útiveru i frímínútum.
Besta lækning við kvefi er að koma út í hreint loft,
og ættu foreldrar að læra að óttast meira vonda loftið
en kuldann.
Hafi barn heilsu til að sækja skóla, er það fært um
að koma út í frímínútum, enda munu kennarar gæta
þess, að börnin fari þá í yfirhafnir sínar, ef kait er
veður.
Vegna votviðra er nauðsynlegt að gæta þess, að fóta-
búnaður barnanna sje sem bestur. Öll börn ættu þvi
að hafa færi á að skifta um skó, áður en þau ganga inn
í kenslustofur, bæði vegna heilsu þeirra og hreinlætis.
Auk þeirra atriða, sem hjer hafa verið nefnd, má það
ekki gleymast,-að í frímínútunum gefst hvað best tæki-
færi til að æfa og nema borgaralegar dygðir, til dæmis
að umgangast aðra kurteislega.