Fóstra - 01.10.1931, Page 21
Fóstra. 1. hefti. I. ár.
19
margra á fullorðins aldri. Það er hreinlæti með hárið.
Það er algengur ósómi, að drengir í skólanum sjást með
úfinn og síðan hárlubba. Drengirnir þurfa að klippast
oftar, en nú á sjer stað. Þetta krefur nútíma menning.
Útlitið verður snyrtilegra, en auk þess auðveldara að
halda höfðinu hreinu.
Hárklipping ungu stúlknanna, nú á dögum, er mikil
umbót, frá sjónarmiði þrifnaðar og hreinlætis. Ennþá
er því miður til lús í barnaskólanum. En það er mikil
hjálp gegn óþrifunum, að drengir sjeu snoðkliptir, en
stúlkur með skorið hár. — Það er ekki ætið svo auð-
velt verk að útrýma óværu eða nit úr hári. Skólahjúkr-
unarkonan mun fús á að leiðbeina mæðrunum í þessu
efni.
Á flestum heimilum mun það góður og gamall siður
á helgum, að þvo börnin og baða um kroppinn. En
fætur vilja óhreinkast fljótt. Aukalegt fótabað í miðri
viku ætti að verða fastur siður!
Unun væri, ef segja mætti um íslensk skólabörn, að
þau væru heilsugóð og snyrtileg, með kurteisa fram-
komu og viðmót!
Gunnl. Claessen.
Dr. med.