Fóstra - 01.10.1931, Síða 31
Fóstra. 1. hefti. I. ár. 29
Útdráttur
úr bráðabirgðareglum fyrir nemendur barnaskóla
Reykjavíkur.
Báðir barnaskólarnir í Reykjavík hafa komið sjer
saman um eftirfarandi reglur, og eru þær birtar hjer
foreldrunum til leiðbeiningar.
I. Börnin eiga að vera komin á skólaleiksvæði, áður
en hringt er inn í fyrstu kenslustund á degi hverjum.
II. Börnin komi í skóla þvegin og greidd og svo
þokkalega búin sem ástæður leyfa.
III. Sjerhvert barn skal hafa með sjer í skóla allar
bækur og öll áhöld, sem það leggur sér til og þarf að
nota.
IV. Æskilegt og nauðsynlegt er að börn fari ekki inn í
kenslustofur á skóm þeim, sem þau nota úti.
V. Börnin eiga að vera á skólaleiksvæði í stundahljei.
Aðalumsjónarmaður leyfir brottgöngu af leiksvæði, ef
barn þarf nauðsynlega að fara burtu.
VI. Heilsusamlegt og æskilegt er að börnin fái mjólk
í skólanum.
VII. Börnin eiga að fara vel með alla skólamuni.
VIII. Verði barn veikt eða hindrað frá skólagöngu
af öðrum gildum ástæðum, eiga foreldrar eða hús-
bændur að tilkynna það skólastjóra eða bekkjarkenn-
ara sama daginn eða hinn næsta, ef barnið kemur þá
eigi.
IX. Þegar kenslu er lokið á degi hverjum, gangi
börnin prúðmannlega heim til sín og tefji ekki á leið-
inni.