Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Qupperneq 4

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Qupperneq 4
4 Leiðarinn Vernharð Guðnason, formaður LSS Vor í lofti Nú þegar vorið er loksins komið og reyndar samkvæmt dagatali komið sumar þá lyftist brúnin á mörgum. A þessu vori eru margar ástæður fyrir því að íslenskir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn kætast meira en venjulega. Þar ber fyrst að nefna nýlega fallinn dóm hæstaréttar í máli gegn einum félaga okkar sem hafði verið bor- inn röngum sökum um áreiti við sjúkling á meðan á sjúkraflutningi stóð. Jafn afdráttar- laus sýknudómur hefur varla verið kveðinn upp áður. Þá hefur verið tekið skref í rétta átt með gerð samkomulags við fjármálaráðuneytið um kjör hlutastarfandi sjúkraflutningamanna. Eg tel að vissulega hefði skrefið mátt vera stærra að þessu sinni en góður áfangi náðist samt. Það sem samninganefnd okkar þykir einna verst er að ekki náðust í gegn greiðslur fyrir bakvaktir. Við teljum að það álagsstundakerfi sem notast er við sé mjög óréttlátt. Það er ekki spurning í mínum huga að skuldbinding þess sem fer 40 flutninga á ári er engu minni en þess sem fer í 200 flutninga á ári. Báðir þurfa að vera jafn mikið til taks þegar kallið kemur. Við munum halda áfram á þeirri braut að fá bakvaktir viðurkenndar og greitt fyrir þær með sanngjörnum hætti. I því sam- bandi má minna á tilskipun frá Evrópusam- bandinu um þá sem vinna hlutastörf. Til stóð að undirrita þá tilskipun í janúar síðastliðn- um en af því varð þó ekki. Ánægjulegar breytingar Einnig var nýlega gengið frá bókun í kjara- samningi sem snertir stjórnendur slökkviliða í hlutastarfi. Þar var komið á nýju kerfi þar sem mat er lagt á áhættuþætti hvers svæðis fyrir sig og út frá því reiknuð greiðsla til stjórnenda hvers slökkviliðs. Þetta nýja kerfi hefur ótvírætt marga kosti og þá kannski þann helstan hversu sveigjanlegt það er og auðvelt að laga það að þeim breytingum sem kunna að verða á þeim áhættuþáttum sem glíma þarf við hverju sinni. Það er sömuleiðis ánægjulegt að greiðslur til stjórnenda hækka töluvert í langflestum tilfellum og enginn mun lækka frá því sem nú er. I undirbúningi er ferð um landið til að hitta bæði sjúkraflutningamenn og slökkvi- liðsmenn og kynna þeim þessa nýju samn- inga. Þegar þetta er skrifað er ákveðið að Grindavík verði fyrst heimsótt og síðan Norðurland. Fleiri ánægjulegar breytingar hafa orðið í umhverfi okkar sem störfum í þessum mála- flokkum. Það er sérstaklega ánægjulegt að hjá einu af stærri slökkviliðum landsins, Slökkvi- liði Akureyrar, hafa verið ráðnir nýir yfirmenn, slökkviliðsstjóri og aðstoðarslökkviliðsstjóri, báðir menn sem hlotið hafa sína menntun í gegnum störf sín í slökkviliðum. Það er mikil- vægt að með þessum hætti er viðurkennd sú menntun, þjálfun og reynsla sem menn byggja ofan á sína grunnmenntun innan slökkvilið- anna. Ég vil leyfa mér að óska Erlingi Júlínus- syni slökkviliðsstjóra og Ingimari Eydal vara- slökkviliðsstjóra til hamingju og óska þeim velfarnaðar í starfi. Sveitarfélög annist sjúkraflutninga I tengslum við gerð samkomulags fyrir hluta- starfandi sjúkraflutningamenn hefur komið upp sú umræða hvort ekki sé athugandi að sveitarfélögin taki að sér rekstur sjúkraflutn- inga með samningum við ríkið þar um. Ymis rök eru fyrir slíkri breytingu. Má þar nefna til dæmis betri nýtingu á mannskap og fjár- munum með því að fela slökkviliðum verk- efnið. Með þannig fyrirkomulagi er kominn grundvöllur fyrir atvinnuslökkvilið í nokkrum sveitarfélögum til viðbótar þeim sem fyrir eru. Þá má benda á að í flestum stærstu sveitarfélögum landsins eru samning- ar í gildi við ríkið þar sem slökkviliðin sjá um framkvæmd sjúkraflutninga. Þessi umræða er orðin tímabær og er enginn vafi í mínum huga um að þannig fyrirkomulag myndi styrkja okkur faglega og um leið stórbæta þjónustuna við íbúana, hvort sem um er að ræða sjúkraflutninga eða slökkvistörf. Við setningu laga um brunavarnir og brunamál voru ákveðin verkefni skilin eftir í óvissu. Þar á ég við björgunartæki vegna klippivinnu til björgunar úr bílflökum. Sú staðreynd blasir við í dag að í langflestum til- fellum eru það slökkvilið landsins sem sinna þeim mikilvægu störfum. Það hlýtur því að verða krafa okkar á komandi mánuðum að bragarbót verði gerð þar á. Ágætu félagar. Margt jákvætt hefur gerst í starfsumhverfi okkar á undanförnu ári. Engu að síður er margt eftir ógert. Það er því gríð- arlega mikilvægt að allir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn finni sig í að vera sam- einaðir í einum samtökum og taki virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun þeirra hagsmunamála sem snerta okkur öll. Það kann ekki góðri lukku að stýra að kúldr- ast hver í sínu horni. Ég óska ykkur og fjöl- skyldum ykkar sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Vernharð Guðnason formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.