Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Side 6

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Side 6
6 Dr. Björn Karlsson brunamálastjóri Nýjungar í brunamálum Miklar breytingar hafa nýverið orðið í starfsumhverfi Brunamálastofnunar og má þar nefna nýja lagasetningu árið 2001, auknar kröfur um skilvirkni í ríkis- rekstri og breytingar í rekstri sveitarfélaga. Þess- ar breytingar hafa mikil áhrif á starfsemi stofn- unarinnar. I lögum um brunavarnir sem gengu í gildi 2001 eru gerðar auknar kröfur á hendur sveitar- félögum, slökkviliðsstjórum og slökkviliðum um öryggi þegnanna, atvinnulífsins og umhverfisins. I framhaldi af gildistöku laganna voru jafnframt gefnar út reglugerðir og leiðbeiningar þar sem kröfurnar voru útfærðar nánar. Helstu ástæður þessara auknu krafna um öryggi eru þær að þjóð- félagið er orðið mun viðkvæmara fyrir skaða en áður hefur verið. Sameining slökkviliða Mestan hluta 20. aldarinnar voru sveitarfélög á Islandi rétt rúmlega 200 að tölu. En frá árinu 1990 til ársins 2003 hefur sveitarfélögum fækk- að úr 204 í 105, eða um nær helming. A 12. landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga haustið 2002 var mörkuð stefna um að sam- bandið skyldi vinna að því að sveitarfélög stækki með frjálsri sameiningu, m.a. til að tryggja sjálfsforræði byggðarlaga, gera stjórn- sýslu markvissari og tryggja gæði þjónustu. Þannig má gera ráð fýrir stækkun sveitarfélaga og þar með aukinni samvinnu eða sameiningu slökkviliða á næstu árum. Á Islandi starfa um 60 slökkvilið og um 1500 slökkviliðsmenn, þar af um 300 í aðalstarfi og 1200 í hlutastarfi. Tvö þessara liða eru mjög stór atvinnulið, Slökkvilið Keflavíkurflugvallar og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, en liðin búa við ákaflega mismunandi aðstæður hvað varðar starfsskyldur og lagaumhverfi. Tvö minni atvinnumannaslökkvilið eru starfandi en önnur slökkvilið eru að mestu skipuð hluta- starfandi slökkviliðsmönnum. Ljóst er að starfs- skilyrði og þarfir slökkviliða á Islandi eru ákaf- lega mismunandi. Brunamálastofnun og Bruna- málaskólinn verða því að veita mjög misleitum markhópi þjónustu sína. Brunamálastofnun hefur veitt 11 aðilum (rúmlega 30 sveitarfélögum eða brunavarna- samlögum) styrki vegna skýrslugerðar um fyrir- hugaða samvinnu slökkviliða. Sem dæmi má nefna slökkviliðin í Ólafsvík, Grundarfirði og Stykkishólmi, sem ákveðið hafa að vinna saman vegna búnaðar sem þarf til mengunarslysavið- bragðs, samvinnu um eldvarnaeftirlit, æfingar og margt fleira og eru nú að vinna skýrslu þar sem slík samvinna er skipulögð og skjalfest. Nám slökkviliðsmanna Ný lög um brunavarnir gerðu það að verkum að ýmsum nýjum verkefnum var hleypt af stokkunum. Má þar nefna nýja reglugerð um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna, sem gekk í gildi í október 2001. Skyldubundið nám slökkviliðsmanna jókst við gildistöku reglugerðarinnar, en þó sér- staklega nám atvinnuslökkviliðsmanna, sem aukist hefur um helming. Á árinu 2002 var unnið mikið starf við að þróa nýja námsvísa, nýtt námsefni og nýtt kennsluefni vegna þess- ara breytinga. I byrjun árs 2003 hófst svo hið nýja nám hlutastarfandi slökkviliðsmanna, sam- kvæmt nýjum námsvísum og kennsluefni. Nám atvinnuslökkviliðsmanna skiptist í For- nám (tvær vikur), Atvinnuslökkviliðsmaður (þrír mánuðir) og Stjórnandi (þrjár vikur). Búið er að þróa nýtt náms- og kennsluefni fýrir nám- skeiðið Atvinnuslökkviliðsmaður. Nemendur á slíkum námskeiðum eru fýrst og fremst starfs- menn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Slökkviliði Akureyrar og Brunavörnum Suður- nesja. Sem stendur er mikilvægt að slíkt nám- skeið verði haldið fýrir þá starfsmenn sem hófu störf hjá SHS á árunum 2000 og 2001. Þeir starfsmenn þurfa að vísu einnig að taka langt námskeið í sjúkraflutningum og nýlega var ákveðið að sjúkraflutninganámskeiðið skyldi haldið haustið 2003 en Atvinnuslökkviliðs- mannanámskeiðið um vorið 2004. Einnig hefur Brunamálaskólinn í samvinnu við Slökkvilið Keflavíkurflugvallar hafið undir- búning að því að grunnnám atvinnuslökkviliðs- manna í Brunamálaskólanum verði viðurkennt af þar til bærum aðilum í Bandaríkjunum, þannig að slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli geti einnig stundað sitt lögbundna grunnnám í Brunamálaskólanum. Slík vinna mun þó taka einhvern tíma. Innra starf Brunamálastofnunar Vegna aukinna krafna stjórnvalda um skilvirkni og hagkvæmni í ríkisrekstri og vegna margvís- legra nýjunga í slíkum rekstri, hefur verið lögð áhersla á innra starf stofnunarinnar. Síðastliðið ár lögðu starfsmenn mikla vinnu í að móta stefnu Brunamálastofnunar 2002 til 2007 og er sú stefnumótun nú til umsagnar í umhverfis- ráðuneytinu. Starfsmannahandbók var tekin saman þar sem safnað er saman ýmsu efni um réttindi og skyldur starfsmannanna. Starfs- mannastefna var sett fram og unnin var ferla- greining með verklagsreglum og starfslýsingum. Sem stendur er verið að koma á fót skjalastjórn- unarkerfi í forritinu GoPro og byrjað er að undirbúa árangursstjórnunarsamning við um- hverfisráðuneytið. Undirritaður telur mjög mikilvægt að unnið sé markvisst að þessum innri málum, bæði vegna mögulegra aukinna verkefna stofnunarinnar og eins vegna aukinna krafna stjórnvalda um skilvirkni. I þessu sambandi er jafnframt vert að minna á að stofnunin flutti í mun stærra og hentugra húsnæði að Skúlagötu 21 um síðustu áramót og um leið breyttust símanúmer stofnunarinnar. Ennfremur hefur stofnunin tekið í notkun nýtt merki og kynningargögn hennar hafa tekið miklum breytingum. Flókið og breytilegt umhverti Mjög mismunandi þarfir slökkviliða ásamt hraðri þróun í byggingariðnaði, atvinnulífi, rekstri sveitarfélaga og ríkisrekstri gerir starfs- umhverfi Brunamálastofunar flókið og síbreyti- legt. Viðskiptaaðilar stofnunarinnar eru mjög víður og breytilegur hópur og taka verður mið af því í starfmu. Slökkviliðsstjórar og slökkviliðsmenn eru óneitanlega einn allra mikilvægasti markhópur Brunamálastofnunar. Við viljum gjarna hafa lif- andi og ánægjulegt samstarf við þennan mikil- væga hóp. Eg vil nota þetta tækifæri til þess að hvetja slökkviliðsstjóra og slökkviliðsmenn til þess að leita óhikað til okkar ef upplýsinga er þörf eða ef koma þarf ábendingum á framfæri. Það má gera hvort sem er í gegnum síma á opn- unartíma eða í gegnum vef stofnunarinnar, www.brunamal.is. Þar er að finna ýmsar gagn- legar upplýsingar um brunamál, Brunamála- stofnun og starfsmenn hennar. Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.