Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Blaðsíða 11
11
Mikill áhugi
— Við fengum styrk frá LSS, SHS og Bruna-
málastofnun til fararinnar í haust. I samtölum
okkar við slökkviliðsmenn í Fremont kom
fram að þar ríkir mikil ánægja með námskeið-
ið og félagar okkar þar sögðu það hafa komið
að góðu gagni. Við höfum upplifað þetta með
svipuðum hætti hér. Það kom meðal annars
fram í umsögnum þeirra sem sátu námskeiðið
á vegum Sjúkraflutningaskólans. Við höfum
jafnframt orðið varir við mikinn áhuga hjá
heilbrigðisstofnunum og læknum og hjúkrun-
arfræðingum sem þar starfa.
Námskeiðið er fjórar kennslustundir.
Markmið þess er að auka færni og þekkingu
viðbragðsaðila til að bregðast við á vettvangi
alvarlegra atburða þannig að álag í starfi verði
sem minnst. Þátttakendur eiga að vera færari
en áður um að veita viðstöddum syrgjendum
mannlegan og faglegan stuðning, sem sagt að
segja og gera hið rétta.
Haraldur og Björn segja að sú þekking sem
menn öðlist á námskeiðinu geti einnig nýst í
mannlegum samskiptum almennt þótt það sé
fyrst og fremst miðað við störf viðbragðsaðila á
vettvangi.
- Framkoma viðbragðsaðila á vettvangi
skiptir miklu máli. Það að halda sig til hlés,
segja ekkert og gera ekkert, má hæglega túlka
þannig að viðkomandi sé alveg sama um það
sem gerst hefur og þann missi sem fólk hefur
orðið fyrir. Nauðsynlegt er fyrir fólk í starfi
eins og okkar að hafa í huga að fólk getur
munað það ævilangt hvernig við bregðumst
við á vettvangi, til góðs eða ills, segja þeir.
Töffaraskapur á undanhaldi
Þessi mál hafa lengi verið þeim félögum hug-
leikin. Björn hefur um langt skeið verið
framarlega í flokki hvað varðar félagastuðn-
ing innan SHS og stóð að því á sínum tíma
ásamt Stefáni Halldórssyni að gefa út bækl-
inginn „Tekist á við eftirköst sálræns áfalls“.
- Þegar félagastuðningurinn fór af stað fyrir
rúmum áratug var mikill töffaraskapur í gangi
hjá sumum í liðinu. Sumir sögðu að slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamenn ættu einfaldlega
að þola það álag sem fylgdi starfinu og ekki
orð um það meir! Þetta hefur mikið breyst
síðan og við verðum varir við að nýliðarnir
eru yfirleitt mjög fegnir að þessi stuðningur
skuli vera fyrir hendi. Félagastuðningurinn er
fyrst og fremst fólginn í því að bregðast við
erfiðum útköllum og viðra skoðanir manna
og tilfinningar í kjölfar þeirra. Námskeiðið
sem við erum að bjóða núna telst frekar til
fyrirbyggjandi aðgerða. Þetta tvennt fer ágæt-
lega saman og gerir menn einfaldlega hæfari
til þess að bregðast rétt við gagnvart sjálfum
sér og öðrum, segja Haraldur og Björn.
Heimsókn til
■ ■>■1 ■■■JK ■ * W* i
slokkviliðsins i Fremont
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamennirnir
Haraldur Guðjónsson og Björn Björnsson
heimsóttu slökkviliðið £ Fremont í október
2002 um leið og þeir sóttu leiðbeinenda-
námskeið vegna námskeiðs Mary Reigel um
að segja og gera hið rétta við erfiðar aðstæð-
ur á vettvangi. Þeir kynntust störfúm
slökkviliðsins í Fremont og fer stytt frásögn
þeirra af því hér á eftir:
I Fremont búa um 200.000 manns en
slökkviliðið þjónar alls 250.000 íbúum. í
slökkviliði Fremont eru 11 stöðvar, þrír
menn eru í hverri áhöfn en á þremur stöðv-
um eru tvær áhafnir. I hverri áhöfn er einn
varðstjóri og tveir slökkviliðsmenn.
Asamt eldsútköllum sinnir slökkviliðið
sjúkraútköllum á slökkvibílunum en sjúkra-
bílarnir eru reknir af einkaaðila. Þannig
sinnir slökkviliðið sjúkraútköllum á slökkvi-
bílunum en sjúklingurinn er síðan fluttur
með sjúkrabílnum. Slökkviliðsmennirnir eru
allir með sjúkraflutningaréttindi (EMT-
Basic) en að minnsta kosti einn bráðatæknir
(EMT-Paramedic) er í hverri áhöfn. Liðið er
vel útbúið hvað varðar sjúkraþáttinn og er
búnaðurinn alveg eins í öllum dælubílum og
báðum stigabílunum. Starfsmenn eru skráðir
í eitt ár í senn á hverri stöð og geta síðan sótt
um flutning ef þeir vilja. Virtust þeir nokk-
uð ánægðir með þetta fyrirkomulag. Slökkvi-
liðið rekur einnig neyðarlínuna og er hún
staðsett á einni stöðinni.
Eins og fyrr segir er ein viðbótaráhöfn á
þremur stöðvum. Ein þeirra er sérhæfð í eit-
urefnaslysum og hinar tvær eru sérhæfðar á
stigabíl með björgunartækjum. Stöðvarnar
hafa ákveðið hlutverk hver fyrir allt slökkvi-
liðið, svo sem umsjón með sjúkralager og
fatamálum.
Frábærar móttökur
Móttökurnar sem við fengum hjá slökkviliði
Fremont voru vægast sagt frábærar og sama
má segja um allt viðmótið. Chris Huntze
stöðvarstjóri á stöð níu er tengiliður okkar
við slökkviliðið £ Fremont. Hann er frum-
kvöðull að bæði félagastuðningi og sorgar-
stuðningi £ liðinu.
Við fengum að gista á stöð n£u og fórum
með þeim £ útköll. Segja má að persónulegur
aðbúnaður þeirra sé ekki eins góður og við
Hamldur og Chris Huntze stöðvarstjóri sem
var tengiliður þeirra Björns þegar þeir heim-
sóttu liðið í Fremont.
Mary Reigel er höfundur námskeiðsins að segja
oggera hið rétta sem sagt er frá hér á undan.
Slökkviliðið í Fremont þjónar 250þúsund
manna byggð.
Slökkviliðsmaðurinn