Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Síða 15
15
Skoðunarmenn SHS hafa gert jjölmargar athugasemdir sem lúta að brunavörnum á miðbœjarsvœðinu.
Frá sjónarhóli skoðunarmanns
Ljóst var strax í upphafl að um verulega stórt
verkefni væri að ræða og ekki yrði hægt að
fara í það af fullum þunga fyrr en öðrum
verkefnum sem fyrir lágu hefði verið sinnt
þannig að verkefnið komst ekki almennilega í
gang fyrr en um miðjan mars. Auk þess þarf
samhliða Laugavegsátakinu að sinna ýmsum
öðrum tilfallandi verkefnum. Tíminn sem fer
í verkefnið er þó ekki aðalmálið heldur
hvernig muni ganga að fá eigendur til að lag-
færa helstu ágalla.
í framhaldi af Laugavegsátakinu þyrfti að
skoða önnur hverfi gamalla húsa á höfuð-
borgarsvæðinu, t.a.m. í Hafnarfirði, en það
er slökkviliðsstjóra að ákveða hvort og þá
hvenær það yrði gert. Mitt mat á verkefninu
er að um sé að ræða vinnu sem á eftir að skila
sér með færri og smærri brunum ef farið
verður eftir ábendingum okkar og kröfum
verði fylgt eftir.
Áherslur
Við skoðun hefur mest áhersla verið lögð á
eftirfarandi:
• Reykskynjarar — brunaviðvörunarkerfi
• Flóttaleið — a.m.k. tvær greiðar undan-
komuleiðir
• Utljós og aðrar neyðarlýsingar
• Slökkvibúnaður - valinn miðað við efni
og aðstæður
• Brunahólfanir - reykþéttingar
• Klæðningar — sérstaklega gangar og stiga-
hús
• Reyklosun - gluggalaus stigahús o.fl.
• Umgengni og ruslsöfnun bæði inni og úti
• Rafmagn, gas o.fl.
Samskipti við eigendur
Um 80 eigendur fasteigna höfðu samband og
lýstu yfir áhuga á að vera viðstaddir skoðun.
Af þessum hópi á eftir að skoða hjá innan við
tíu aðilum. Þetta fólk hefur verið áhugasamt
um að koma eldvörnum í lag í sínu húsnæði
og reyndar eru eldvarnirnar í sæmilegu lagi
hjá þeim flestum.
Eigendur fyrirtækja við Laugaveg vissu af
þessu átaki fljótlega eftir brunann því starfs-
maður forvarnadeildar mætti á fund hjá
Laugavegssamtökunum og skýrði fundar-
mönnum frá því sem til stæði. Fékk málið já-
kvæðar undirtektir.
Eigendur fasteigna á Laugavegssvæðinu
hafa flestir tekið skoðunarmönnum vel og
sýnt áhuga og skilning á málinu. Vonandi
verður svo áfram. Því miður eru sumar bygg-
ingarnar svo langt frá því að standast kröfur
nútímans að fara þarf krókaleiðir til að bæta
ástandið svo kostnaður við lagfæringar verði
ekki verulegur fjárhagslegur baggi fyrir eig-
endur. Ein lausnin gæti falist í viðvörunar-
kerfi og öruggum flóttaleiðum.
Áberandi er hve margir eru farnir að átta
sig á því að breyta þarf ímynd miðbæjarins
með því að snyrta lóðir og bæta útlit bygg-
inga. Fyrirhugaðar eru breytingar á skipulagi
á nokkrum svæðum og reikna má með því að
einhver af eldri húsunum muni víkja fyrir
nýjum.
Baldur S. Baldursson, verkefnastjóri
hjá forvarnadeild SHS, tók saman.
Stuðst var við áfangaskýrshc
Óskars Þorsteinssonar,
sviðsstjóra hjá forvarnadeild SHS.
G. PALMASON ehf
Funahöfða 12 - Pósthólf 10117 - 130 Reykjavík
Sími 567 4080 - Fax 567 4084 - gpalma@isgatt.is
RAFLAGNIR - BOÐLAGNIR -TÖLVULAGNIR
Brunamálastofnun Skúlagata 21 101 Reykjavík Sími 591 6000 Fax 591 6001 brunamal@brunamal.is www.brunamal.is
»> Skrifstofan er opin virka daga kl. 8-16
Slökkviliðsmaðurinn