Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Blaðsíða 19

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Blaðsíða 19
19 út með Eyjafirði að Árskógsströnd vestan megin og að Grenivík austan megin, inn all- an Eyjafjörð og út fyrir Ljósavatn í austri. - En í raun lítum við svo á að starfssvæð- ið hafi engin mörk. Við erum reiðubúnir að senda mannskap og tæki eins fljótt og auðið er til nágranna okkar á stóru svæði. Við get- um sent mannskap út fyrir starfssvæðið án áhættu og Flugfélag Islands getur flutt menn og búnað frá okkur í raun hvert á land sem er. Við höfum veitt aðstoð vestur í Húnavatnssýslur og austur að Grímsstöð- um. Hér á Akureyri er miðstöð sjúkraflutn- inga fyrir Norðurland. Við sinnum sjúkra- flugi og menntunarmálum fyrir alla flugvelli á landsbyggðinni. Auk þess förum við reglu- lega í sjúkraflug til Grænlands. Svo við erum að starfa á ansi breiðum grunni, segir Erling. Átak í menntun og endurmenntun Hann sér fyrir sér að ýmsar breytingar verði á starfsemi liðsins á næstu árum, ekki síst vegna nýlegra laga um mengunarvarnir. Liðið fékk aukið framlag til menntunarmála á þessu ári og framundan er átak í endur- og símenntun starfsmanna. - Slökkvilið Akureyrar er vel búið og öfl- ugt lið en við þurfum sífellt að vinna í menntun starfsmanna og viðhaldi og end- urnýjun tækjabúnaðar. Við höfum hug á að senda fleiri starfsmenn á neyðarbílsnám- skeið og nám slökkviliðsmanna sem nú er í hendi Brunamálaskólans sem er að taka miklum breytingum. Það er mikill fengur að því fyrir okkur að hafa fengið Sjúkra- flutningaskólann hingað norður og það væri ákjósanlegt ef unnt væri að standa að miklu leyti að námi slökkviliðsmanna hér í héraði einnig. Auk reglulegra verkefna þurfum við að þjálfa starfsmenn til þess að geta starfað á nýju þjónustuborði Neyðarlínunnar sem verið er að vinna í að setja upp á Akureyri. Bregðast við nýjum og auknum skyldum — Lög um brunavarnir leggja okkur skyldur á herðar og við þurfum að bregðast við því. Þetta á einnig við eldvarnaeftirlit og við- brögð við mengunaróhöppum. Við búum ekki að nálægð við önnur öflug slökkvilið eins og stóru Iiðin fyrir sunnan. Við þurfurn því að stilla okkar liði upp þannig að við getum brugðist við nánast hvaða aðstæðum sem er. Við höfum mjög ákveðnar hug- myndir um hvernig við viljum efla viðbúnað vegna mengunaróhappa og teljum að ákjós- anlegast væri að koma upp sameiginlegum viðbúnaði á því sviði fyrir allt Norðurland og standa sameiginlega að búnaðarkaupum og þjálfun slökkviliðsmanna. Og hvað eld- varnaeftirlit snertir er ljóst að við þyrftum að auka þann þátt í starfseminni Einnig þar horfum við mjög til samstarfs við önnur slökkvilið og sveitarfélög, segir Erling. Slökkvi- liðsstjórinn Erling Júlínusson tók við starfi slökkvi- liðsstjóra hjá Slökkviliði Akureyrar í febrúar síðastliðnum. Hann fæddist í Reykjavík 17. ágúst 1964, sonur Júl- ínusar G. Jóhannessonar úrsmiðs og Eddu Kolbrúnar Klemenzdóttur. Kona Erlings er Margrét Ósk Reynisdóttir leikskólakennari. Þau eiga tvær dætur. Erling á föðurætt að rekja til Akureyrar og Eyjafjarðar um marga ættliði. Hann varð húsasmiður 1983 og fékk meistararéttindi síðar. Vann við smíðar og á millilandaskipum en hóf störf hjá Slökkviliði Reykjavíkur 1993. Hann varð stöðvarstjóri hjá Slökkviliði höfuð- borgarsvæðisins þegar það var stofn- að sumarið 2000 með sameiningu Slökkviliðs Reykjavíkur og Slökkviliðs Hafnarfjarðar. Erling var í köfunarflokki Slökkviliðs Reykjavíkur frá upphafi og var jafnframt í landflokki liðsins en hann annast björgun fólks utan alfara- leiða. Hann hefur sótt fjölda nám- skeiða innan lands og utan vegna starfa sinna, meðal annars stjórnunar- nám fyrir slökkviliðsmenn í Sandö í Svíþjóð. Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.