Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Síða 20

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Síða 20
__ 20 Slökkvilið Akureyrar í hnotskurn Sagan: Vísir að Slökkviliði Akureyrar varð til í upphafi 20. aldar eftir endur- tekna stórbruna í bænum. Ragnar Olafsson varð fyrsti slökkviliðsstjórinn árið 1904 og sama ár voru fest kaup á handdæl- um, slöngum og strigafötum. Ari síðar voru sett lög um Slökkvilið Akureyrar. Fyrsti slökkvibíllinn var keyptur 1930. I ársbyrjun 1953 hófust fastar vaktir á slökkvistöðinni sem þá var við Geislagötu 9. Sérstakur eld- varnaeftirlitsmaður var fyrst ráðinn 1974. Slökkvistöðin: Liðið er til húsa í glæsilegri slökkvistöð við Árstíg 2 sem tekin var í notk- un í september 1993. Starfsmenn: Alls 29, þar af eru 24 slökkvi- liðs- og sjúkraflutningamenn á vöktum. I for- varnadeild liðsins eru 2 starfsmenn Slökkviliðsstjóri: Erling Þór Júlínusson. Varaslökkviliðsstjóri: Ingimar Eydal. Yfireldvarnaeftirlitsmaður: Magnús Viðar Arnarsson. Vaktir: Fjórskiptar. Á daginn eru þrír vakt- hafandi á slökkvistöð við Árstíg auk fjögurra dagmanna og tveir á slökkvistöð á Akureyrar- flugvelli. Um nætur eru fjórir á Árstíg og einn á flugvellinum. Slökkvibílar: Forystubíll liðsins er MAN 19- 463, árgerð 1999, með 2.500 lítra vatnstanki og 3.000 lítra dælu. Liðið hefur auk þess yfir að ráða nýlegum MAN 610 dælubíl á Akur- eyrarflugvelli, árgerð 2001. Klippur eru í báðum bílunum. Aðrir bílar: Man 16-192 dælubíll árgerð 1987, sérútbúinn fyrir dreif- býli, Ford F600 dælublll árgerð 1975, MAN 26-321 dælu- og tankbíll árgerð 1984, Ford F750 dælubíll (varabíll) árgerð 1953, Ford F50 þjónustubíll árgerð 2002, Saab bremsu- mælingabíll, Volvo F-720 körfubíll árgerð 1983. Auk þess er væntanlegur þjónustubíll, Nissan Double Cab árg. 2003. Samanlögð dælugeta: 13.700 1/mín. Reykköfúnartæki: Bandarísk af gerðinni Scott. Sjúkrabílar: Þrír Ford Econoline 4x4, ár- gerðir 1993, 1998 og 2000, Volkswagen Syncro árgerð 2002, Ford F350 árgerð 1999. Tveir bílanna eru með stuðtækjum og full- komnum endurlífgunarbúnaði, hinir eru al- mennir flutningsbílar. Búnaður vegna sjúkraflugs: Tvö flugstell og fylgdarbúnaður sem útbúinn hefur verið í sam- vinnu við slysadeild Fjórðungssjúkrahússins. Eldsútköll 2002: 145. Sjúkraflutningar 2002: 1.195, þar af 299 bráðatilfelli. Sjúkraflug 2002: 188, þar af sjö erlendis. Menntun starfsmanna: Nær allir starfsmenn eru með grunnnám sjúkraflutninga, tíu hafa sótt neyðarbílsnámskeið og einn nám í bráðatækni. Allir starfsmenn hafa tilskilda menntun vegna slökkvistarfa. Árlegur rekstrarkostnaður: Um 162 millj- ónir króna. Starfsmenn Slökkviliðs Akureyrar eru 29 talsins en þar af eru 24 slökkviliðs- og sjúkraflumingamenn á vöktum. Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.