Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Blaðsíða 25

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Blaðsíða 25
25 Myndin var tekin þegarjyrsta útskrijiin fórjram ejtir flutning Sjúkraflutningaskólans tilAkureyrar. ans. Skólinn er þegar byrjaður að útskrifa nemendur því í byrjun maí útskrifuðust 42 nemendur sem luku grunnnámskeiði í sjúkra- flutningum sem haldin voru í mars og apríl. Sér til halds og trausts hefur Hildigunnur fjögurra manna stjórn sem skipuð er fulltrú- um FSA, Háskólans á Akureyri, LSS og heil- brigðisráðuneytisins. Sjö manna ráð er skóla- stjóra til faglegrar ráðgjafar en það er skipað fulltrúum Háskólans á Akureyri, Rauða kross fslands, LSS, SHS, Slökkviliðs Akureyrar og Landspítala - háskólasjúkrahúss. Góð aðstaða til kennslu - Ég hef miklar væntingar til starfa fagráðs- ins. Því er ætlað í samvinnu við mig að leggja línurnar um faglegu hliðina en ég held að það sé ljóst að ýmislegt mun breytast í því sam- bandi á næstu árum, segir Hildigunnur. Hún segir að skólinn búi við ágætar að- stæður til kennslu bæði á Akureyri og á höf- uðborgarsvæðinu. Á báðum stöðunum er jafnframt fjöldi fólks sem getur leiðbeint á námskeiðum skólans; sjúkraflutningamenn, læknar og hjúkrunarfræðingar. Skólinn hefur aðgang að kennslumiðstöð SHS í slökkvi- stöðinni á Tunguhálsi og á Akureyri hefur skólinn góða aðstöðu á FSA og hjá Slökkvi- liði Akureyrar. Hildigunnur segir að skólinn muni í æ ríkari mæli nota nútíma fjarskipta- tækni til þess að miðla þekkingu til sjúkra- flutningamanna um allt land auk þess sem reynt verður að bjóða upp á námskeið svæðis- bundið. - Myndfundabúnaður mun vafalaust nýt- ast okkur að einhverju Ieyti til þess að ná til sem flestra sjúkraflutningamanna. Slíkur búnaður er nú fyrir hendi víða um land og við höfum þegar reynslu af því að nota hann. Þessi búnaður nýtist til námskeiðahalds en við getum jafnframt haldið fræðslufundi og staðið fyrir fyrirlestrum með hjálp þessa bún- aðar. Skólinn hefur einnig komið sér upp heimasíðu og ég sé fyrir mér að hún muni gegna mikilvægu hlutverki í framtíðinni. Sem stendur er hún fyrst og fremst upplýs- ingasíða en þegar fram líða stundir verður hún gagnvirk og mun koma að góðum not- um við ýmiss konar nám á vegum skólans. Nám á háskólastigi? — Ég tel að framtíð skólans geti verið björt. Ég fmn fýrir mikilli jákvæðni gagnvart flutn- ingi skólans til Akureyrar og í því felst mikill styrkur fýrir mig og skólann. Við höfum að- gang að stórum hópi hæfra og metnaðarfullra leiðbeinenda og að mínu mati ríkir mikill metnaður í hópi sjúkraflutningamanna. Framundan er vinna við að endurskipuleggja fagmenntun sjúkraflutningamanna. Við þurfum að átta okkur á því hver staða þessar- ar menntunar er nú og spyrja síðan hvað við viljum og hver þörfin er fýrir menntun. Það er Ijóst að staðan er allgóð á stærri stöðunum en sjúkraflutningamenn á smærri stöðum víða um land eiga erfiðara um vik með að sækja nauðsynlega menntun og við ætlum að stuðla að því að bæta aðstöðu þeirra til náms. Það reynir vissulega sjaldnar á menntun sjúkraflutningamanna í hinum dreifðari byggðum en þeir eru engu að síður oft að fást við alvarleg tilvik og þurfa að kunna að fást við þau þegar á reynir og kröfurnar til þeirra eru miklar, segir Hildigunnur. Hún segist jafnvel geta séð fýrir sér að innan fárra ára geti sjúkraflutningamenn sótt fram- haldsnám á háskólastigi hér innanlands. Hóp- ur sjúkraflutningamanna hefur sótt nám í bráðatækni við Center for Emergency Medicin í Pittsburgh í Bandaríkjunum og Hildigunnur segir að það sé alveg inni í myndinni að leita eftir samstarfi við stofnunina þannig að hægt væri að hafa hluta af bráðatækninámi hér á landi svo eitthvað sé nefnt. — Það er verkefni Sjúkraflutningaskólans að þróa nám fýrir sjúkraflutningamenn. Við erum staðráðin í að efla það og möguleikarn- ir á því sviði eru vissulega miklir, segir Hildigunnur. Skóla- stjórinn Hildigunnur Svavarsdóttir hjúkrunar- fræðingur tók við starfi skólastjóra Sjúkraflutningaskólans 1. desember 2002. Hún útskrifaðist sem hjúkrun- arfræðingur frá Háskólanum á Akur- eyri árið 1992 og var því með þeim fyrstu sem útskrifuðust þaðan. Hún starfaði síðan um skeið á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) en 1997 lauk hún masters- námi í hjúkrun í Skotlandi. Að því loknu sneri hún aftur á FSA og frá janúar 2000 var hún verkefnisstjóri fræðslumála innan stofnunarinnar uns hún tók við starfi skólastjóra. Hún er auk þess lektor í hjúkrun við Háskólann á Akureyri. Heimasíða Sjúkraflutningaskólans www.ems.nett.is Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.