Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Qupperneq 26
26
Líflegt vetrarstarf hjá Brunatæknifélaginu
Stjórn félagsins sem kjörin var d aðalfundi í apríl: Guðrún Ólafsdóttir gjaldkeri, Halldór Vilhjálmsson for-
maður, Gunnar Kristjdnsson varaformaður, Björn Ingi Sverrisson ritari og Helgi Ivarsson meðstjómandi.
Hefðbundinni starfsvertíð Brunatæknifélags Is-
lands lauk 4. apríl 2003 með ráðstefnu í tengsl-
um við aðalfund félagsins. A vertíðinni voru
haldnir átta fundir, tveir morgunverðarfundir
og sex síðdegisfundir. Þeir voru sem hér segir:
Aukaaðalfundur félagsins var haldinn í
slökkvistöðinni á Keflavíkurflugvelli 25. októ-
ber 2002. Aðalverkefni fundarins var að fara
yfir lög félagsins og endurskoðaðar tillögur
laganefndar um breytingar á þeim.
Þann 20. nóvember var fundur þar sem þrír
fyrirlesarar létu ljós sitt skína. Bjarni Kjartans-
son, framkvæmdastjóri forvarnadeildar SHS,
ræddi um eldvarnir og reglugerðakúltúrinn í
því starfsumhverfi. Formaður LSS, Vernharð
Guðnason, kynnti Brunavarnaátakið 2002 sem
slökkviliðsmenn hafa staðið fyrir árlega fyrir
jólahátíðirnar nú í mörg ár. Þriðji og síðasti fyr-
irlesari fundarins var Elísabet Pálmadóttir, nýr
skólastjóri Brunamálaskólans, og skýrði hún
fundarmönnum frá framtíðarsýn skólans.
Morgunverðarfundur var haldinn 27. nóv-
ember. Fundarefnið var „Brunavarnir eldri
húsa“. Fimm fyrirlesarar voru á fundinum.
Fyrstur var Dr. Björn Karlsson brunamálastjóri
og ræddi hann um hvernig tekið er á bruna-
vörnum eldri húsa í Svíþjóð, hvernig gerð er
áhættugreining og mögulegar mótvægisaðgerð-
ir. Gunnar Kristjánsson, yfirverkfræðingur hjá
VSI, talaði um vandamálin sem tengjast því að
engar reglugerðir eru til um brunavarnir eldri
húsa. Hvað knýr á um úrbætur - brunatækni-
lega úttekt ásamt tímasettri verkáætlun - eigið
eftirlit fyrirtækja og hvar úrbóta er helst þörf.
Þriðji fyrirlesarinn var Guðmundur Gunnars-
son, arkitekt hjá arkitektur.is ehf., en hann sat
um tíma í húsfriðunarnefnd ríkisins. Hann
talaði um nauðsyn á að tryggja brunavarnir í
friðuðum húsum og nefndi sem dæmi tvær
friðaðar kirkjur sem brunnu og hvernig tekið
var á afleiðingunum. Bjarni Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri forvarnadeildar SHS, fjallaði um
hvað felst í byggingarleyfi og hvað gerist ef
framkvæmdir við byggingar eru hafnar og leyf-
ið er ekki í lagi - hvað er hægt að ganga langt í
að ná fram kröfum slökkviliða. Óskar Þor-
steinsson, sviðsstjóri forvarnadeildar SHS,
ræddi um átak í skoðun húsa við Laugaveginn,
sýndi myndir og gerði grein fyrir framkvæmd
skoðunarinnar og niðurstöðum hennar.
„Hvað býr í loganum?“ var efni fundar
sem haldinn var 11. desember síðastliðinn. Dr.
Björn Karlsson brunamálastjóri talaði um log-
ann og brunaverkfræði hans. Björn fór í stór-
um dráttum yfir eðlisfræði kertalogans og upp-
lýsti að hægt væri að lýsa mjög mörgum
grundvallaratriðum klassískrar eðlis- og efna-
fræði með því að rannsaka kertalogann. Ágúst
Kvaran, kennari við efnafræðiskor Háskóla Is-
lands, flutti fyrirlestur sem hann kallaði “Hvað
býr í loganum?”. Ágúst fór yfir eðlis- og efna-
fræði logans, hreyfiorkuna, mismunandi fasa,
Ijómun, hita og önnur orkuform varðandi log-
ann. Einnig lýsti hann tilraunum og rann-
sóknum sem gerðar hafa verið á loganum.
Á janúarfúndi gaf Guðmundur Gunnars-
son, yfirverkfræðingur Brunamálastofnunar,
yfirlit yfir helstu bruna 2002, samanburð
manntjóna milli ára aftur til 1988 og heildar-
brunatjón hvers árs fyrir sig. Höskuldur Ein-
arsson, stöðvarstjóri hjá SHS, sagði frá verk-
efni slökkviliðsins í brunanum að Fákafeni 9.
Birgir Finnsson, framkæmdastjóri útkallsdeild-
ar SHS, skýrði frá slökkvistarfinu við stór-
brunann að Laugavegi 40 og 40A.
Þann 21. febrúar síðastliðinn var haldinn
fundur í Keflavík. Fjallað var um framtíðar
skipulagsmál á þjónustusvæðinu við flugstöð
Leifs Eiríkssonar og í Reykjanesbæ. Fyrirlesarar
voru Ómar Ingvarsson, yfirmaður flugvallar-
sviðs hjá Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli,
og Viðar Már Aðalsteinsson, forstöðumaður
umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar.
Á morgunverðarfúndi 26. febrúar var rætt
um brunavarnir háhýsa með glerfronta. Fyrsti
fyrirlesarinn var Gunnar Kristjánsson, varafor-
maður BTI. Lýsti hann kröfunum sem gerðar
eru í nágranalöndum okkar, helstu vandamál-
um við hönnun háhýsa, helstu lausnum við
hönnun þeirra og nauðsyn þess að bruna-
tæknileg hönnun sé gerð. Guðmundur Gunn-
arsson, yfirverkfræðingur Brunamálastofnunar,
sagði að engar sérkröfur giltu um háhýsi á Is-
landi og rakti sögu reglugerða síðan 1965,
sýndi myndir og lýsti bruna í háhýsum, meðal
annars í Belgíu og Los Angeles. Benti hann á
oftrú á getu viðbragðsaðila við slíkar aðsæður.
Hrólfur Jónsson, slökkviliðsstjóri SHS, sagði
að fyrirhyggja og undirbúningur væru mjög
mikilvæg, 98 prósent tíma SHS færi í þessi at-
riði en tvö prósent í að bregðast við. Hrólfur
benti á að reglur væru ekki til og hlutverka-
skipting því ekki skýr og tók fyrir helstu
vandamál slökkviliða við eldsvoða í háhýsum.
Inga Hersteinsdóttir, verkfræðingur hjá VSI,
lýsti hver væri skilgreining á háhýsi erlendis og
þeim öryggiskröfum sem gerðar eru í Banda-
ríkjunum. Böðvar Tómasson, verkfræðingur á
VSI, lýsti markmiðum brunahönnunar há-
hýsa, sérstökum vandamálum við það og
lausnum þeirra.
Þann 12. mars var haldinn góður fundur
um brunavarnir í skipum. Fyrirlesarar voru
þrír. Helgi Ivarsson eldvarnafulltrúi viðraði
skoðanir sínar á brunavörnum í skipum og
síðan hélt Þráinn Skúlason, leiðbeinandi Slysa-
varnaskóla sjómanna, fyrirlestur um skólafyrir-
komulagið og öryggi sjómanna. Loks hélt
Björgvin Tómasson frá NORTEK ehf. fyrir-
lestur um brunaviðvörunarkerfi í skipum.
Aðalíúndur félagsins og ráðstefna í tengsl-
um við hann var haldinn 4. apríl. Þema ráð-
stefnunar var „Brunavarnir - eítirlit". Helgi
ívarsson var ráðstefnustjóri en hann undirbjó
°g skipulagði ráðstefuna. Ráðstefnan hófst
með ávarpi umhverfisráðherra, Sifjar Friðleifs-
dóttur, og opnaði hún formlega nýja vefsíðu
félagins, www.brunamal.is/bti. Dr. Björn
Karlsson brunamálastjóri ávarpaði þingið og
gerði grein fyrir endurskoðun byggingalaga.
Inga Hersteinsdóttir verkfræðingur var með
fyrirlestur um eigið eftirlit eigenda og forráða-
manna með brunavörnum í atvinnuhúsnæði.
Trond Dilling, senioringeniör, DBE, fjallaði
um laga- og reglugerðaumhverfið í Noregi.
Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmda-
sýslu ríkisins, lýsti framkvæmda- og hönnun-
areftirliti með byggingum í eigu ríkisins. Pétur
Valdimarsson, eftirlitsmaður hjá Brunamála-
stofnun, kynnti gagnagrunn á eftirlitssviði.
Ólafur Ásmundsson, eldvarnaeftirlitsmaður
hjá slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli, lýsti að-
ferðum liðsins við að ná árangri í brunavörn-
um. Síðastur var byggingafulltrúinn í Hafnar-
firði, Erlendur Arni Hjálmarsson. Hann fór
yfir þátt byggingafulltrúa í úttektum og eftir-
liti er varðar brunavarnir.
Slökkviliðsmaðurinn