Fréttablaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 1 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 1 . M A Í 2 0 2 0 Hágæða harðparket í miklu úrvali Harðparket er með einstaklega sterkt yfirborð sem býður upp á mikinn umgang og viðhaldið er svo til ekkert, svo er það líka fallegt! Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • parki@parki.is • 595 0570 VIÐSKIPTI Ásgeir Jónsson seðla- bankastjóri segir ekki víst að aukin skuldsetning muni leysa vanda fyr- irtækja sem hafa orðið fyrir veru- legu tekjutapi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Mikilvægt sé að fyrirtæki semji fyrst við kröfuhafa áður en þau leiti á náðir ríkissjóðs. „Brúarlánin og að einhverju leyti stuðningslánin eru einn valmögu- leikinn sem fyrirtækjum stendur til boða við endurskipulagningu en ég held að stór hluti af vandamálum þeirra verði ekki leystur með frek- ari lánum,“ segir Ásgeir. Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu- maður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, segir nýja spá Seðla- bankans „í bjartsýnni kantinum“. Það komi á óvart að bankinn geri ekki ráð fyrir meiri samdrætti í fjár- festingu í ár. – hae, kij / sjá síðu 10  Aukin lántaka sé ekki lausnin Hlauparar sem kjósa umferðarnið fremur en félagsskap geta farið að fordæmi mannsins sem skokkaði einn síns liðs frá Hafnarfirði til Kef lavíkur í súldinni síðdegis í gær. Spáð er 6 til 12 stiga hita á höfuðborgarsvæðinu á morgun og skúrum en ágætu útivistarveðri sunnanlands um helgina. Norðlendingar munu þurfa að bíða eftir sólinni fram yfir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FERÐAÞJÓNUSTA Fyrstu hóppant- anirnar erlendis frá, eftir að kórón- uveirufaraldurinn byrjaði að geisa, hafa borist til Ferðafélags Íslands. Tveir þýskir hópar pöntuðu í vik- unni ferðir og gistingu í skálum félagsins í ágúst og greiddu þær upp að fullu. „Þetta eru tveir litlir hópar en vissulega mjög ánægjuleg tíð- indi,“ staðfestir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélagsins. Skálar félagsins á hálendinu opna fyrir gistingu í lok júní og segir Páll að síðustu mánuðir hafi verið sér- stakir. „Óvissan hefur verið mikil en það sem hefur komið okkur á óvart er að mjög lítið hefur verið um af bókað skálapláss í sumar. Fólk hefur haldið að sér höndum, Íslendingar og útlendingar. Það bendir til þess að erlendir ferða- menn hafi haldið í vonina um að geta heimsótt landið þrátt fyrir allt og ekki viljað slá ferðina til Íslands út af borðinu,” segir Páll. Hann segist hafa orðið var við mikinn áhuga Íslendinga á ferðum upp á hálendið. Það skapi þó ákveð- in vandræði því að ekki sé hægt að selja þeim gistingu sem þegar hefur verið bókuð af útlendingum. „Við verðum heldur betur vör við það að Íslendingar ætla að ferðast innanlands í sumar. Það er mikið um fyrirspurnir og síðustu misseri hafa um 200 nýir félagsmenn gengið í Ferðafélag Íslands. Núna eru meðlimir orðnir um tíu þúsund talsins “ segir Páll. – bþ Bókanir glæðast á ný Fyrstu erlendu hóparnir hafa pantað ferðir hjá Ferðafélagi Íslands. Hóparnir greiddu ferðir í ágúst að fullu. Framkvæmdastjóri er bjartsýnn fyrir sumarið. Mjög lítið hefur verið um afbókað skálapláss. Páll Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Ferðafélags Íslands FÓTBOLTI Félög í Pespi-Max deild karla gera ráð fyrir tapi upp á 447 milljónir króna í ár, eða meðaltekju- tapi um 21 prósent vegna COVID-19 faraldursins. Í skýrslu sem Deloitte gerði í samvinnu við KSÍ. Einn- ig kemur fram að tap í efstu deild var 68 milljónir króna á síðasta ári. Gert er ráð fyrir að heildartekjurnar verði rúmir tveir milljarðar en útgjöldin um 2,5 milljarðar. Barna- og unglingamót skila knattspyrnudeildunum miklum tekjum. Þannig fengu Blikar um 110 milljónir í tekjur fyrir sín mót. – bb / sjá síðu 26 Gera ráð fyrir að tapa hálfum milljarði króna Tap félagsliða í efstu deild karla nam 68 millj- ónum króna á síðasta ári.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.