Fréttablaðið - 21.05.2020, Side 28

Fréttablaðið - 21.05.2020, Side 28
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Kærar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Auðar Lindu Zebitz Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hrafnistu Mánateig fyrir góða umönnun. Ólafur Kristinsson Ásta Ólafsdóttir Kristinn Guðni Ólafsson Ingunn Ingimarsdóttir Guðrún Ólafsdóttir Erlingur Bótólfsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Björnsdóttir Hraunbæ 77, lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 16. maí síðastliðinn. Útför hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 27. maí 2020 kl. 13.00. Haukur Jóhannesson Sif Jónasdóttir Björn Hákon Jóhannesson Rannveig Gunnarsdóttir Pétur Jóhannesson Gróa Gunnarsdóttir Hrönn Jóhannesdóttir Gunnar Líkafrón Benediktsson Guðmundur Bjarki Jóhannesson Hilmir Bjarki Jóhannesson Íris Rögnvaldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín, Ingibjörg Ólafsdóttir Breiðvangi 3, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 18. maí. Útförin auglýst síðar. Ólafur Björnsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Marín Kristjánsdóttir áður til heimilis að Neðstutröð 8 í Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ 2. maí sl. Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 26. maí kl. 13.00. Katrín G. Torfadóttir Bragi Jónsson Kristján G. Torfason Bára Benediktsdóttir Björn Torfason Soffía Guðjónsdóttir Gunnar Torfason Gauti Torfason Kristín Birna Angantýsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ragnheiður Þórðardóttir Básbryggju 51, Reykjavík, lést föstudaginn 15. maí. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudaginn 25. maí klukkan 15.00. Magnús Hjálmarsson Halldóra Magnúsdóttir Lára Magnúsardóttir Grímur Jónsson Svana Björk Hjartardóttir Magnús Helgason Anna Bryndís Gunnlaugsdóttir Helgi Helgason Solveig Karlsdóttir Adam Hoffritz Þórður Roth Íris Katrín Barkardóttir Karl Dietrich Roth Karlsson og barnabarnabörn. Þetta hafðist,“ sagði Krist-mundur Dagsson, verktaki á Egilsstöðum, eftir að hafa náð þeim áfanga á þremur dögum að ryðja veginn milli Héraðs og Mjóafjarðar sem hafði verið lokaður síðan í byrjun desember. Hann veit ekki nákvæmlega hversu leiðin var löng en giskar á sjö til tíu kílómetra. „Ég fór um tvo kílómetra í gær og komst eiginlega þá yfir það versta, snjórinn var víða fjórir og hálfur til fimm metrar á þykkt.“ Kristmundur vinnur hjá sjálfum sér og á hjólaskófluna sem ber snjóblásar- ann en sá er í eigu Vegagerðarinnar. „Ég sé um að moka Vatnsskarðið yfir á Borg- arfjörð eystri yfir veturinn og hef vélina þar en sótti hana í þetta verkefni,“ segir hann og kveðst hafa sinnt því nokkrum sinnum áður enda viti hann nokkurn veginn hvernig landið liggi. „Svo er það spurning um að finna veg. Stikurnar ná ekki upp úr fönninni nema á stöku stað svo þetta snýst um að þreifa fyrir sér og giska.“ Snjórinn er niðurbarinn og Krist- mundur kveðst skafa hann niður. „Ég tek hann í lögum, svona eins og hálfs metra þykkt í einu, þannig að þetta er tímafrekt þó það hafi gengið ágætlega. Það hefur verið skínandi veður, sólskin en kalt. Ég bara sest inn í vélina þegar ég byrja og er þar þangað til ég kem heim, nenni ekkert að taka matar-eða kaffi- tíma, borða bara samlokuna meðan ég er að vinna. Nota tímann.“  Skyldi hann hafa séð eitthvað kvikt í náttúrunni, kom krummi kannski að taka út fram- kvæmdina? „Nei, ég hef ekkert séð krumma núna, er hann þó vanur koma þegar maður er einhvers staðar á heið- um. En ég hef séð nokkra smáfugla og margar nýlegar hreindýraslóðir.“ Bílstjórar sjá víða skammt fram fyrir sig í snjógöngunum sem Kristmundur var að gera og geta lent í að þurfa að bakka dálítið á næsta útskot, að hans sögn. „Kosturinn er sá að það eru ekki margir á ferðinni. Ef laust fagna Mjó- firðingar samt opnuninni, hún er mán- uði seinna en í fyrra.“ Nú á hann eftir að breikka alla leiðina. „Hún er bara ein breidd núna með smá útskotum, þann- ig að hægt sé að víkja annað slagið. Það tekur svona tvo daga að breikka veginn þar sem hægt er, býst ég við,“ lýsir hann. „Snjódýptin er auðvitað sú sama og í fyrri umferðinni en nú þarf ég ekki að leita að veginum.“ gun@frettabladid.is Spurning um að finna veg Viss tímamót á þessu vori urðu í gær þegar verktakinn Kristmundur Dagsson náði að opna veginn til Mjóafjarðar eftir veturinn. Það var um mánuði seinna en í fyrra. Þessi mynd var tekin 19. maí. Þarna er Kristmundur kominn í gegnum það versta og sér niður í Mjóafjörð. MYNDIR/ARI Eina myndin sem náðist af Kristmundi sem leit undan um leið og hann sá í hvað stefndi!  Merkisatburðir 1502 - Portúgalar uppgötva eyjuna Sankti Helenu. 1904 Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) er stofnað í París. 1927 Charles Lindbergh lendir flugvél sinni á Le Bourget- flugvelli við París og er þar með fyrstur til að fljúga einn yfir Atlantshaf. 1983 Safn Ásmundar Sveins- sonar er formlega opnað við Sigtún í Reykjavík. 1991 Rajiv Gandhi, fyrr- verandi forsætisráðherra Ind- lands, er skotinn til bana. 1994 Sturla Friðriksson leggur til að Íslendingar velji holtasóley sem þjóðarblóm. Ég bara sest inn í vélina þegar ég byrja og er þar þangað til ég kem heim, nenni ekkert að taka matar- eða kaffitíma, borða bara samlokuna meðan ég er að vinna. Nota tímann. 2 1 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.