Fréttablaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 40
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 GRILL- MATURINN ELSKAR Gleðilegt sumar! COLLAB ÁSTARALDIN & LÍMÓNU 330 ML 249 KR/STK 756 KR/L Thomasar Möller BAKÞANKAR COVID hefur kennt okkur ýmislegt. Meðal annars að kunna betur að meta litlu málin. Eins og að fara á kaffihús, spjalla saman, að fá að knúsa okkar nánustu aftur og fara í sund. En við getum líka lært að meta betur það sem er í nærumhverfinu okkar. Hér á landi getum við aukið hlut nærumhverfisins í neyslu okkar. Við getum til dæmis knúið alla bíla landsins með eigin orku … „Búrfellsbensíni“. Um 80% af græn- meti er innf lutt. Við getum hæglega framleitt þetta allt hér á landi með lækkun raforkuverðs til græn- metisbænda. Þurfum við endilega að borða paprikur sem eru komnar þrettán þúsund kílómetra frá Chile eða tómata sem hafa ferðast á Sagaclass frá Californíu? Alifuglabú landsins gætu fram- leitt alla innanlandsþörfina með hreinasta fuglakjöti í heimi. Svo getum við hætt að senda offram- leiðslu á kindakjöti með f lugi til Kína og borðað það heima! Víða í Evrópu hreykja veitinga- staðir sér af því að bjóða hráefni úr nærumhverfinu. Í stórborgum er verið að setja upp grænmetis- framleiðslu í gámum, á húsþökum, í görðum og jafnvel í tómum bílastæðahúsum. Þannig minnka f lutningar og varan er ferskari. Fólk um heim allan er líka hvatt til að ferðast minna til fjarlægra landa og meira innanlands. Við þurfum ekki að fara til Víetnams til að spila golf eða til Balí á baðströnd. Um allan heim eru fyrirtæki að stytta aðfangakeðjuna sem leiðir til þess að vörur og íhlutir í framleiðslu verða í auknum mæli framleiddar innanlands. Í COVID-ástandinu þurftu margar verksmiðjur að loka vegna hluta sem stöðvuðust á leið sinni um heiminn og voru fram- leiddir á fjarlægum stöðum. Lítum okkur nær. Snúum okkur að nærumhverfinu okkar hvað varðar orku, mat, ferðalög og … knús! Nærandi nærumhverfi BÆTTU HLAUPASTÍLINN Meiri árangur, meiri gleði HLAUPAGREINING NÝTT!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.