Fréttablaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 4
Við erum að sýna fólki virðingu sem er í sérstaklega erfiðri stöðu og er jaðarsettast af öllum íbúum samfélagsins. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra JEEP® GRAND CHEROKEE UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 VERÐ FRÁ: 11.290.000 KR. • 3.0 V6 250 HÖ. DÍSEL, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING • 570 NM TOG • HÁTT OG LÁGT DRIF • RAFDRIFIN LÆSING Í AFTURDRIFI • LOFTPÚÐAFJÖÐRUN AÐ FRAMAN OG AFTAN • HLÍFÐARPLÖTUR UNDIR VÉL, KÖSSUM OG SKIPTINGU • BI-XENON LED FRAMLJÓS MEÐ ÞVOTTAKERFI • RAFDRIFIN OPNUN Á AFTURHLERA • ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI • BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ • FJARLÆGÐASKYNJARAR AÐ FRAMAN OG AFTAN • BLINDHORNSVÖRN STAÐALBÚNAÐUR M.A.: Á ALVÖRU JEPPA MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIFI FERÐASTU UM ÍSLANDALLT BÍLL Á MYND: JEEP® GRAND CHEROKEE OVERLAND 33” BREYTTUR jeep.is HEILBRIGÐISMÁL Svandís Svavars­ dóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti í gær ákvörðun sína um að veita sex milljón króna styrk til Frú Ragn­ heiðar, skaðaminnkunarverkefnis Rauða krossins. Styrkurinn kemur til viðbótar við níu milljóna styrk sem verkefninu var veittur þegar styrkjum var úthlutað til félagasam­ taka sem starfa að heilbrigðismálum fyrr á þessu ári. Frú Ragnheiður er sjálf boða­ liðaverkefni sem býður fólki sem notar vímuefni í æð upp á skaða­ minnkandi þjónustu, svo sem nýjar nálar, ásamt því að veita heilbrigðis­ þjónustu. Þjónustan er veitt í sérút­ búnum bíl sem er á ferðinni um höfuðborgarsvæðið sex kvöld í viku. Í svari Rauða krossins við fyrir­ spurn Fréttablaðsins segir Bryn­ hildur Bolladóttir, upplýsingafull­ trúi Rauða krossins, að styrkurinn sé afar mikilvægur til að halda verk­ efninu gangandi en að enn vanti mikið upp á. „Styrkur sem þessi aðstoðar okkur auðvitað við að halda verkefninu áfram en það vantar enn töluvert fjármagn til þess að halda verkefn­ inu úti. Fjárþörfin er mjög mikil,“ segir Brynhildur. Rauði krossinn heldur úti skaða­ minnkunarverkefnum ekki aðeins á höfuðborgarsvæðinu heldur einnig á Akureyri og er stefnt á að fara af stað með álíka verkefni á Suðurnesjum. „Það er ljóst að þörfin fyrir skaða­ minnkunarverkefni er mikil og það er ábyrgðarhlutverk að halda úti sam­ felldri þjónustu,“ segir Brynhildur. Frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á hafa áherslur Frú Ragnheiðar breyst að mörgu leyti þrátt fyrir að markmiðið með þjónustunni sé enn hið sama, að ná til jaðarsettra hópa í samfélaginu og bjóða þeim skaðaminnkandi þjónustu í formi heilbrigðisþjónustu og nálaskipti­ þjónustu. Með tilkomu faraldursins var lögð aukin áhersla á að koma upplýsingum um COVID­19 til þess hóps sem þangað leitar. Breyttar áherslur verkefnisins og upplýsingagjöf hefur gengið vel samkvæmt Brynhildi og ekki hefur komið upp smit í skjólstæðinga­ hópi Frú Ragnheiðar. „Margir okkar skjólstæðinga hafa ekki tækifæri til að fylgjast með fréttum enda um 65 prósent þeirra heimilislausir og því gríðarlega mikilvægt að koma til dæmis upplýsingum um smitvarnir til þeirra,“ bætir hún við. Þá segir hún faraldurinn hafa haft gríðarleg áhrif á bæði starfið og skjólstæðinga verkefnisins. „Það er minna af efnum í umferð og þau eru dýrari og erfiðara að nálgast þau. Þá hefur ofbeldi aukist,“ segir Bryn­ hildur. Vel hefur gengið að halda starf­ seminni gangandi þrátt fyrir far­ aldurinn og einungis hefur ein vakt dottið út frá því að samkomubann var sett á. „Helsta breytingin var kannski f lóknara verklag og slíkt en verkefnið er auðvitað ekkert annað en skjólstæðingarnir svo að erfiðleikar sem þeir glíma við birtast okkur mjög greinilega.“ birnadrofn@frettabladid.is Frú Ragnheiður fær aukið fé Heilbrigðisráðherra veitti í gær Frú Ragnheiði sex milljóna styrk til verkefnisins. Enn vantar mikið fjár- magn til að halda verkefninu gangandi. COVID-19 hefur orsakað skort á efnum og ofbeldi hefur aukist. COVID-19 hefur haft mikil áhrif á starfið og margir skjólstæðingar óupplýstir um smitvarnir. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Það er minna af efnum í umferð og þau eru dýrari og erfiðara að nálgast þau. Þá hefur ofbeldi aukist. Brynhildur Bolla- dóttir, upplýs- ingafulltrúi Rauða krossins. HEILBRIGÐISMÁL Frumvarp heil­ brigðisráðherra um neyslurými varð að lögum á Alþingi í gær. Með lögunum er sveitarfélögum heimilað að koma á fót vernduðu umhverfi þar sem einstaklingar geta neytt ávana­ og fíkniefna í æð undir eftirliti starfsfólks þar sem gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingavarna. Markmið laganna er að auka lífsgæði og bæta heilsu­ far þeirra sem neyta ávana­ og fíkniefna í æð og draga úr neyslu slíkra efna utandyra á almanna­ færi. „Við erum með þessu móti að bjarga mannslífum. Við erum að sýna fólki virðingu sem er í sér­ staklega erfiðri stöðu og er jaðar­ settast af öllum íbúum samfélags­ ins og gríðarlega mikilvægt að við mætum því þar sem það er statt,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heil­ brigðisráðherra þegar greidd voru atkvæði um málið á Alþingi. – aá Samþykkja lög um neyslurými Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra þakkaði þingheimi í gær. REYK JAVÍK Framk væmdir eru hafnar við frágang og innrétt­ ingar á funda­ og vinnuaðstöðu f y rir nemendur Háskólans í Reykjavík í náðhúsinu svokallaða sem er viðbygging við braggann sem stendur við Nauthólsvík. Er gert ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið í haust og muni kosta 18 milljónir króna. Bygg ing ar full trú inn í Reykja vík hef ur samþykkt breyt ing ar á hús­ inu frá áður út gefn um aðal upp­ drátt um Arki búll unn ar, sem voru samþykktar árið 2018. Náðhúsið er ein þriggja bygginga við braggann sem að loknum framkvæmdum verður hluti af frumkvöðlasetrinu Seres. Verður þar 55 fermetra opið skrif stofu­ og kynn ing ar rými fyrir 16 til 20 manns. „Nokkrar breytingar hafa verið gerðar frá fyrri hönnun á vegum háskólans og mun háskólinn bera kostnað af endurhönnun, frágangi og innréttingum,“ segir í svari HR við fyrirspurn Fréttablaðsins. Framkvæmdum var hætt haustið 2018 eftir að í ljós kom að kostn­ aður hafði farið langt fram úr fjár­ heimildum, höfðu framkvæmdirn­ ar þá kostað 415 milljónir króna. Bar HR og borginni ekki saman um hvort búið væri að af henda skólanum náðhúsið. „Þegar bragga­ málið kom upp sögðum við að það kæmi ekki til greina að setja meira fé í þessar byggingar og það hefur gengið eftir,“ segir Dóra Björt Guð­ jónsdóttir, oddviti Pírata í Reykja­ vík. „Braggamálið er dæmi um erf­ itt mál sem kom upp og var tekið á af auðmýkt og ábyrgð, ekki yfirhylmingu og afneitun. Við umturnuðum öllu stjórnkerfinu í kjölfar braggamálsins og styrktum eftirlit.“ – ab Kostar 18 milljónir að klára viðbyggingu braggans Bragginn í Nauthólsvík hefur kost- að skildinginn.FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 1 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.