Fréttablaðið - 21.05.2020, Page 31
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
m
yn
d-
o
g
te
xt
ab
re
ng
.
GENGIÐ
FRYSTUM
Reykjavík
Krókhálsi 9
Sími: 590 2020
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opið
Virka daga 9–18
Laugardaga 12–16
Opið
Virka daga 12–17opel.is
Frábær ferðafélagi!
Opel Grandland X - sjálfskiptur
Verð frá 4.490.000 kr. Takmarkað magn
Bílabúð Benna hækkar ekki verð
Aðalfundur BGS
verður haldinn fimmtudaginn 4. júní n.k.
kl. 15:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, Reykjavík
Fundarsalur: Hylur, 1. hæð
Nánari dagskrá og skráning verður auglýst
á heimasíðu félagsins www.bgs.is
Við skorum á félagsmenn að mæta!
Stjórn Bílgreinasambandsins
Dagskrá:
- Venjubundin aðalfundarstörf
- Áhugaverður gestafyrirlesari
- Í lok fundar verður boðið upp á léttar veitingar
BÍLAR
Benedikt Bjarnason er einn þeirra sem notar mótorhjólið sitt dag-lega eins og flestir nota bíla sína. Hann reyndi að fá endurgreidda
viðgerð á mótorhjóli sínu í vikunni
gegnum átakið „allir vinna“ en fékk
höfnun hjá Ríkisskattstjóra. „Þetta
snýst ekki um að fá endurgreiddar
þessar 8.000 krónur fyrir mig til eða
frá. Þetta snýst miklu frekar um að
þarna er verið að útiloka hóp og þá
einnig alla þá sem gera við mótor-
hjól frá þessari leið stjórnvalda,“
sagði Benedikt.
Benedikt hringdi í Ríkisskatt-
stjóra og fékk þau svör að þetta
næði ekki til mótorhjóla. „Ég hlýt að
hafa misskilið allt saman. Ég þurfti
greinilega ekkert að læra umferðar-
lögin. Ég tilheyri ekki umferðinni,“
sagði Benedikt í stöðufærslu sinni á
Facebook. Benedikt notar mótor-
hjól sitt til og frá vinnu og er það í
raun og veru hans eina farartæki.
„Ég nota mótorhjólið sem mitt eina
ökutæki í allavega átta mánuði á
ári á hverjum degi. Við fjölskyldan
erum þess vegna bara með einn bíl
og ég fæ því far hjá konunni yfir
vetrarmánuðina.“ Benedikt var ekki
alveg sáttur við þessi svör og vildi
gjarnan heyra rökin.
Blaðamaður Fréttablaðsins hafði
samband við Ríkisskattstjóra og
fékk þau svör að verið væri að vinna
eftir orðalagi breytingartillögu laga
um virðisaukaskatt, en þar stendur:
„Á tímabilinu frá 1. mars 2020 til og
með 31. desember 2020 skal endur-
greiða einstaklingum utan rekstrar
100% þess virðisaukaskatts sem
þeir hafa greitt af vinnu manna sem
unnin er innan þess tímabils vegna
bílaviðgerðar, bílamálningar eða
bílaréttingar fólksbifreiða. Skilyrði
endurgreiðslu er að fólksbifreið sé
í eigu umsækjanda og að fjárhæð
vinnuliðar sé að lágmarki 25.000 kr.
án virðis auka skatts. Endurgreiðsla
eftir ákvæði þessu skal innt af hendi
á grundvelli framlagðra reikninga
eins fljótt og auðið er, þó aldrei síðar
en 90 dögum eftir að skattinum
barst erindið.“ Starfsmaður Ríkis-
skattstjóra sagði að verið væri að
vinna eftir orðalagi greinarinnar
sem alltaf er túlkað þröngt, og þar
sem aðeins er talað um bíla í grein-
inni fæst ekki endurgreiðsla fyrir
mótorhjól.
Að mati Benedikts ættu lögin
að ná til allra skráðra ökutækja til
einkanota en ekki bara fólksbif-
reiða. „Var einhver nefndarmaður
smeykur um að ég myndi umturna
hjólinu mínu á kostnað skattborg-
ara? Hvað ef ég á Skoda Favorit og
læt sprauta hann í kanadísku fána-
litunum? Sprautun á fólksbíl virð-
ist vera í lagi, en ekki ef ég læt laga
bilaða leiðslu frá rafgeymi í mótor-
hjólinu,“ sagði Benedikt að lokum.
njall@frettabladid.is
Allir vinna – nema mótorhjól
Fær ekki endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna viðgerðar á
mótor hjóli eins og eigendur bíla fá gegnum átakið „Allir vinna“
Benedikt Bjarnason við Triumph-mótorhjól sitt sem hann notar daglega sem ökutæki nr. 1. MYND/ERNIR
Ný tengiltvinnútfærsla af Mercedes-Benz GLC er komin aftur á markað hér á
landi eftir að hafa ekki verið fáanleg
frá árinu 2018.
,,Það hefur verið mikil eftirspurn
eftir þessum vinsæla sportjeppa í
tengiltvinnútfærslu. GLC var mest
seldi bíllinn hjá Öskju á árunum
2017 og 2018 en var ekki fáanlegur
í tengiltvinnútfærslu á síðasta ári
þar sem Mercedes-Benz náði ekki
að anna eftirspurn eftir bílnum. Við
fengum bílinn aftur í byrjun þessa
árs og greinilegt að margir hafa
beðið eftir þessum bíl og margir eru
spenntir,“ segir Ágúst Hallvarðsson,
sölustjóri Mercedes-Benz. Saman-
lagt skilar tengiltvinnvélin í GLC
320 hestöflum í gegnum níu þrepa
sjálfsk ipting una 9G -TRONIC .
Raf hlaðan er stærri en áður og er
drægið nú allt að 50 km á hreinu
rafmagni samkvæmt WLTP-staðli.
Mikill áhugi á tengiltvinnbílum
Í nýjum GLC er nýr og stór 10,25”
háskerpuskjár með MBUX-marg-
miðlunarkerfi sem hægt er að
stjórna bæði með snertingu og
rödd. „Rafmögnuð EQ-lína Merce-
des-Benz er mjög spennandi og við
finnum það hjá okkar viðskipta-
vinum að áhuginn er mikill. Nánast
allir bílar frá Mercedes-Benz eru
núna fáanlegir í tengiltvinnútfærslu
en GLC og GLE eru þar vinsælastir.
Þá hefur Mercedes-Benz EQC verið
mjög vinsæll en hann er 100% raf-
bíll. GLE og EQC eru hæstir í sölu hjá
okkur núna en GLC í tengiltvinn-
útgáfu mun nú sækja á þá í topp-
slagnum þar sem hann er kominn
aftur til okkar,“ segir Ágúst.
Mercedes-Benz GLC fáanlegur
í tengiltvinnútfærslu aftur
Talsvert hefur verið beðið eftir
tengiltvinnútfærslu Benz GLC.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F I M M T U D A G U R 2 1 . M A Í 2 0 2 0