Fréttablaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 29
Curaprox – tannvörur sem
tannlæknar mæla með
Hluti af því að viðhalda góðri almennri heilsu er að huga vel að tannheilsunni. Þótt
ótrúlegt megi virðast þá getur slæmt viðhald tannanna og gómsins haft slæm áhrif
á allan líkama okkar. Þannig geta bakteríur sem hvíla í munninum komist í gegnum
bólgið tannholdið inn í blóðrásina og þaðan borist til ólíkra líffæra líkamans og haft
skaðleg áhrif á hjarta- og æðakerfi, lungun, heilann og ónæmiskerfið í heild sinni.
Góð tannheilsa er því grunnþáttur heilsu okkar.
Tannvörurnar frá Curaprox hafa
verið í þróun í hartnær 50 ár
og eru viðurkenndar af tann-
læknum og tannfræðingum um
heim allan.
Curaprox framleiðir tannbursta,
tannkrem, tannþræði, munn-
skol, millitannabursta og aðrar
tannvörur í algjörum sérflokki.
Þannig skapar fyrirtækið sér
einstakan sess á markaði með
háþróuðum tannvörum sem
tryggja hámarksárangur við
notkun, tannheilsu þinni til
bóta.
Curaprox er líklega þekktast
fyrir litríku tannburstana sína,
og framleiðir fyrirtækið tann-
bursta bæði fyrir börn og full-
orðna.
Curaprox tannburstarnir hafa
læknisfræðilegt samþykki um
allan heim. Efnin og hráefnin
sem notað er í tannburstana
uppfylla ströngustu kröfur um
gæði og öryggi.
Tannburstarnir innihalda engin
efni sem eru skaðleg heilsunni.
Enn fremur er hægt að endur-
vinna plasthlutana auðveldlega
og án vandræða.
Tannburstahárin eru mjög fíngerð, svo fíngerð að ekki er hægt að kalla þau burstahár
heldur þræði. Þræðirnir á Curaprox tannburstunum eru gerðar úr Curen® þráðum,
efni sem frásogar í sig lítið sem ekkert vatn og heldur því þannig stífleika sínum. Stærsti
kosturinn við að þræðirnir frásogi í sig lítið sem ekkert vatn er sá að þá safnast minni
bakteríur fyrir í þráðunum. Efnið í þráðunum er talsvert fínna og stífara en í hefð-
bundnum nælonhárum.
Aðrir mikilvægir eiginleikar Curen® þráðanna á tannburstunum er fjöldi þráðanna á
burstahausnum, þvermál þeirra og áferðin – þau eru þynnri en önnur hár en sama tíma
stífari og hafa ávala lögun.
Curen® þræðirnir eru einnig endurvinnanlegir.
Curaprox tannvörurnar fást í flestum apótekum og matvöruverslunum. Einnig finnur þú vinsælustu Curaprox vörurnar í H Verslun.
CS5460
Ultra soft
tannburstinn
hefur 5460
Curen® þræði
og hentar full-
orðnum.
CS3960
Super soft
tannburstinn
hefur 3960
Curen® þræði
og hentar full-
orðnum.
CS1560
Soft
tannburstinn
hefur 1560
Curen® þræði
og hentar full-
orðnum.
CS Smart
tannburstinn
hefur 7600 Cu-
ren® þræði og
hentar börnum
frá 5-10 ára.
CS Curakid
tannburstinn
hefur 4260
Curen® þræði
og hentar
börnum frá 0-5
ára.
Þegar kemur að tönnun-
um og gómnum er mikil-
vægt að koma upp dag-
legri rútínu með það að leiðarljósi
að skapa hollar og góðar venjur
sem hjálpa okkur að viðhalda, eins
og áður segir, góðri tannheilsu. Í
því felst að sjálfsögðu að tann-
bursta, nota tannþráð og velja
réttu vörurnar sem hjálpa okkur
að verja tennurnar á sama tíma og
þær vernda tannholdið.“
Særós Ester Leifsdóttir,
viðskiptastjóri hjá Icepharma
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 3 . M A Í 2 0 2 0