Fréttablaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 104
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Óttars
Guðmundssonar
BAKÞANKAR
Laugarásvegur 1
Pantaðu á skubb.is
OG FÁÐU HEIMSENT
Ég hef á langri ævi kynnst fjöl-mörgum alþingismönnum úr öllum stéttum og f lokkum,
á mismunandi aldri og af báðum
kynjum. Þeir hafa verið ólíkir um
margt en eitt er þeim öllum sam-
eiginlegt: Að vilja halda í þing-
sætið sitt hvað sem það kostar.
Raunir Egils Skallagrímssonar
í Sona torreki eru sem gaman-
kvæði miðað við harmakvein
þingmanns sem missir þingsæti
sitt í kosningum. Stærstur hluti
þingmanna gefur alltaf kost á sér
til endurkjörs.
Ég hélt að þingmenn væru svona
þaulsetnir vegna þess að þingið
væri skemmtilegur og lifandi
vinnustaður þar sem fólk fengi að
njóta sín landi og þjóð til heilla.
Skoðanakönnun sem birt var á
dögunum sýnir að svo er alls ekki.
Þingmenn kvarta undan einelti,
kynbundnu of beldi, kulnun,
fjölskylduofsóknum og almennu
aðkasti. Bæði innan þings og utan
þurfa þjóðkjörnir fulltrúar okkar
að berjast fyrir velferð og tilveru
sinni. Mig rak í rogastans þegar
ég heyrði þessi ósköp og fylltist
þakklæti gagnvart þessu fórnfúsa
fólki. Það er kraftaverk að okkur
skuli takast í hverjum kosningum
að fylla þingsalinn af gáfuðu og
frambærilegu fólki miðað við þessi
starfsskilyrði. Gamalt máltæki
leitar á hugann: Þangað leitar
klárinn sem hann er kvaldastur.
Þjóðin verður að bregðast við.
Hækka kaup þingmanna og bæta
við aðstoðarmönnum til að dreifa
álaginu. Þingmenn eiga að hafa
ókeypis aðgang að áfallahjálp, sál-
fræðimeðferð, geðlyfjum, iðju- og
sjúkraþjálfun, spámönnum, einka-
þjálfurum og prestum. Mestu
skiptir þó að þjóðin læri að meta
þessar fórnfúsu hetjur og fórnar-
lömb við Austurvöll sem stunda
vinnu sína af alúð og samvisku-
semi þrátt fyrir ofsóknir og einelti.
Vanmetnir
þingmenn
Verslun opin 11-19 alla daga - IKEA.is
Veitingastaður er tímabundið lokaður
©
Inter IKEA System
s B.V. 2020
BÆTTU HLAUPASTÍLINN
Meiri árangur, meiri gleði
HLAUPAGREINING
NÝTT!