Fréttablaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 42
Verkefnisstjóri Miðstöðvar útivistar og útináms
Skóla- og frístundasvið
Frístundamiðstöðin Gufunesbær auglýsir eftir verkefnisstjóra útivistar og útináms. Frístundamiðstöðin Gufunesbær heyrir
undir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og hefur umsjón með starfsemi Miðstöðvar útivistar og útináms (MÚÚ).
Tilgangur starfsins er m.a. að tengja útivist og útinám við grundvallarþætti menntastefnu Reykjavíkurborgar: Félagsfærni,
sjálfseflingu, læsi, sköpun og heilbrigði. Lögð er áhersla á að veita ráðgjöf og stuðning við eflingu þessara þátta og ýta undir
reynslu barna og unglinga af útivist og útinámi.
Við leitum að öflugum einstaklingi í fullt starf sem hefur mikinn áhuga á útinámi og útivist og reynslu af starfi með börnum
og unglingum.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Að efla og styðja við útivist og útinám á starfsstöðum
skóla- og frístundasviðs.
• Að taka þátt í, stýra og hafa frumkvæði að fræðslu í formi
fyrirlestra, smiðja, námskeiða, málþinga o.fl. í tengslum við
útinám og útivist.
• Ábyrgð á að fylgja eftir áherslum í menntastefnu Reykja-
víkurborgar, frístundastefnu borgarinnar, aðalnámskrá
leik- og grunnskóla, starfsskrá frístundamiðstöðva og
starfsáætlunar Miðstöðvar útivistar og útináms.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur
Reykjavíkurborgar.
Hæfniskröfur
• Háskólapróf s.s kennaramenntun, uppeldisfræði,
tómstunda- og félagsmálafræði, líffræði, landafræði,
jarðfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Meistarapróf eða mikil starfsreynsla á viðkomandi
sérfræðisviði.
• Víðtæk þekking og reynsla á sviði útilífs, útináms
og útivistar.
• Víðtæk reynsla og þekking á skóla- og frístundastarfi.
• Reynsla af verkefnastjórnun og innleiðingu verkefna.
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum, sjálfstæði í
vinnubrögðum, skipulagshæfni og frumkvæði.
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð almenn tölvukunnátta.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Ráðið verður í starfið frá og með 1. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hafsteinn Hrafn Grétarsson í síma 411-5600
og tölvupósti hafsteinn.hrafn.gretarsson@rvkfri.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun
· Reynsla af starfi í leikskóla
kopavogur.is
Kópavogsbær auglýsir starf skipulagsstjóra laust til umsóknar. Skipulagsstjóri stýrir skipulags- og
byggingardeild bæjarins en þar starfar 14 manna samhentur hópur. Hann hefur umsjón með þróun á
sviði skipulagsmála í bænum og ber ábyrgð á að meðferð skiplagsmála sé í samræmi við samþykkta
stefnumótun, gildar skipulagsáætlanir og að farið sé eftir lögum og reglugerðum. Hann er ráðgjafi
bæjarstjórnar í skipulagsmálum.
Helstu verkefni
· Daglegur rekstur skipulags- og byggingardeildar.
· Vinnur skipulagsáætlanir (aðal-, deili- og hverfisskipulags) og skipulags- og byggingarskilmála.
· Umsjón og eftirlit með gerð umhverfismats áætlana.
· Útgáfa framkvæmdaleyfa og gerð umsagna um skipulags- og byggingarerindi.
· Umsjón með grenndarkynningu deiliskipulagsbreytinga og byggingarleyfa.
· Auglýsir skipulagslýsingar og skipulagsbreytingar lögum samkvæmt.
· Undirbúningur funda skipulagsnefndar og umhverfis- og samgöngunefndar.
· Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa, kjörna fulltrúa og aðra hagsmunaaðila.
· Þátttaka í samráðshópum um skipulags- og byggingarmál.
· Situr í fagráði svæðisskipulagsnefndar SSH.
· Umsagnir vegna kærumála og álitaefna í samstarfi við lögfræðideild.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Meistarapróf á háskólastigi sem nýtist í starfi.
· Löggiltur skipulagsfræðingur eða sambærileg menntun sbr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
· Leiðtogahæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum.
· Þekking og reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu.
· Lausnamiðuð hugsun og færni í framsetningu efnis.
· Þekking á teikniforritum og öðrum forritum tengdum skipulagsvinnu.
· Þekking á skjalavistunarkerfum er kostur.
· Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2020.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Steingrímur Hauksson, sviðsstjóri umhverfissviðs
(steingr@kopavogur.is).
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Kópavogsbæjar.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Skipulagsstjóri
Sveitarfélagið Vesturbyggð auglýsir starf skólastjóra
Bíldudalsskóla laust til umsóknar. Leitað er eftir
metnaðar fullum einstaklingi sem býr yfir leiðtoga hæfi
leikum, hefur víð tæka þekkingu á skólastarfi, fram sækna
sýn á rekstur skóla og er tilbúinn til að leiða Bíldudals
skóla í samræmi við skóla stefnu Vesturbyggðar.
Í Bíldudalsskóla eru 29 nemendur og þar starfa 9 starfs
menn. Það er samrekin grunnskóli og leikskóli og eru
nemendur í leikskólanum 11 og 3 stafsmenn. Skóla stjóri
hefur einnig umsjón með mötuneyti skólanns. Nýr skóla
stjóri þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2020.
Umsóknarfrestur er til og með 5 júní 2020.
Meginverkefni
• Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi.
• Faglegur leiðtogi og mótar framtíðarsýn í samræmi
við skólastefnu Vesturbyggðar, aðalnámskrá leik
og grunnskóla og lögum um leik og grunnskóla.
• Veitir skólanum forstöðu á sviði kennslu og þróunar.
• Ber ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum,
starfsþróun og vinnutilhögun.
• Tekur þátt í samstarfi við aðila skólasamfélagsins
í Vesturbyggð.
• Hefur umsjón með daglegu starfi lengdrar
viðveru á Bíldudal.
Hæfniskröfur
• Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg.
• Færni og að minnsta kosti 3 ára reynsla af stjórnun
grunnskóla er æskileg.
• Færni og reynsla af starfsmannahaldi skilyrði.
• Hæfni og reynsla í stefnumótun, áætlanagerð
og þróun skólastarfs æskileg.
• Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum.
• Góð íslensku og enskukunnátta skilyrði.
Skólastjóri Bíldudalsskóla
Vesturbyggð
Umsóknir og nánar um störfin á vefnum
storf.vesturbyggd.is