Fréttablaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 40
MARKAÐSSTJÓRI
Vistor leitar að metnaðarfullum leiðtoga til að sinna starfi markaðsstjóra í lyfjaklasa.
Um er að ræða krefjandi starf fyrir metnaðarfullan einstakling. Markaðsstjóri er hluti
af stjórnendateymi Vistor og heyrir beint undir framkvæmdastjóra.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 1. JÚNÍ.
Tekið er við umsóknum í gegnum heimasíðu Vistor, www.vistor.is. Umsóknum skal fylgja
ítarleg ferilskrá ásamt stuttri greinargerð þar sem fram koma ástæður þess að sótt
er um starfið, auk rökstuðnings fyrir því hvers vegna umsækjandi telur sig hæfan til að
gegna starfinu. Nánari upplýsingar veitir Gunnur Helgadóttir, framkvæmdastjóri Vistor, í
gegnum tölvupóstfangið gh@vistor.is.
Vistor hf. er dótturfélag Veritas Capital og er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum,
heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi. Fyrirtækið er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra
lyfjafyrirtækja og veitir þeim þjónustu við skráningar, sölu- og markaðsmál, klínískar rannsóknir, auk
þess að hafa milligöngu um innflutnings- og dreifingarstarfsemi.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun af heilbrigðissviði
• Framhaldsmenntun á sviðum viðskipta,
hagfræði og/eða stjórnunar
• Reynsla af markaðs- og sölumálum
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Afburða tungumála- og tölvukunnátta
• Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í
vinnubrögðum
• Þjónustudrifið og hvetjandi hugarfar
Helstu verkefni
• Ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar
• Áætlunargerð og eftirfylgni í sölu- og
markaðsmálum
• Hvatning, stuðningur og stjórnun
starfsmanna
• Stjórnun samskipta við birgja og
viðskiptavini
• Greining á markaði og sölutækifærum
• Seta í stjórnendateymi Vistor og þátttaka í
stefnumótandi verkefnum
GILDI VISTOR ERU ÁREIÐANLEIKI, HREINSKIPTNI OG FRAMSÆKNI
Nánari upplýsingar:
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Torfi Markússon (torfi@intellecta.is)
Umsóknarfrestur: 8. júní 2020
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur þjónað
sjóðfélögum sínum frá 1956. Starfsmenn
vinna í þágu sjóðfélaga við uppbyggingu
lífeyrisréttinda og ávöxtun eigna.
Markmið sjóðsins er að vera áhugaverður
vinnustaður, gæta að jafnvægi milli vinnu
og einkalífs og bjóða gott starfsumhverfi
fyrir samhentan hóp til að vinna að
krefjandi verkefnum.
Nánari upplýsingar um LV má finna á:
www.live.is
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áhugasamir einstaklingar, af öllum
kynjum, eru hvattir til að sækja um.
Sérfræðingur í upplýsingatækni
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun á sviði tölvunarfræði
• Sjálfstæði í störfum, frumkvæði og þjónustulund
• Færni í forritun (Java, C# og Typescript/Javascript)
• Reynsla af vefforritun svo sem Angular
• Reynsla af þjónustumiðaðri högun
• Góð þekking á SQL fyrirspurnamálinu
• Þekking á Oracle gagnagrunnskerfi er kostur
• Þekking á aðferðafræði við vöruhús gagna er kostur
Helstu verkefni:
• Hönnun og smíði hugbúnaðar
• Innleiðing sjálfsafgreiðslulausna fyrir sjóðfélaga og
launagreiðendur
• Viðhald á viðskiptahugbúnaði sjóðsins
Lífeyrissjóður verzlunarmanna óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling til starfa á
upplýsingatæknisviði sjóðsins. Á upplýsingatæknisviði starfar samhentur hópur sérfræðinga við
hugbúnaðarþróun. Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að slást í hópinn og takast
á við krefjandi og spennandi verkefni sem framundan eru.
Kennarastöður hjá Tækniskólanum
eru lausar til umsóknar.
Nánar á tskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 2. júní.
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
ai15901493233_kennaraaugl-endur.pdf 1 22.5.2020 12:08:46
Fasteignasali óskast!
Heimili fasteignasala óskar eftir að
ráða fasteignasala til starfa.
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir góðri sölutækni, á auðvelt
með að vinna sjálfstætt og býr yfir góðum hæfileikum í mannlegum
samskiptum. Viðkomandi þarf að geta starfað skipulega með öðrum
og veitt ábyrga þjónustu í starfi sínu.
Umsækjendur þurfa að vera löggiltir fasteignasalar, eða vera í námi
til löggiltingar. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf fljótlega.
Umsóknum skal skila til Finnboga Hilmarssonar, fasteignasala, á
finnbogi@heimili.is sem jafnframt veitir allar frekari upplýsingar.
Erum við
að leita að þér?
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 3 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R