Fréttablaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 16
KÖRFUBOLTI Michael Jordan og síð-
asti dans hans með Chicago Bulls,
hefur sýnt að besti körfuboltamað-
ur allra tíma var mannlegur. Hann
gerði fullt af mistökum, klikkaði á
fullt af skotum og tapaði alveg fullt
af leikjum. Maðurinn sem kom NBA
á heimskortið hefur minnt á sig á ný
að undanförnu með 10 þátta seríu,
The Last Dance, sem sýndur var á
Netf lix og lauk á mánudag. Trú-
lega vöknuðu allir yfir þrítugu hér
á landi snemma á mánudagsmorgni
til að horfa. Sumir jafnvel sóttu úr
geymslunni gömlu körfubolta-
spjöldin í möppunum til að hafa
nálægt sér.
Þáttaröðin sýnir tímabilið 1997-
1998 hjá Chicago Bulls. Félagið
hafði leyft tökuliði aðgang að liðinu
allt tímabilið og fullt af klippum
sem aðdáendur voru að sjá í fyrsta
sinn voru sýndar.
Það er þó fullt af hlutum sem
standa eftir til að ræða um. Eins
og að Chicago Bulls hafi tekið þá
ákvörðun að hlusta ekki á besta
leikmann liðsins og reka einn besta
þjálfara sem staðið hefur á hliðar-
línunni, eftir þetta tímabil sem
fjallað var um. Alveg sama þótt hóp-
urinn væri hundgamall. Leikmenn
eru komnir með mun meiri völd
og trúlega myndi þetta ekki gerast
í nútímahópíþrótt í dag. Sé þetta
fært yfir í fótboltann er erfitt að sjá
fyrir sér að Barcelona myndi bara
henda Lionel Messi, Luis Suarez,
Sergio Busquets, Gerard Pique og
Ivan Rakitic frá sér. En þarna leyfði
eigandi Bulls framkvæmdastjóran-
um að taka liðið í sundur. Michael
Jordan lagði skóna á hilluna, Phil
Jackson hvarf frá hliðarlínunni,
Dennis Rodman fór eins og Scottie
Pippen og Steve Kerr, svo nokkrir
séu nefndir.
Þess má geta að síðustu 60 sek-
úndur Jordans í búningi Bulls, skor-
aði hann sex stig, stal boltanum af
Karl Malone og henti Byron Russell
í sögubækurnar, með einni stór-
kostlegri hreyfingu til að tryggja
Bulls titilinn. Trúlega er Russell enn
að hugsa um þessa stund.
Það var alveg vitað að þátta-
röðin Last Dance yrði góð. ESPN
films hafa sýnt það í gegnum tíðina
að þeir fara glæsilega með gamalt
NBA-efni. Þáttaröðin 30 for 30
Síðasti dansinn með
Jordan-gleraugum
Last Dance hefur tröllriðið sjónvarpsáhorfi í COVID-ástandinu. Allir og
enginn hafa horft á Michael Jordan stíga sinn síðasta dans með Chicago Bulls
árið 1998. Ekki eru allir sáttir við Jordan-gleraugun sem eru á þáttaröðinni.
Jordan svífur í átt að körfunni gegn Hornets árið 1998 sem var síðasta árið hans í liði Bulls. NORDICPHOTOS/GETTY
hefur verið að gera margar stór-
kostlegar NBA-myndir. Without
Bias, Once Brothers, Bad Boys og I
Hate Christian Laettner eru ekkert
minna en frábærar myndir fyrir
alla. Jafnvel þótt íþróttaáhuginn sé
lítill. Þessi er það líka.
En það eru ekki allir sáttir við
hversu hnausþykk Jordan-gleraug-
un eru á seríunni. Horace Grant, sem
var lykilmaður þegar Chicago vann
þrjú ár í röð frá 1991-1993, var sagð-
ur hafa lekið upplýsingum til blaða-
mannsins Sams Smith þegar hann
skrifaði bókina The Jordan Rules.
Bókin dró upp mynd af Jordan sem
var ekki máluð í þeim fallegu litum
sem ímynd hans hafði verið. Jordan
á að hafa hvatt leikmenn Bulls til að
gefa erfiðar sendingar á Bill Cartw-
right og einnig kýldi hann annan
miðherja, Will Purdue. Grant og
Smith eru vinir en Grant sagði í Last
Dance að hann myndi aldrei fara
með mál innan búningsklefans til
blaðamanns. Hann hefur í vikunni
varið sig enn frekar. „Þættirnir eru
skemmtilegir, en við sem vorum
samherjar hans vitum að níutíu pró-
sent af því sem kemur þar fram er
kjaftæði hvað sannleikann varðar,“
sagði Grant í útvarpsþættinum Kap
and Co. á ESPN.
Smith sagði í The HoopsHype
podcastinu að þættirnir væru
skemmtilegir áhorfs, en hann hjó
eftir því hvað Jordan var opinn.
„Þegar bókin kom út var hann
orðinn svo of boðslega frægur og
það var aðeins komið inn á veð-
málin hans í bókinni minni, auk
nokkurra annarra hneykslismála.
Hann setti upp varnir í kjölfarið
en þetta er í fyrsta sinn sem hann
hefur verið svona opinn, trúlega
síðan hann kom inn í deildina.“
Smith bendir á að honum hafi
brugðið þegar hann sá að þætt-
irnir ættu að vera 10, enda hafi
tímabilið ekki verið það eftirminni-
legt. Pippen var mikið frá og hversu
mikið er hægt að vera með Dennis
Rodman fyrir framan mynda-
vélarnar? Hann var þó sáttur við
lokaniðurstöðuna, ólíkt nokkrum
öðrum. Kvikmyndagerðarmaður-
inn Ken Burns benti á að Jordan
væri með sitt fólk í framleiðsluliðinu
og nokkrum vel þekktum blaða-
mönnum vestanhafs finnst eins og
myndin hafi verið máluð fegurri
litum en tilefni var til.
Þá hefur matareitrunin verið
hrakin af Pizza Hut í Utah, þar sem
Jordan spilaði fárveikur. Craig Fite,
aðstoðarframkvæmdastjóri á Pizza
Hut á þessum tíma, segist hafa geng-
ið á vegg af vindlareyk þegar lyftan
opnaðist á hæðinni þar sem Jordan
var og hann hafði séð Jordan vera
að spila og reykja vindil þegar hann
leit inn í herbergið. Trúlega hafi
hann veikst af því en ekki pitsunni.
Eins eru margir fyrrverandi liðs-
félagar Jordans frá fyrri tíð ekki
sáttir, því hann henti öllu liðinu
undir rútuna strax í fyrsta þætti,
þegar hann talaði um að f lestir
leikmenn notuðu kókaín. Það hefur
ekki farið vel í gamla liðsfélaga.
Trúlega væri Jordan ekki þessi
hetja hefðu samfélagsmiðlar og
blaðamenn fortíðar ekki verið svona
lélegir. Hann var jú keðjureykjandi
eineltisseggur sem veðjaði á allt
sem til var, lamdi samherja sína og
pantaði sér pepperónípitsu kvöldið
fyrir risaleik í úrslitakeppninni og
borgaði ástmey sinni, Körlu Knafel,
250 þúsund dollara fyrir að halda
sambandi þeirra leyndu. Honum
og Bulls var sópað út af Boston Celtic
tvisvar og hann tapaði þrisvar fyrir
Detroit Pistons, sem hann getur
ekki gleymt. En sama hverju menn
reyna að smyrja á hann þá er Mic-
hael Jordan trúlega besti íþrótta-
maður allra tíma, ef ekki sá besti.
benediktboas@frettabladid.is
NÝIR TÍMAR Í
SAMGÖNGUM
Rafhjólatrygging TM er sérsniðin trygging
fyrir rafknúin farartæki. Kláraðu málið á tm.is.
ÞÚ FÆRÐ RAFHJÓLATRYGGINGU Á TM.IS
HUGSUM Í FRAMTÍÐ
2 3 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT