Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.05.2020, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 23.05.2020, Qupperneq 16
KÖRFUBOLTI Michael Jordan og síð- asti dans hans með Chicago Bulls, hefur sýnt að besti körfuboltamað- ur allra tíma var mannlegur. Hann gerði fullt af mistökum, klikkaði á fullt af skotum og tapaði alveg fullt af leikjum. Maðurinn sem kom NBA á heimskortið hefur minnt á sig á ný að undanförnu með 10 þátta seríu, The Last Dance, sem sýndur var á Netf lix og lauk á mánudag. Trú- lega vöknuðu allir yfir þrítugu hér á landi snemma á mánudagsmorgni til að horfa. Sumir jafnvel sóttu úr geymslunni gömlu körfubolta- spjöldin í möppunum til að hafa nálægt sér. Þáttaröðin sýnir tímabilið 1997- 1998 hjá Chicago Bulls. Félagið hafði leyft tökuliði aðgang að liðinu allt tímabilið og fullt af klippum sem aðdáendur voru að sjá í fyrsta sinn voru sýndar. Það er þó fullt af hlutum sem standa eftir til að ræða um. Eins og að Chicago Bulls hafi tekið þá ákvörðun að hlusta ekki á besta leikmann liðsins og reka einn besta þjálfara sem staðið hefur á hliðar- línunni, eftir þetta tímabil sem fjallað var um. Alveg sama þótt hóp- urinn væri hundgamall. Leikmenn eru komnir með mun meiri völd og trúlega myndi þetta ekki gerast í nútímahópíþrótt í dag. Sé þetta fært yfir í fótboltann er erfitt að sjá fyrir sér að Barcelona myndi bara henda Lionel Messi, Luis Suarez, Sergio Busquets, Gerard Pique og Ivan Rakitic frá sér. En þarna leyfði eigandi Bulls framkvæmdastjóran- um að taka liðið í sundur. Michael Jordan lagði skóna á hilluna, Phil Jackson hvarf frá hliðarlínunni, Dennis Rodman fór eins og Scottie Pippen og Steve Kerr, svo nokkrir séu nefndir. Þess má geta að síðustu 60 sek- úndur Jordans í búningi Bulls, skor- aði hann sex stig, stal boltanum af Karl Malone og henti Byron Russell í sögubækurnar, með einni stór- kostlegri hreyfingu til að tryggja Bulls titilinn. Trúlega er Russell enn að hugsa um þessa stund. Það var alveg vitað að þátta- röðin Last Dance yrði góð. ESPN films hafa sýnt það í gegnum tíðina að þeir fara glæsilega með gamalt NBA-efni. Þáttaröðin 30 for 30 Síðasti dansinn með Jordan-gleraugum Last Dance hefur tröllriðið sjónvarpsáhorfi í COVID-ástandinu. Allir og enginn hafa horft á Michael Jordan stíga sinn síðasta dans með Chicago Bulls árið 1998. Ekki eru allir sáttir við Jordan-gleraugun sem eru á þáttaröðinni. Jordan svífur í átt að körfunni gegn Hornets árið 1998 sem var síðasta árið hans í liði Bulls. NORDICPHOTOS/GETTY hefur verið að gera margar stór- kostlegar NBA-myndir. Without Bias, Once Brothers, Bad Boys og I Hate Christian Laettner eru ekkert minna en frábærar myndir fyrir alla. Jafnvel þótt íþróttaáhuginn sé lítill. Þessi er það líka. En það eru ekki allir sáttir við hversu hnausþykk Jordan-gleraug- un eru á seríunni. Horace Grant, sem var lykilmaður þegar Chicago vann þrjú ár í röð frá 1991-1993, var sagð- ur hafa lekið upplýsingum til blaða- mannsins Sams Smith þegar hann skrifaði bókina The Jordan Rules. Bókin dró upp mynd af Jordan sem var ekki máluð í þeim fallegu litum sem ímynd hans hafði verið. Jordan á að hafa hvatt leikmenn Bulls til að gefa erfiðar sendingar á Bill Cartw- right og einnig kýldi hann annan miðherja, Will Purdue. Grant og Smith eru vinir en Grant sagði í Last Dance að hann myndi aldrei fara með mál innan búningsklefans til blaðamanns. Hann hefur í vikunni varið sig enn frekar. „Þættirnir eru skemmtilegir, en við sem vorum samherjar hans vitum að níutíu pró- sent af því sem kemur þar fram er kjaftæði hvað sannleikann varðar,“ sagði Grant í útvarpsþættinum Kap and Co. á ESPN. Smith sagði í The HoopsHype podcastinu að þættirnir væru skemmtilegir áhorfs, en hann hjó eftir því hvað Jordan var opinn. „Þegar bókin kom út var hann orðinn svo of boðslega frægur og það var aðeins komið inn á veð- málin hans í bókinni minni, auk nokkurra annarra hneykslismála. Hann setti upp varnir í kjölfarið en þetta er í fyrsta sinn sem hann hefur verið svona opinn, trúlega síðan hann kom inn í deildina.“ Smith bendir á að honum hafi brugðið þegar hann sá að þætt- irnir ættu að vera 10, enda hafi tímabilið ekki verið það eftirminni- legt. Pippen var mikið frá og hversu mikið er hægt að vera með Dennis Rodman fyrir framan mynda- vélarnar? Hann var þó sáttur við lokaniðurstöðuna, ólíkt nokkrum öðrum. Kvikmyndagerðarmaður- inn Ken Burns benti á að Jordan væri með sitt fólk í framleiðsluliðinu og nokkrum vel þekktum blaða- mönnum vestanhafs finnst eins og myndin hafi verið máluð fegurri litum en tilefni var til. Þá hefur matareitrunin verið hrakin af Pizza Hut í Utah, þar sem Jordan spilaði fárveikur. Craig Fite, aðstoðarframkvæmdastjóri á Pizza Hut á þessum tíma, segist hafa geng- ið á vegg af vindlareyk þegar lyftan opnaðist á hæðinni þar sem Jordan var og hann hafði séð Jordan vera að spila og reykja vindil þegar hann leit inn í herbergið. Trúlega hafi hann veikst af því en ekki pitsunni. Eins eru margir fyrrverandi liðs- félagar Jordans frá fyrri tíð ekki sáttir, því hann henti öllu liðinu undir rútuna strax í fyrsta þætti, þegar hann talaði um að f lestir leikmenn notuðu kókaín. Það hefur ekki farið vel í gamla liðsfélaga. Trúlega væri Jordan ekki þessi hetja hefðu samfélagsmiðlar og blaðamenn fortíðar ekki verið svona lélegir. Hann var jú keðjureykjandi eineltisseggur sem veðjaði á allt sem til var, lamdi samherja sína og pantaði sér pepperónípitsu kvöldið fyrir risaleik í úrslitakeppninni og borgaði ástmey sinni, Körlu Knafel, 250 þúsund dollara fyrir að halda sambandi þeirra leyndu. Honum og Bulls var sópað út af Boston Celtic tvisvar og hann tapaði þrisvar fyrir Detroit Pistons, sem hann getur ekki gleymt. En sama hverju menn reyna að smyrja á hann þá er Mic- hael Jordan trúlega besti íþrótta- maður allra tíma, ef ekki sá besti. benediktboas@frettabladid.is NÝIR TÍMAR Í SAMGÖNGUM Rafhjólatrygging TM er sérsniðin trygging fyrir rafknúin farartæki. Kláraðu málið á tm.is. ÞÚ FÆRÐ RAFHJÓLATRYGGINGU Á TM.IS HUGSUM Í FRAMTÍÐ 2 3 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.