Fréttablaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 38
Margt er hægt að
bralla með ung-
viðinu á Reykjanesi, svo
sem að veiða eða dorga,
kíkja á róló, í hvala-
skoðun, ganga um hell-
inn Leiðarenda og
bregða sér yfir Brú á
milli heimsálfa, sem er
einstök á heimsvísu.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Þessi magnaði leikvöllur fyrir börn jafnt sem fullorðna er staðsettur í bakgarði
höfuðborgarsvæðisins og því til-
valinn áfangastaður til skemmri
eða lengri dvalar,“ segir Eyþór
Sæmundsson hjá Markaðsstofu
Reykjaness.
„Reykjanesið er afar hentugt
fyrir barnafjölskyldur sem vilja
njóta útivistar, náttúru, menn-
ingar og afþreyingar, án þess að
leita langt yfir skammt. Það vita
ekki allir að á Reykjanesi má
meðal annars finna skógi vaxin
svæði, þar sem má finna leiktæki
og eldunaraðstöðu, líkt og við Sól-
brekkur og Háabjalla.“
Á Reykjanesi eru fjölmargir
tindar sem hæfa reynslulitlu fjall-
göngufólki.
„Þorbjörn við Grindavík er
afar hentugt fjall fyrir alla fjöl-
skylduna. Þar er meðal annars
hin stórbrotna Þjófagjá, sem allir
ættu að skoða. Auk þess er útsýnið
magnað og stutt í Selskóg og Bláa
lónið,“ upplýsir Eyþór.
Hann segir öll góð ferðalög enda
á sundferð og góðum bita.
„Á Reykjanesi má finna sund-
laug í hæsta gæðaflokki í hverju
einasta sveitarfélagi. Innilaugin
í Reykjanesbæ er einstaklega
hentug fyrir yngstu börnin, en
allar hafa laugarnar sín sérkenni
og sjarma,“ segir Eyþór.
„Á svæðinu má svo finna á
fimmta tug veitingastaða af öllum
gerðum og ef þú átt til dæmis
eftir að heimsækja Hjá Höllu eða
bragða hinn heimsfræga Villa-
borgara, þá áttu margt eftir ólifað.“
Fjölskylduparadísin Reykjanes
Á Reykjanesi getur fjölskyldan notið útivistar og afþreyingar í bakgarði höfuðborgarinnar. Fjöl-
margt er í boði og inni á milli leynast faldar perlur, sem alltof margir hafa enn ekki uppgötvað.
Það er auðvelt að koma til móts við ferðagleði barna á Reykjanesi þar sem ævintýrin bíða þeirra við hvert fótmál.
Fjöruferð að
Kleifarvatni er
einstök upp-
lifun.
Reykjanesið á líka augljóslega
nóg af fjörum sem auðvelt er að
sækja.
„Hvíta sandinn má finna á
Garðskaga og svarta sandinn
í Sandvík eða við Kleifarvatn.
Gönguleiðir eru um gjörvallt
Reykjanes og margar þeirra eru
einstaklega aðgengilegar og hent-
ugar fyrir börn,“ segir Eyþór.
Söfn sem henta öllum
Reykjanes hefur að geyma fjöl-
mörg söfn, þar sem allir finna
eitthvað við sitt hæfi.
„Má þar nefna Skessuna í hell-
inum, Rokksafn Íslands, Víkinga-
safnið, Duus-hús, Byggðasafnið
á Garðskaga, Þekkingarsetrið
í Sandgerði og Saltfisksetrið í
Grindavík. Glæsileg bókasöfn
eru einnig á Reykjanesi, þar sem
gaman er að grúska í bókum og
leika,“ segir Eyþór.
Fjölmargt annað er hægt að
bralla með ungviðinu á Reykja-
nesi.
„Svo sem að veiða og dorga,
kíkja á róló, spila golf, skella sér
í hjólaferð, kíkja í hvalaskoðun,
ganga um hellinn Leiðarenda,
bregða sér yfir Brú á milli heims-
álfa, sem er einstök á heimsvísu
og staðsett plötuskilum Evrópu
og Ameríku. Svo er bara hægt að
kíkja í bíltúr Krýsuvíkurleiðina
og staldra við á stórbrotnum
stöðum eins og Brimkatli og
smella af sér mynd, svo fátt eitt sé
nefnt.“
Nánar á visitreykjanes.is
Vorið 2009 hóf Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir landgræðsluverkefni undir
heitinu Heklu skógar. Tveimur
árum síðar gengu fjögur mótor-
hjólafélög til viðbótar til liðs við
verkefnið og hafa þau nú farið á
hverju ári í landgræðsluferð þar
sem sexhjól í eigu Gísla Einars-
sonar hefur reynst afar vel.
Árlegur viðburður
Gísli, sem er meðlimur Slóðavina,
er einn þeirra sem tekið hafa þátt
í verkefninu frá upphafi. „Ég er
búinn að vera með nánast frá upp-
hafi,“ segir hann. „Þetta er árlegur
viðburður og er samvinnuverkefni
nokkurra mótorhjólaklúbba, þar á
meðal Slóðavina sem er ekki bara
mótorhjólahópur, heldur ferða-
klúbbur á mótorhjólum, fjórhjól-
um og beltahjólum og fleira. Hinir
klúbbarnir sem eru með okkur eru
allt mótorhjólaklúbbar.“
Hin félögin sem koma að verk-
efninu eru BMW klúbburinn á
Íslandi, Skutlur, Harley Owners
Group Iceland og Gaflarar í Hafn-
arfirði. Hvert félag fyrir sig vinnur
á 25 hektara svæði (500x500) og
ber þar á áburð og gróðursetur
trjáplöntur ár hvert. Að auki vinna
Slóðavinir á 80 hektara svæði á
Vaðöldu og Endurvinnslan hf.
vinnur á 40 hektara svæði, sam-
hliða mótorhjólafélögunum.
„Við fengum úthlutað og byrj-
uðum á svæði sem heitir Vaðalda,
sem er upphækkað svæði út frá
lóninu hjá virkjuninni á Sultar-
tanga. Svo breyttist það þegar við
ákváðum að fá sérstakt svæði við
þjóðveginn, sem er svona ca 5 kíló-
metrar að lengd og 500 metrar á
breidd,“ skýrir Gísli frá.
„Þar erum við að vinna að því að
búa til skóg sem við ræktum með
höndunum, með það fyrir augum
að þetta gæti hugsanlega orðið ein-
hvers konar mótorhjólakeyrslu-
svæði í framtíðinni, ef það er hægt
að gera einhverjar skemmtilegar
brautir þarna.“ Skógurinn sem
félögin vinna að því að græða er í
daglegu tali nefndur Mótorhjóla-
skógurinn.
Alls er uppgræðslusvæðið tæp-
lega 300 hektarar. Ýmsir aðilar
hafa styrkt verkefnið, en stærsta
styrkinn veitir N1 árlega, þar sem
fyrirtækið lánar Slóðavinum vöru-
bíl með krana til að flytja áburð-
inn og hífa sekkina í vegkantinn
við reiti hvers félags.
Kærkomin hjálparhella
„Ég kem alltaf með sexhjól á
svæðið, sem er fjórhjól með palli,
og það hjálpar okkur að dreifa
áburði, það munar miklu að geta
dreift áburði til að örva vöxtinn.
Það er orðið fastur punktur í þessu
og auðveldar alla vinnu.“
Ábyrgðin er mikil. „Ég þarf alltaf
að halda því gangandi til að vera
öruggur að geta mætt með það,
það er orðið fimmtán ára gamalt.
Það virkar mjög vel í áburðar-
dreifingu því það getur einn verið
að keyra og einn setið aftan á pall-
inum og kastað áburðinum, svo
getur maður líka borið í þau sem
eru að kasta úr fötum eða skjólum
og eru kannski búin að labba langt
frá sekknum, þá getur maður
skotist til þeirra með áburð.“
Þá þarf líka að fara gætilega.
„Það er alltaf að verða vandasam-
ara að keyra á svæðinu, því það
eru alltaf að koma fleiri plöntur,
maður verður að passa sig á að
keyra ekki á litlu trén.“
Blaðamaður spyr Gísla hvort
sexhjólið sé hálfgerð þungamiðja
verkefnisins. „Það mætti kannski
segja að það sé lykilþátttakandi í
þessu verkefni.“
Í dag verður farið af stað í land-
græðsluferðina og lagt verður
af stað frá Olís Norðlingaholti
klukkan 8.45 og 9.00.
Hægt er að fylgjast með verkefn-
inu á Facebook undir „Mótorhjóla-
skógurinn“.
Rúntað og ræktað upp land
Á milli Sultartangalóns og Hrauneyjavegar vinna nokkur mótorhjólafélög að því að græða upp
örfoka land og endurheimta forna birkiskóga. Í dag verður farið í hina árlega landgræðsluferð.
Gísli Einarsson, Slóðavinur og
eigandi Nexus, segir sexhjólið hafa
komið sér afar vel við áburðardreif-
ingu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gísli á sexhjólinu goðsagnakennda ásamt mótorhjólakonum úr kvenhjólaklúbbnum Skutlum.
8 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RFERÐUMST INNANLANDS