Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 3
Frá ritstjóra
m
-fm
Haustið hefur verið stormasamt
og kalt. Veturinn fór snemma að
og minnti íslendinga á að sæla
sumarsins varir ekki að eilífu. En
einhver sagði að kosturinn við
aðvífandi skammdegi væri að þá
styttist jafnan til vorsins.
Sumarið var annasamt á vettvangi
Öryrkjabandalags íslands. Starfs-
menn þess stóðu í ströngu við að
leiðbeina lífeyrisþegum um völund-
arhús almannatrygginga og lífeyris-
sjóðakerfisins, en Greiðslustofa líf-
eyrissjóðanna kallaði eftir upplýs-
ingum um skattaframtöl nokkurs
hóps fólks síðustu þrjú árin áður en
það var metið til örorku. Var leitað
allt að 35 árum aftur í tímann og
þótti ýmsum undarlegt að slík mál
skyldu vakin svo löngu eftir að menn
töldu sig hafa lokið sínum málum
gagnvart sjóðunum. Öryrkjabanda-
lagið taldi orka tvímælis að þessar
aðgerðir samræmdust lagaákvæð-
um um fyrningar en hvatti þó lífeyr-
isþega til þess að skila inn umbeðn-
um gögnum.
í júní síðastliðnum gafst ritstjóra
kostur á að sækja námskeið um
Evrópurétt fatlaðra á vegum Evr-
ópusambandsins. Var þar einkum
fjallað um rétt fólks til atvinnu á hin-
um almenna vinnumarkaði. Á
grundvelli Amsterdam-sáttmálans,
sem samþykktur var árið 1999, hafa
verið gefnar út tilskipanir um ýmis
lágmarksréttindi innan Evrópusam-
bandsins og ber aðildarríkjunum að
fella tilskipanir þessar í lög. Sam-
kvæmt sáttmálanum, sem er ekki hluti
samningsins um Evrópska efnahags-
svæðið, er aðildarríkjunum heimilt að
setja strangari ákvæði um réttfólks en
kveðið er á um í tilskipuninni.
Á þessum vettvangi hefur verið
fjallað um ákvæði tilskipunarinnar
um ótvíræðan rétt manna og bann
gegn mismunun vegna trúarbragða,
skoðana, kynhneigðar, fötlunar eða
aldurs. Flest Evrópuríki hafa nú leitt
þessa tilskipun í lög með ýmsum til-
brigðum. í lögunum er einnig fjallað
um beina og óbeina mismunun, ein-
elti og óbeint einelti, sem birst getur
í ýmsum myndum á vinnustað. Jafn-
framt eru ítarleg ákvæði sem eiga
að koma í veg fyrir að ákvæði lag-
anna séu misnotuð á einn eða ann-
an hátt.
Þau ánægjulegu tíðindi hafa nú
orðið að félagsmálaráðherra hefur
skipað starfshóp til þess að vinna að
aðlögun þessarar tilskipunar að ís-
lensku lagaumhverfi. Er þess vænst
að samtök fatlaðra fái tillögur nefnd-
arinnar til umsagnar. Eðlilegt hefði
mátt telja að Öryrkjabandalag ís-
lands hefði átt hlut að starfi hópsins.
Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri
Öryrkjabandalags íslands
Bandalagið telur víst að samráðs
verði leitað, enda er hér um brýnt
hagsmunamál að ræða.
í vetur leið kom út skýrsla starfs-
hóps um endurhæfingu hér á landi.
Meginniðurstaða skýrslunnar var sú
að mjög skorti á samhæfingu í
þessum málaflokki og fjölga þyrfti
þeim úrræðum til endurhæfingar
sem boðið væri upp á hér á landi.
AÐILDARFÉLÖG ÖRYRKJABANDALAGSINS
ADHD samtökin
Alnæmissamtökin á íslandi
Blindrafélagið - Samtök blindra og sjónskertra
Blindravinafélag íslands
Daulblindrafélag Islands
FAAS - Félag aðstandenda Alzheimerssjúklinga
Félag heymarlausra
Félag lesblindra
Félag nýmasjúkra
Foreldra og styrktarfélag heymardaufra
Geðhjálp
Geðvemdarfélag íslands
Gigtarfélag íslands
Heymarhjálp
LAUF - Landssamtök áhugafólks um flogaveiki
Málbjörg
MG-félag íslands
MND-félag íslands
MS-félag íslands
Parkinsonsamtökin á íslandi
Samtök psoriasis og exemsjúklinga
Samtök sykursjúkra
SEM samtökin
SÍBS - Samband ísl. berkla- og brjóstholssjúklinga
Sjálfsbjörg
Stómasamtök íslands
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Styrktarfélag vangefinna
Tourette samtökin
Umsjónarfélag einhverfra
tímarit öryrkjabandalagsins
3