Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 29

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 29
Skákíþróttin krefst mikiliar íhygli. Sjálfsefling er nauðsynleg Sjálfsefling ætti að vera hluti af meðferðinni, að líta á meðferð við geðsjúkdómi sem sameiginlegt ferðalag þar sem gengið er með fólki þann tíma sem til þarf. Við er- um svo föst í því að troða fólki inn í fyrirfram gefin úrræði og kassa sem við höfum búið til, án tillits til þess hvort þau hæfa einhverjum. Þegar á daginn kemur að fólk passar ekki inn í, þá dinglar það eðlilega dálítið ráðalaust. Það er sammannlegt að fólk er fljótt að verða óvirkt. Strax fyrsta daginn, sem einhver leggst inn á geðdeild, þyrfti að hefja undirbúning útskriftar. Ég held að það sé sammannlegt að fólk er mjög fljótt að verða óvirkt. Maturinn kemur á ákveðnum tíma, án þess nokkuð þurfi að hafa fyrir honum, einhver vekur þig, kemur þér á fæt- ur og hugsar fyrir þig það sem eftir lifir dags. Það þarf að bregðast við þessu umhverfi strax, þjálfa ein- staklinginn til athafna og aðgerða. Síðustu tvö árin hefurfærst í vöxt að komið sé með einstaklinga, bæði langveika og eins af móttökudeild- um geðsviðs, til okkar sem stöndum utan sjúkrahúskerfisins. Markmiðið er að tengja einstaklingana við eitt- hvað þegar út er komið, þannig að fólk sé ekki í lausu lofti og hafi á til- finningunni að enginn sé til aðstoð- ar. Öryggiskenndin er mjög mikil- væg. Margir láta sér til dæmis nægja að hringja til okkar í Vin, eru ekki endilega að koma en hafa þennan öryggisventil að geta náð í okkur þegar á þarf að halda, jafnvel heima ef mikið liggur við. Fínir og ófínir geðsjúkdómar Hver og einn býr yfir einhverjum styrk og öllu skiptir að ýta undir hann. Þótt einhver hafi greinst með geðklofa fyrir tuttugu árum er ekki þar með sagt að sá hinn sami geti ekki styrkst og gert ýmsa hluti. Að sjálfsögðu þarf tíma og örvun, en möguleikinn er fyrir hendi. Einstak- lingar sem fengið hafa sjúkdóms- greiningu með geðklofa, hafa því miður orðið talsvert útundan í um- ræðunni, nálega afskrifaðir. Innan geðsviðsins eru nefnilega til fínir og ófínir sjúkdómar, ef svo má að orði komast. Þunglyndi og kvíði þykja fínastir, síðan koma geðhvörf- in og loks geðklofinn. Fordómar eru lífseigir Samtalið beinist að samfélagsleg- um fordómum gagnvart geðsjúk- dómum og ég spyr Guðbjörgu hvort líkja megi vlðhorfunum til homma- fóbíunnar, að undirrótin sé óttinn við geðsjúklinginn I sjálfum sér eins og margur óttast hommann í sjálfum sér. Getur einnig verið að ástæð- unnar sé að leita í meðferðaraðferð- unum, innilokuninni og aðgreining- unni frá öðrum samfélagsþegnum. Jú, Guðbjörg útilokar það ekki og telur jafnframt að uppsett, samfé- lagsleg glansmynd valdi því að við viljum ekkert endilega vita hvað að baki búi. Fyrir skemmstu voru birtar niður- stöður úr viðhorfskönnun sem Rauði krossinn lét gera varðandi af- stöðu til ýmissa skilgreindra hópa. Spurt var til dæmis: Viltu að geðfatl- aður einstaklingur búi við hliðina á þér? Að vísu voru 60% sem voru já- kvæð eða var alveg sama, en það þýðir að 40% vilja það ekki! Svars- hlutfallið var hið sama meðal allra svarenda, algerlega óháð menntun eða öðrum breytum. Sumir segja að geðdeildir endurspegli á margan hátt sam- félagið sem við búum í. Ég tel undirrótina að hluta tengda því hvernig heilbrigðiskerfið hefur brugðist við geðsjúkdómum. Lengi vel voru meðferðarstofnanir alger- lega lokaðar. Fólk lenti inn á geð- deild og kom aldrei aftur út. Þegar kerfið fór að opnast og einstakling- urinn dvaldi ekki jafn lengi inni á geðdeild og áður, þá skáru menn sig samt úr á einhvern hátt og þar tel ég meðferðina hafa haft sitt að segja. Að sumu leyti finnst mér jafn- vel óþolið gagnvart þeim sem skera sig úr hafa aukist undanfarin ár. tímarit öryrkjabandalagsins 29

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.