Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Side 23

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Side 23
rður að byggja á , virðingu og von 1 ijúkrunarfræðing, forstöðumann Vinjar ■ l o L inn eru þarna einstaklingar sem hafa verið viðloðandi geðdeildir í ein þrjá- tíu til fjörutíu ár og margir orðnir það fullorðnir og lasnir að þeir þurfa að fara inn á hjúkrunarheimili. Það verður hreinlega að segjast eins og er að félagsleg endurhæfing hefur verið afskaplega takmörkuð inni á geðdeildum. Regluverk sjúkra- húsumhverfisins er svo fastmótað og stofnanakennt. Vissulega er starfs- fólkið að gera sitt besta, en aðkoma sjúklingsins að ákvörðunum eða þeim úrræðum sem gripið er til er af- ar takmörkuð og sama er að segja um aðkomu aðstandenda. Margir sjúklinganna hafa lítil tengsl við að- standendur sína, þannig að þarna er stór hópur einstaklinga sem er slitinn úr félagslegu samhengi. Þessir ein- staklingar eru því félagslega einangr- aðir og einmana og hafa yfirleitt lítið tengslanet í kringum sig og þar kem- ur Vin inn sem einhvers konar upp- bót fyrir fjölskyldutengsl. í Vin reynum við að halda sam- bandi við aðstandendur þeirra gesta er hingað leita, sé þess nokkur kost- ur, en það er upp og ofan hvernig gengur. Aðstandendur geta komið eða hringt, en samskiptin eru mis- mikil. Sumir eiga enga aðstandend- ur, eru kannski það fullorðnir að for- eldrar eru látnir og lítil samskipti við systkini eða aðra ættingja. Þetta er því mjög misjafnt, en leiðin er opin. tímarit öryrkjabandalagsins 23

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.