Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 35
Hafa staðið vaktina frá 8. mars. Frá vinstri: Kolbrún Dögg, Jóhanna, Guðbjörg
Kristín, Þorbera, Ólína og Steinunn Þóra.
tvær konur og kvennabarátta í
kringum aldamótin 1900. Á laugar-
dagsfundi 24. október héldu Þor-
bera Fjölnisdóttir og Guðbjörg
Kristín Eiríksdóttir fyrirlestur sem
nefndist Ofbeldi og valdbeiting, en
þær sóttu námsstefnu í Svíþjóð um
það efni. Á síðasta fundi fyrir jól,
þann 26. nóvember, fjallaði Elín
Ebba Ásmundsdóttir, iðjuþjálfi, um
áhrifavalda á heilsu og vellíðan,
meðal annars hvernig þátttaka í
hagsmunabaráttu, til dæmis minni-
hlutahópa hefur áhrif á bata og
vellíðan.
Eftir áramótin verður laugardags-
fundum haldið áfram, umræðuefnin
eru yfrið næg.
Opnir starfshópar
Markmið Kvennahreyfingarinnar
er að sem flestar taki þátt, verði virk-
ar í starfi og komi að stefnumótun. í
því skyni var ákveðið að mynda þrjá
hópa, sem tækju mið af markmiðum
Kvennahreyfingarinnar. Einn starfs-
hópur hefur þegar litið dagsins Ijós.
Umfjöllunarefni hópsins er: For-
dómar - sjálfsstyrking.
Aðrir hópar einbeita sér að:
• Atvinnu-, mennta- og kjaramálum.
• Rannsóknum og upplýsingum, inn-
lendum sem erlendum.
Áætlað er að þeir geti farið af stað
eftir áramót. Hægt er að skrá sig til
þátttöku á netfangið: felagsmal@obi.is,
eða með því að hringja á skrifstofu ÖBÍ.
Ofbeldi gagnvart fötluðum og
langveikum konum
Ýmsar rannsóknir hafa leitt í Ijós
að fatlaðar og langveikar konur eru
oft á tíðum beittar miklu ofbeldi og
hafa erlendar rannsóknir bent til
þess að engar konur séu í meiri
áhættu, hvað ofbeldi varðar, en þær
sem fylla þennan hóp. Innan
Kvennahreyfingarinnar hefur því
farið fram talsverð umræða um of-
beldi.
Að ofan var greint frá því, að þær
Þorbera Fjölnisdóttir og Guðbjörg
Kristín Eiríksdóttir tóku þátt í náms-
stefnu sem haldin var í byrjun
ágústmánaðar á Skáni í Svíþjóð.
Efni námsstefnunnar var Konur og
ofbeldi. Þátttakendur voru 25, ýmist
starfsmenn kvennaathvarfa eða frá
samtökum fatlaðra kvenna. Allar
konurnar voru sænskar nema fulltrú-
ar Kvennahreyfingar ÖBÍ.
Á námsstefnunni var fjallað um
ofbeldi gagnvart konum almennt,
þar sem grunnhugsunin er sú að
fatlaðar konur verði fyrir ofbeldi í
fyrsta lagi vegna þess að þær eru
konur og í öðru lagi vegna þess að
þær eru fatlaðar. En þar kom einnig
fram að fatlaðar og langveikar kon-
ur verða oft fyrir ofbeldi, þannig að
ráðist er að veikleika þeirra. Þeim er
til dæmis neitað um lyf, hjálpartæki
eru færð utan seilingar, húsgögn
færð til, ef um blinda konu er að
ræða, og þroskaheftar konur verða
oft á tíðum fyrir kynferðislegu of-
beldi. Ennfremur var fjallað um
ímynd kvenna eins og hún birtist í
auglýsingum og klámi, en þess má
geta að til eru sérstök klámblöð með
myndum af fötluðum konum.
Einn fyrirlesara fjallaði um ferlið
sem á sér stað frá því að karl og
kona taka upp samband og þar til
konan er stödd í hjónabandi, ein-
hverjum árum síðar, með þessum
sama karli og hann beitir hana of-
beldi. Reynt var að svara spurning-
unni, hvers vegna konan fari ekki og
hvernig karlinn brýtur konuna smám
saman niður andlega og einangrar
hana. í framhaldi þessa var farið í
grunnatriði í beitingu sjálfsvarnar og
hvaða aðferðum er unnt að beita til
að gera árásarmann óvígan.
Kynning inn á við sem út á við
Kvennahreyfingin hefur mikinn
hug á að kynna starfsemi sína með-
al félaga Öryrkjabandalagsins og
mun það vonandi fara í gang nú í
vetur. Nokkur áhugi hefur einnig
komið fram utan ÖBÍ á starfi hreyf-
ingarinnar og má nefna að Jóhanna
Leópoldsdóttir, önnur talskona
Kvennahreyfingarinnar, kynnti
hreyfinguna á fundi hjá Kvenfélaga-
sambandi borgfirskra kvenna og
Kvenfélagasambandi Snæfells- og
Hnappadalssýslu, á fundi að Lýsu-
hóli á Snæfellsnesi í apríl síðastliðn-
um.
Kvennahreyfing ÖBÍ á einnig aðild
að 16 daga átakinu í nóvem-
ber/desember þar sem tekið er á of-
beldi gegn konum.
Það eru næg verkefni framundan
hjá Kvennahreyfingu ÖBÍ og ekki
annað hægt en óska þeim til ham-
ingju með gott upphafsstarf.
Birna Þórðardóttir
tímarit öryrkjabandalagsins
35