Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Blaðsíða 10
Nýr heimur hljóða
Draumurinn er sá að geta heyrt hvað barnabörnin í
aftursætinu segja
Hvað er kuðungsígræðslutæki og
hvernig vinnur það?
Kuðungsígræðslutæki (cochlear implant, Cl) er hjálpartæki sem gefur
alvarlega heyrnarskertu og heyrnarlausu fólki möguleika á að heyra
hljóð. Tækið framkallar hljóðáhrif með því að örva heyrnartaugina með
rafmagni.
Kuðungsígræðslutækið er samsett úr innri hluta, sem er græddur í eyr-
að með aðgerð, og ytri búnaði, sem borinn er aftan við eyrað. Hlutinn
sem fer inn í eyrað er samsettur úr viðtæki og elektróðu með mörgum
rásum, en ytri hlutinn úr hljóðnema, sendi og talgervli sem er stilltur fyrir
hvern og einn notanda. Talgervillinn er annað hvort vasatæki eða bak við
eyra-tæki.
Kuðungsígræðslutækið vinnur þannig að hljóðneminn nemur hljóð og
sendir það eftir leiðslu til talgervilsins sem greinir það og kóðar. Þaðan
berst hið kóðaða hljóð til sendisins og flyst gegnum húðina til viðtækis-
ins. Viðtækið breytir kóðanum í rafboð sem send eru til hinna ýmsu raf-
rása í elektróðunni sem grædd er í kuðunginn. Rafboðin örva þær tauga-
frumur sem fyrirfinnast í kuðungnum sem og taugaenda heyrnartaugar-
innar. Heilinn túlkar boðin sem hljóð sem notandinn skynjar.
Heimild: www.hti.is
Ég hafði verið framkvæmda-
stjóri Öryrkjabandalags íslands í
hálftíma. Fyrrverandi stjóri var
nýfarinn og ég velti því fyrir mér
hvað ég ætti að taka mér fyrir
hendur. Hjördís Guðmundsdóttir
kom þá og bað um viðtal við
framkvæmdastjórann. Hún tjáði
mér meðal annars að hún heyrði
næstum ekkert en gæti lesið af
vörum. í vor kom hún aftur og
hafði orð á að það væri býsna
fróðlegt að heyra í mér málróm-
inn. Ég tók þá eftir því að röddin
hennar hafði breyst og spurði
hvað væri títt. Hún hafði farið í
kuðungsígræðslu.
Skólaganga Hjördísar Guð-
mundsdóttur hófst með ósköpum.
Eitt sinn þegar hringt var inn úr frí-
mínútum skall skólasystir hennar
með höfuðið á gagnauga hennar.
Hjördís féll á malbikið og rotaðist.
Hún rankaði fljótlega við sér og fór
inn í tíma. Hjördís var með logandi
verk í höfðinu og grét sáran. Þegar
hún linnti ekki grátnum sló kennar-
inn hana utanundir og lét hana sitja
eftir. Hann sagði síðar að hann hefði
viljað að hún jafnaði sig.
„Ég komst heim til mín við illan leik
eftir skóla en heimilið mitt var hinum
megin við götuna. Ég ætlaði að
skríða upp í rúm en mamma sá að
eitthvað var að og fór með mig rak-
leitt upp á slysavarðstofu. Þar kom
strax í Ijós að ég hafði fengið slæm-
an höfuðáverka."
Heyrninni tók að hraka og eftir
nokkra mánuði var Hjördís komin
með heyrnartæki á báðum eyrum.
Upp úr þessu hófust erfiðleikar
hennar. Hún hraktist á milli skóla.
Sums staðar mætti henni vanþekk-
ing kennara og annars staðar var
hún lögð í einelti.
10
www.obi.is