Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 28
Dvöl Kópavogi
Dvöl tók formlega til starfa á alþjóða geðheilbrigð-
isdeginum, 10. október 1998, eftir að Kópavogsdeild
Rauða krossins, Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á
Reykjanesi og Kópavogsbær höfðu skrifað undir
samning um reksturinn.
Dvöl er í notalegum húsakynnum við Reynihvamm
43. í húsinu er þvotta- og baðaðstaða og sjá starfs-
menn og gestir í sameiningu um að framreiða mat í
hádeginu. Við athvarfið er fallegur garður og eru
áhugasamir gestir hvattir til að taka þátt í garðrækt-
inni. Skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenninu sem
margir gestir nýta sér.
Gestir Dvalar koma flestir til að rjúfa einangrun sína
og fá stuðning. Hópurinn er mjög breiður, á aldrinum 20
til 70 ára, bæði konur og karlar og hafa konur verið í
meirihluta síðustu mánuði, enda er sérstakur kvenna-
hópur starfandi eins og lesa má á heimasíðu Dvalar.
Starfið er afar fjölbreytt. Margir koma einfaldlega til
þess að slaka á, horfa á sjónvarp, spjalla eða líta í
blöðin. Aðstaða er til listsköpunar, gestir hafa aðgang
að tölvu, geta hlustað á tónlist eða komið sér nota-
lega fyrir í slökunarherberginu. Listsýningar eru sótt-
ar heim og prestur heimsækir athvarfið reglulega.
Handhægar upplýsingar
Á veturna er opið kl. 9.00-16.00 virka daga nema
fimmtudaga kl. 10.00-16.00, á laugardögum er opið
kl. 13.00-16.00.
Á sumrin, júní til ágúst, er opið alla virka daga kl.
10.00-16.00.
Sími er: 554 1260; bréfasími: 554 7274; netfang:
dvol@redcross.is
Forstöðumaður Dvalar er Björk Guðmundsdóttir.
Skammdegisbirtan gefur húsinu ævintýrablæ.
Tónlistarhópurinn í Dvöl notar góða veðrið til listiðkunar utandyra. Hópurinn hittist einu sinni í viku og
naut aðstoðar tónlistarnema.
28
www.obi.is