Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 37

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 37
• Þarna væri hægt að búa allt árið. Þetta gæti verið hvíldar- staður fyrir þá sem þurfa á hvíld að! halda. • Reyna ætti að finna þá sem eru einangraðir og veita þeim tækifæri á að rjúfa einangrunina. • Auglýsa þyrfti staðinn í erlendum fagtímaritum á net- inu. • ADSL-nettenging þyrfti að vera fyrir hendi og gervi- hnattasjónvarp. • Þarna væri hægt að stunda hestamennsku, göngu- ferðir, spilamennsku, bingó, dans, ýmsa handiðn og margt fleira. Fara saman í leikhús, bíó, veiðiferðir, á kaffihús, í sund, verslunarleiðangra, á íþróttaviðburði, í styttri ferðir um nágrennið gjarnan með nesti og margt fleira. • Nauðsynlegt er að þarna sé heitt vatn svo hægt verði að byggja litla sundlaug og heita potta. • Þarna þyrftu elli- og örorkulífeyrisþegar að geta átt sér heimili sem væru mið- uð við þeirra getu. • Öllum kostnaði þyrfti að halda í lágmarki. • Þarna væri unnt að færa tilgang inn í líf þerra sem ekki hafa tilgang í dag. • Mjög margir þurfa á æfingum að halda og ég hef oft hugsað um það hvort ekki væri hægt á ódýran hátt að útbúa gönguleiðir og hafa á þeim staði og útbúnað sem örvar alhliða starfsemi líkamans, sem allir þurfa á að halda. • Hægt væri að hafa steina til að stikla á, tröppur til að ganga upp og niður og margt, margt fleira. • Enginn hreyfir sig eins mikið og barn og þau kunna margt sem gott er fyrir þjálfun líkamans. • Það gæti líka verið sameiginlegt verkefni íbúanna að skipuleggja þetta og vera með í undirbúningi, allir eftir eigin getu. • Innkaup gætu verið sameiginleg, til dæmis væri hægt að kaupa saman kjöt í heilum skrokkum og útbúa það. • Þarna mætti hafa endur og rækta grænmeti og kartöflur og heita vatnið myndi gera okkur kleift að hafa gróðurhús og rækta þar gúrkur, paprikur og tómata. Ég þakka ykkur fyrir lesturinn!

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.