Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Blaðsíða 8

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Blaðsíða 8
Nýtt kennimerki Síðastliðið vor samþykkti fram- kvæmdastjórn að láta gera nýtt kennimerki fyrir Öryrkjabandalag ís- lands og fól starfsmönnum banda- lagsins að undirbúa málið. Starfs- menn auglýsingastofunnar Hvíta hússins voru fengnir til að gera drög að merkinu og komu að því fyrir hönd Öryrkjabandalagsins Emil Thóroddsen, Bára Snæfeld, Val- gerður Ósk Auðunsdóttir, Rakel El- íasdóttir og Arnþór Helgason. Tillög- ur voru bornar undir starfsmenn Ör- yrkjabandalagsins, Hússjóðs ÖBÍ, Hvíta hússins og auk þess fjallaði framkvæmdastjórn um hugmyndirn- ar. Úr um tug hugmynda var unnið nánar með tvær þeirra og nýjar út- færslur og fleiri litasamsetningar kynntar. Lokaniðurstaða fram- kvæmdastjórnar varð eftirfarandi, sem jafnframt má sjá á meðfylgjandi mynd. Form kennimerkisins er þrjár bogalínur sem fléttast hver í aðra. Neðsti og efsti boginn eru í sama lit en miðboginn hefur sérlit. í svart/hvítu eða þegar bréfsefni verður Ijósritað aðgreina litirnir sig vel. Nafn Öryrkjabandalags íslands er sett fram í einni línu og einnig sem upphafsstafir, báðar gerðir í hástöf- um. Bogarnir mynda tvo þriðju úr hring utanum Ö í upphafsstöfum bandalagsins ÖBÍ. Útfærsla með nafninu í heild sinni verður þannig að bogarnir mynda tvo þriðju hrings utan um ÖR, en aðrir hlutar nafnsins standa út fyrir í einni línu. Litasamsetning er dökksægrænn litur (PANTONE 560-C) í efsta og neðsta boga en í miðboga er dökk- gulur litur (PANTONE 130-C). Letur dökksægrænt eins og í bogunum. ^ÖRYRKJABANOAIAG ÍSLANOS 8 Hluti aðalfundarfulltrúa www.obi.is

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.