Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Síða 16
AÐILDARFÉLÖG
Skýrsla Styrktarfélags
vangefinna
Frá október 2004 til september 2005
Styrktarfélag vangefinna starfar
fyrst og fremst meðal þroska-
hamlaðs fólks á öllum aldri. Fé-
lagið er handhafi þjónustusamn-
ings við ríkið og sér um þjónustu
í Reykjavík í formi búsetu, dag-
þjónustu, verndaðrar vinnu og
frekari liðveislu, auk ráðgjafar við
fatlaða og/eða aðstandendur
þeirra, á einn eða annan hátt.
Ráðstefna um öldrunarþjón-
ustu
Ráðstefna, sem bar heitið Átaks
erþörf- framtíðarsýn í öldrunarþjón-
ustu við fólk með þroskahömlun, var
haldin þann 11. nóvember 2004 á
Grand Hóteli Reykjavík. Rúmlega
140 manns komu á ráðstefnuna
sem tókst í alla staði vel. Tveir er-
lendir fyrirlesarar voru fengnir til
landsins, annar frá Noregi og hinn
frá Finnlandi. Efni ráðstefnunnar má
finna á heimasíðu félagsins:
www.styrktarfelag.is
Markmiðið með ráðstefnu sem
þessari er að skapa umræðu í sam-
félaginu um öldrunarmál fólks með
þroskahömlun, sem gæti haft í för
með sér breytingar til batnaðar.
Þessi hópur er nýr í samfélaginu
vegna hækkandi meðalaldurs, en
þörfum hópsins hefur ekki verið
sinnt sem skyldi. í kjölfar ráðstefn-
unnar var haldinn morgunverðar-
fundur 19. nóvember, þar sem ráð-
stefnugestum var boðið að koma og
tjá sig um efni hennar. Fjölmennt
var í morgunverðinn og sköpuðust
góðar umræður. Tveir starfshópar
um öldrunarmál hafa verið settir á
fót innan Styrktarfélags vangefinna
til að halda starfinu áfram. í hvorum
hópi eru þrír aðilar og munu hóparn-
ir skila af sér á vormánuðum 2006.
Innlent og erlent samstarf
Félagið er í samstarfi við ýmsa
aðila og er þar helst til að nefna:
• Þátttaka í norrænu samstarfi inn-
an Nordisk nettverk forum, NNF.
• Lögð er áhersla á fræðslu til fatl-
aðra og aðstandenda þeirra, meðal
annars með samstarfi í Fræðslu fyr-
ir fatlaða og aðstandendur, FFA.
• RVVF er samstarfshópur Svæð-
isskrifstofa málefna fatlaðra í
Reykjavík og á Reykjanesi, Fjöl-
menntar og Styrktarfélags vangef-
inna um viðhorfskönnun meðal fatl-
aðra framhaldsskólanema um við-
horf og væntingar til framtíðar. Verk-
efnið var unnið af Parx og var kynnt
á fundi 7. nóvember síðastliðinn.
Sókratesverkefni: Ég ertil, þess
vegna elska ég
Styrktarfélag vangefinna hefur
verið þátttakandi í samstarfsverkefni
ásamt fulltrúum frá fimm öðrum Evr-
ópuþjóðum; Bretlandi, Frakklandi,
Ítalíu, Spáni og Rúmeníu. Verkefnið
er styrkt af Evrópusambandinu.
Markmið verkefnisins er að útbúa
fræðsluefni fyrir fólk með þroska-
hömlun, aðstandendur og starfsfólk
um samskipti kynjanna, ástir og
kynlíf. Verkefnið hófst í september
2003 og því lýkur í október 2005.
Samstarfsverkefni með ítölum:
Ungmenni í Evrópu
Verkefnin eru tvö. Annað fólst í að
taka á móti fjórtán ítölum, þar af tíu
með Downs heilkenni, í júlí síðast-
liðnum. Hitt var ferð átta íslenskra,
fatlaðra einstaklinga og fjögurra far-
arstjóra til Písa á Ítalíu í lok sept-
ember. Markmið verkefnanna er að
gefa fötluðu fólki kost á að kynnast
öðrum í líkri aðstöðu í framandi
landi og miðla þeim af menningu og
lifnaðarháttum annarra þjóða. Bæði
verkefnin tókust í alla staði vel.
Tæknileg hjálpartæki
Hjálpartækjamiðstöð TR, Lands-
samtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag
vangefinna og Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra hafa efnt til sam-
vinnuverkefnis um notkun tækni-
legra hjálpartækja. Verkefninu er
ætlað að kanna möguleika og notk-
un tæknilegra tækja sem styðja við
vitræna framkvæmd eða snúa að
öryggi þátttakenda í eigin búsetu.
Markmiðið með verkefninu er að fá
ákveðinn hóp til að prófa hjálpartæki
og meta í framhaldi gagnsemi
þeirra.
Stjórn og framkvæmdaráð
Stjórn félagsins síðasta starfsár
var þannig skipuð: Formaður Friðrik
Alexandersson, varaformaður Jón
Torfi Jónasson, gjaldkeri Helga
Steinunn Hauksdóttir og ritari Sig-
ríður Einarsdóttir. Meðstjórnendur
voru Sigurður Þór Sigurðsson, Bára
16
www.obi.is