Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Page 22
Endurhæfing vei
mannréttindum,
Rætt við Guðbjörgu Sveinsdóttur geðt
Guðbjörg Sveinsdóttir, geð-
hjúkrunarfræðingur, er forstöðu-
maður Vinjar. Hún hefur tekið þátt
í hjálparstarfi á vegum Alþjóða-
sambands Rauða krossins og
Rauða hálfmánans og sinnt
áfallahjálp víða um heim auk
starfans hjá Vin. Áfallahjálpin hef-
ur leitt Guðbjörgu til svæða þar
sem fólk líður þjáningar vegna
stríðsátaka eða náttúruhamfara.
Nefna má Balkanskaga, írak, Pal-
estínu, íran og Indónesíu.
Ég hitti Guðbjörgu í heimilislegu
umhverfi Vinjar á Hverfisgötunni í
Reykjavík. Vinnudegi var lokið, ró
yfir öllu og gestir gengnir brott.
Fyrsta spurningin snýr einfaldlega
að Vin og þjónustunni sem þar er
boðið upp á, hverjum er hún ætluð?
Vin er sett upp sem athvarf fyrir
geðfatlaða, en í raun eru þessi at-
hvörf Rauða krossins ekki skilgreind
sem félagsleg endurhæfingarúrræði
heldur sem athvörf þótt hér sé í raun
verið að vinna að félagslegri endur-
hæfingu. Enda er það svo að um-
ræða um félagslega þjónustu og fé-
lagslega endurhæfingu geðfatlaðra
hefur verið af fremur skornum
skammti til þessa.
Starfsemi Vinjar beinist að því að
hjálpa fólki áfram, hjálpa einstak-
lingum að komast upp úr ákveðnu
fari sem þeir hafa lent í. Margir hafa
hrærst lengi innan geðheilbrigðis-
kerfisins, verið á róli inn og út af
stofnunum og jafnvel búið lengi á
geðdeildum.
Sjúkrahúsumhverfi hamlar end-
urhæfingu
Að búa á geðdeildum er í raun að
eiga heima inni á Kleppi. Enn þann
dag í dag er þó nokkur hópur manna
sem býr á Kleppi. Flestir þeirra búa
nú orðið í eins manns herbergi og
geta því haft persónulega muni hjá
sér. En umhverfið er sjúkrahúsum-
hverfi þar sem sjúkrahúsreglur gilda
og starfsfólk er á vöktum. Þetta eiga
að heita endurhæfingardeildir og
markmiðið í dag er að allir útskrifist,
til dæmis inn á sambýli. Á hinn bóg-
Athvörf Rauða kross íslands fyrir geðfatlaða
Stuðningur við geðfatlaða er forgangsverkefni hjá
Rauða krossi íslands og koma samtökin að rekstri
fjögurra athvarfa fyrir geðfatlaða. Elst þeirra er Vin í
Reykjavík sem stofnuð var 1993. Næst reið Kópa-
vogsdeild Rauða krossins á vaðið í samstarfi við
Kópavogsbæ og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á
Reykjanesi með opnun Dvalar í Kópavogi, Akureyr-
ardeild Rauða krossins opnaði Laut á Akureyri í sam-
starfi við Akureyrabæ og Geðverndarfélag Akureyrar
og yngsta athvarfið er Lækur í Hafnarfirði sem Hafn-
arfjarðardeild Rauða krossins opnaði í samstarfi við
Hafnarfjarðarbæ og Svæðisskrifstofu málefna fatl-
aðra á Reykjanesi.
+
Rauði kross Islands
Markmiðið með
athvörfunum er
að rjúfa félags-
lega einangrun,
draga úr endurinnlögnum á geðdeildir, efla þekkingu
á málefnum geðfatlaðra og skapa umhverfi þar sem
gagnkvæm virðing og traust ríkir og tekið er tillit til
hvers og eins. Hluti verkefnisins er að veita geðfötl-
uðum athvarf í notalegu umhverfi, þar sem unnt er að
koma og fá til dæmis heitan mat, lesa, sinna ýmsum
tómstundastörfum, fara í gönguferðir og njóta listvið-
burða, þannig að fátt eitt sé nefnt.
www.redcross.ls
Heimasíða Rauða kross íslands þar sem meðal annars er að finna nánari upplýsingar um athvörf fyrir geðfatlaða.
22
www.obi.is