Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Side 16

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Side 16
Því að vera í hjólastól fylgir að fólk þarfnánast að læra að lifa upp á nýtt. Heimilisstörfin verða fyrirhafnarmeiri en þá skiptir líka miklu að aðstaðan heimafyrir sé þægileg. Félagsleg staða Kristínar Ingu Brynjarsdóttur gjörbreyttist þegar hún slasaðist og lenti í hjólastól. Kerfið skerðir tryggingabæturnar: Þröskuldarnir eru víða „Bíllinn þeyttist út af veginum og fór fjórar velt- ur. Þegar hann loks nam staðar skynjaði ég strax að ég væri mikið slösuð og að líf mitt væri gjörbreytt héðan í frá. Á staðnum og stundinni ákvað ég hins vegar strax að ég skyldi ekki láta þetta stöðva mig heldur berjast áfram. Ég á þrjú börn og hef því mikið að lifa fyrir,“ segir Kristín Inga Brynjarsdóttir, sem lenti í alvarlegu bílslysi undir Hafnarfjaili, skammt frá Borg- amesi í ágúst 2002. Börnin hennar, sem voru með í bílnum, sluppu ómeidd. Sjálf er Kristín fötluð fyrir neðan brjóst og er í hjólastól en hef- ur mátt í höndum. Annað veifið birtast okkur í flölmiðlum frásagnir af hvunndagshetjunum sem svo eru nefndar, fólki sem hefur slasast eða lent í einhverskonar mann- raunum. Frásagnir þessar snerta okkur flest og í kjölfarið er stundum efnt til fjársafnana viðkomandi til stuðnings. En fljótt fennir í sporin og fyrr en var- ir beinist athygli alþjóðar að öðrum málum og þá bíður þess, sem eftirtektar og velvildar naut, um stundarsakir brekkan háa, það að læra að takast á við lífið á algjörlega nýjum forsendum og stundum í félagslegri einangrun. Auka mátt í höndum „Mér finnst ótrúlega skammt síðan þetta gerð- ist. En árin eru víst orðin fimm, þetta er svipað og maður skynjar sjaldnast á eigin skinni að maður er að eldast," segir Kristín Inga sem fyrstu dagana eftir bílslysið dvaldist á Borgarspítalanum í Foss- vogi þar sem hún gekkst undir aðkallandi aðgerð- ir en hún fór úr hálslið og herðablað brotnaði sem aftur veldur lömun hennar. Síðan tók við tíu mán- aða endurhæfing á Grensásdeild undir handleiðslu sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og annars fagfólks, sem hafði það markmið að Kristín fengi mátt í hendur eins og náðist í fyllingu tímans. „Að frumkvæði læknisins míns, Páls Ingv- arssonar, fór ég snemma á þessu ári í aðgerð á ( ( \ Virðing Réttlæti VR i vactavis hagur í heilsu i J sjúkrahúsi í Gautaborg í Svíþjóð þar sem sinar í vinstri hendi voru færðar svo auka mætti mátt hennar. Síðari hlutann nú í október fer ég svo í sambærilega aðgerð ytra á hægri hendi, sem mið- ar að hinu sama,“ segir Kristín sem sækir í þjálfun á Grensásdeild tvisvar í viku hverri. Söfnun og Sellófón Eins og margra rekur sjálfsagt minni til var efnt til söfnunar í kjölfar þess að Kristín slasaðist, en þeir fjármunir sem söfnuðust voru notaðir til íbúða- kaupa. Margir lögðu sitt af mörkum í söfnunina. Leikkonan Björk Jakobsdóttir hélt meðal annars sérstaka sýningu á verkinu Sellófón en öll inntekt af þeirri sýningu rann beint til Kristínar. Fyrir slysið bjó Kristín með börnunum sínum þremur í Hafn- arfirði, í íbúð sem hentaði manneskju í hjólastól engan veginn. Leitað var lengi að hentugri íbúð í Firðinum sem aldrei fannst og lendingin varð sú að fyrir söfnunarféð var keypt íbúð í fjölbýlishúsi í Lindahverfi í Kópavogi. „Þegar ég fékk íbúðina var hún nánast fokeld og ófrágengin að verulegu leyti, sem kom sér vel því það þurfti að gera hér talsverðar breytingar mín vegna. Breikka hurðir, hafa eldhúsinnréttingu í hent- ugri hæð og hafa borð þannig að ég gæti kom- ist að þeim í hjólastólnum. Ótalmargt fleira mætti nefna. Já, það fer virkilega vel um okkur hérna

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.