Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Side 17
ÖBÍ áfram I 17
nema hvað íbúðin er orðin helst til stór fyrir okkur
mæðgurnar. Nú, þegar eldri dóttir mín er flutt að
heiman og sonurinn, sem er fimmtán ára, býr orðið
að minnsta kosti tímabundið hjá pabba sínum."
Bakreikningurfrá kerfinu
Þremur dögum fyrir slysið örlagaríka lauk Kristín
Inga förðunarnámskeiði frá snyrtiskóla No Name.
Hún hafði gert væntingar um að geta starfað við
förðun en þær fyrirætlanir urðu að engu.
„Ég eignaðist börnin mín ung og hafði lítið verið
úti á vinnumarkaðnum þegar ég slasaðist," segir
Kristín Inga. „Nýt því mjög takmarkaðra og raunar
engra réttinda frá lífeyrissjóði. Hef því aðeins trygg-
ingabæturnar til að lifa af, en þær eru um 150 þús-
und kr. á mánuði. Meira mætti það vera. Seint á
síðasta ári fann Tryggingastofnun síðan út að mér
hefðu verið ofgreiddar tryggingabætur upp á eina
milljón króna og var krafist endurgreiðslu. Það var
talsvert áfall að fá slíkan bakreikning svona rétt fyrir
jólin og í kjölfarið fór ég talsvert langt niður. í fram-
haldinu var svo samið um að ég greiddi til baka 15
þúsund krónur á mánuði, sem auðvitað er slæm
skerðing þegar ég hef ekki meiri tekjur en þetta. Ég
gæti svo sem farið út á vinnumarkaðinn og unn-
ið létt skrifstofustörf, eins og til dæmis símsvörun.
Það kæmi alveg til greina. Hins vegar reiknast mér
svo til að slíkt myndi skerða bæturnar meira en ég
aflaði og því borgar sig ekki að vinna. Því miður.
Þröskuldarnir eru víða, ekki bara hinir eiginlegu
heldur líka í opinbera kerfinu, félagslega og víðar.“
Kristín Inga við föndrið sem er eitt hennar helsta
áhugamál. „Það er sem margir telji að líkamleg fötlun
mín sé líka andleg, “ segir hún í viðtalinu.
Að finna taktinn
Félagslega staða Kristínar Ingu gjörbreyttist við
slysið. „Það er sem margir telji að líkamleg fötl-
un mín sé líka andleg,“ segir Kristín Inga. „Ég þoli
illa þegar fólk kemur til mín til dæmis á skemmti-
stöðum, klappar mér og segist óendanlega stolt
af mér. Talar við mig eins og lítið barn. Með tím-
anum hef ég hins vegar lært að hlæja að þessu.
Mér þótti líka sárt hve margir vina minna hreinlega
hurfu þegar ég slasaðist, margir þeirra vissu ekki
hvernig þeir ættu að umgangast mig sem fatlaða
manneskju. Ein vinkona mín, Svala Möller Jóns-
dóttir, sem býr á Selfossi heldur samt mikilli tryggð
við mig. Við hringjum oft hvor í aðra eða sendum
tölvupóst. Að eiga trausta vini er ómetanlegt, rétt
eins og að stuðningur fjölskyldunnar skiptir miklu.
Börnin mín, foreldrar og systkinin eru mér traust-
ir bakhjarlar," segir Kristín Inga, sem fær reglulega
liðveislu frá félagsþjónustu Kópavogsbæjar. Með
stuðningsaðila sínum fer hún gjarnan í bíó, á kaffi-
hús og fleira slíkt skemmtilegt enda er tilbreyting
öllum mikilvæg.
„Við Kristín Unnur dóttir mín, sem er nítján ára
og býr með mér hér heima förum líka stundum
saman niður í bæ. Tökum þá bíl frá Ferðaþjón-
ustu fatlaðra kannski niður á Hlemm og förum nið-
ur Laugaveginn og í Kolaportið. Það eru virkilega
skemmtilegir dagar. Þá förum við vinkona mín
stöku sinnum saman á böll á Players eða Café
Victor. Dyraverðirnir eru svo elskulegir að bera mig
upp stigana svo ég kemst út á dansgólfið. Mér
þótti alltaf gaman að dansa og geri það raunar
enn: hreyfi mig til í hjólastólnum. Með því finn ég
taktinn og þá er talsvert fengið."
Viltu þægindi?
|sfe.'ast,
saa..
«3- '
tapbi s,,
Frí lyfjaskömmtun og heimsending
Ef þú tekur mörg lyf þá er lyfjaskömmtun okkar
eitthvað fyrir þig! Þú þarft aðeins að hafa samband
og skrá þig í lyfjaskömmtun og þú færð lyfin
reglulega send heim að dyrum.
Endilega hringdu til okkar í síma 553 8331
og fáðu kynningu á lyfjaskömmtun hjá okkur.
jSK’ít- 2Uw KSU í Isasu. SSU- SSUm : 1 Sfes. 1
J jj
Laugarnesapótek
1 - siálfstætt aoótek
Kirkuteigi 21 - Sími 553 8331 - Netfang: laugarn@apotek.is