Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Qupperneq 18

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Qupperneq 18
18 I ÖBÍáfram Hvatti til háskólanáms fyrir fólk með fötlun. Er nú á leið í KHÍ Möguleiki til samfélagsþátttöku Ungur Garðbæingur, Skúli Steinar Pétursson, skrifaði athyglisverða grein í Morgunblaðið fyrr á þessu ári sem bar yfirskriftina „Háskólanám fyrir alla - líka fólk með fötlun.“ Þar hvatti hann til þess að fólki með fötlun yrðu búnir mögu- leikar til náms og menntunar við hæfi, það er í háskólanum. „Ég var í rauninni ekki velkominn í háskólanám," sagði Skúli Steinar í grein sinni. En nú hefur ræst úr málum. í haust verður í fyrsta sinn boðið upp á starfstengt diplómunám fyrir fólk með þroskahömlun á þroskaþjálfa- og tómstundabraut við Kennaraháskóla íslands. Kynningarfundur um námið var vel sóttur og hefst kennsla á næstunni og þar er Skúli Steinar með- al nemenda. Hann er einnig í ökunámi um þessar mundir. Undirbúningur fyrir störf „Námið miðar að því að veita fólki með þroska- hömlun möguleika til fullgildrar samfélagsþátt- töku með því að gefa hópnum tækifæri til náms að loknu námi í framhaldsskóla. Um er að ræða nýjung í samræmi við yfirlýsta alþjóðlega stefnu hagsmunasamtaka fólks með þroskahömlun, mannréttindasáttmála sem og stefnu Kennarahá- skóla íslands," segir á vefsetri skólans. Þar kemur einnig fram að markmið námsins er að undirbúa nemendur til afmarkaðra starfa á starfsvettvangi þroskaþjálfa og tómstunda- og félagsmálafræð- inga. Um er að ræða fjölbreytileg störf, s.s. í skól- um, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum og á þeim vettvangi sem fólk með þroskahömlun sækir þjónustu. Staðið sig afskaplega vel Skúli Steinar er í góðum málum eins og sagt er. Albúinn í eldhúsinu. Skúli Steinar með sósuþeyt- arann á lofti, tilbúinn í verkefni dagsins. Hann starfar í Holtsbúð, dvalarheimili aldraðra í Garðabæ og sinnir þar ýmsum eldhússtörfum og raunar mörgu öðru því sem til fellur. „Skúli Steinar kom hér til starfa fyrir einu ári og hefur staðið sig afskaplega vel. Hafði áður starfað með fötluðum og það er reynsla sem nýtist hon- um vel hér í þjónustu við gamla fólkið. Hann kom hér á sínum tíma í starfskynningu með kennara sínum og var áhugasamur. í umsögn sagði ég að Skúli Steinar gæti verið góður starfskraftur sem aftur leiddi til þess að hann sendi hér inn umsókn og var ráðinn. Hann hefur staðið sína plikt með prýði," segir Einar Sigurjónsson, matreiðslumeistari í Holtsbúð. Háskólanám fyrir alla - líka fólk með fötlun Ég vil skapa fólki með fötlun möguleika til aukinnar þátttöku til náms. Fatlað fólk á að eiga möguleika á námi og menntun við hæfi. Þegar ég útskrifaðist úr framhaldsskóla þá vildi ég gjarnan hafa átt kost á að sækja um í háskóla eins og allir aðrir nemendur. Þarna stóð ég með fullar hendur af bæklingum og umsóknum, t.d. frá Háskóla (slands, Háskól- anum á Akureyri, Háskólanum i Reykjavík og Kennaraháskóla íslands sem mér höfðu verið sendar. Hvað átti ég að gera við alla þessa bæklinga þar sem ég var boðinn velkominn í háskólana? Ég var í rauninni ekki velkom- inn í háskólanám. Það var ekki gert ráð fyrir mér af því að ég er með fötlun. Ég vil geta fyllt út umsókn í háskóla. Ég vil líka fá að velja námsbrautir og námsgreinar eftir áhugasviði mínu. Ég get nefnt matvælabraut, tónlist, leiklist, íþróttabraut og margt fleira. Þetta er mjög mikið mál fyrir mig. Ég vil fá að vera í háskóla eins og vinir mínir sem eru ófatlaðir. Þeir eru bara eins og ég. Ég er ekki öðruvísi. Ég hef sömu þarfir og aðrir jafnaldrar mínir. Skúli Steinar Pétursson (Morgunblaðsgrein 18. apríl 2007) Tourettesamtökin: Námskeið fyrirhugað 6. október Fyrirhugað er að halda námskeið um Tou- rette heilkenni og slaka hegðunarstjómun fyrir foreldra, kennara og annað áhugasamt fagfólk laugardaginn 6. október nk. ef þátt- taka verður næg. Námskeiðið verður þá haldið frá kl. 10:00-16:00 í sal Sjónarhóls á 3. hæð að Háaleitisbraut 11-13. Fyrirlesarar verða þær Málfríður Lorange taugasálfræð- ingur og Kristín Kristmundsdóttir félagsráð- gjafi. Dagskrá: • Yfirlit um Tourette heilkenni, lýsing á einkenn- um, orsakir, tíðni horfur og framvinda. Fylgi- raskanir. • Árátta og þráhyggjuhegðun hjá börnum og unglingum með Tourette. • Reiði og reiðistjórnun. • Jákvæðar hegðunarmótandi aðferðir, kennsla í notkun einfalds umbunarkerfis. • Tourette og skólinn. Haldin verða stutt fræðsluinnlegg og lögð áhersla á virkar umræður. Unnið verður í fá- mennum hópum. Námskeiðið verður, eins og áður sagði, hald- ið ef þátttaka verður næg og ráðstefnugjald er 18.000 kr. Fólk á vinnumarkaði getur sótt um styrk úr starfsmenntasjóði. í lok námskeiðsins verður í þoði samtakanna kynning um Tourette, sem íris Árnadóttir hefur haldið á vegum Tourettesamtakanna í skólum og víðar. Sú kynning stendur í 1 til 2 klst. og að lokum gætu þeir sem vilja rabbað saman um Tourette málefni. Biðjum við þá aðila sem hug hafa á þessu námskeiði að hafa samband og senda tölvupóst á tourette@tourette.is eða hringjaí 840 2210.

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.