Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Side 19

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Side 19
ÖBÍáfram I 19 Flutti fyrirlestur um reynslu Skota af atvinnu með stuðningi: Vinnumarkaðurinn opnari nú en áður Áhugaverðar hugmyndir! Skotinn Michael Evans, til vinstri, og Árni Már Björnsson hjá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík. Skotinn Michael Evans, forseti Evrópusam- takanna um atvinnu með stuðningi (EUSE), hélt fyrirlestur hér á landi sl. vor. Evans var formaður skosku landssamtakanna sem vinna að framgangi atvinnu með stuðningi á árunum 1997 til 2003, en starfar nú sem framkvæmda- stjóri vinnumiðlunar fyrir fatlaða í Dundee. Fyrir- tækið hefur aðstoðað yfir 600 manns til vinnu á síðustu sex árum og hefur vinnumiðlun þessi hlotið fjölda viðurkenninga fyrir góðan árang- ur. Michael Evans skrifaði bókina Employing People with Disabilities - Að ráða fólk með fatl- anir - auk þess sem hann hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra um atvinnu með stuðn- ingi, víða í Evrópu. „Fólki hér á landi, sem er með minni vinnufærni en fjöldinn, er vinnumarkaðurinn miklu opnari nú en var fyrir fáum misserum. Bæði kemur þar til gott ástand á vinnumarkaði og sömuleiðis eru atvinnu- rekendur miklu jákvæðari nú en áður að gefa fólki með sérþarfir tækifæri. Það er mjög ánægjulegt," segir Árni Már Björnsson hjá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík. Þar á bæ sinnir hann atvinnumálum, meðal annars þeirra sem þurfa stuðning. Á þeim vettvangi eru hugmyndir Evans gjarnan hafðar að leiðarljósi. Áhersla á undirbúning Michael Evans kom hingað á vegum Félags atvinnu með stuðningi á íslandi, en margir úr hópi fagfólks, sem sinna þjónustu við fatlaða, eiga aðild að því. „Það var mjög áhugavert að heyra hugmynd- ir og nálgun Evans, til dæmis um atvinnuþátttöku geðfatlaðra þar sem hann leggur mikla áherslu á góðan undirbúning og aðlögun að atvinnuþáttu viðkomandi, til dæmis í gegnum hæfingarstöðv- ar, dagþjónustu, verndaða vinnustaði, atvinnuleit- arstöðvar og fleiri slíkar stofnanir," segir Árni Már Björnsson og bætir við að staða atvinnumála fatl- aðra einstaklinga sem þurfi stuðning sé um margt betri hér en í nágrannalöndunum þegar kemur að jöfnum launum á vinnumarkaðnum og stuðningi. Hér á landi hafi menn meðal annars horft til reynslu Skotanna, þar sem Evans hefur verið brautryðjandi og merkisberi. Tækifærin fleiri „Það hefur verið mjög áhugavert að kynnast hug- myndum hans, því hann sér bæði vankanta á mál- um en líka tækifærin og möguleikana í stöðunni sem eru auðvitað margfalt fleiri,“ segir Árni Már.

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.