Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Side 23
ÖBÍ áfram I 23
Geðheilsa í breyttum heimi: Áhrif menningar og margbreytileika
Vigdfs Finnbogadóttir er verndari Alþjóða geðheilbrigðisdagsins 2007
Sunnudagurinn 7. október
Kl. 11:00 Geðhlaup í Nauthólsvík: Mæting 10:30
10 km tímataka og 2 km skemmtiskokk. Skráning fer fram á
staðnum eða fsfma 570 1700
Kl. 12:00 Geðsjósund: Hugrakkir kasta af sér spjörunum
(þó ekki alveg öllum) og stinga sér til sunds undir handleiðslu
Sjósundfélags Islands.
Kl. 14:00 Opnun myndlistasýningar og kynningar á
úrræðum í Perlunni.
Kl. 14:30 Skemmtun f Perlunni: Kynnir Valgeir Guðjónsson.
Fram koma: Vigdís Finnbogadóttir, Regnbogakórinn,
tælenskur danshópur, Tríótó, Ljóðamaðurinn Hörður
og Magadanshópur.
Frummælandi verður Þráinn Bertelsson.
Kl. 20:30 Við Perluna: Flugeldasýning: Fordómunum skotið upp.
Miðvikudagurinn 10. október
Kl. 14-18 Þverfagleg ráðstefna „Innflytjendur og geðheilbrigði"
Þjóðir sem hafa verið mjög einsleitar eru að vakna upp við það að
svo er ekki lengur. Fólkið sem kemur annar staðar frá, okkar nýju
nágrannar hafa framandi menningarleg viðmið, tungumál og trúar-
brögð. Áhrif þessara breytinga eru mikil, bæði fyrir þá sem fyrir eru
en ekki síður fyrir þá sem taka sig upp og flytja í nýtt land og afkom-
endur þeirra. Útlendingar búsettir á Islandi eru nú 6% þjóðarinnar
en voru 2.1% fyrir 10 árum. Það er vel þekkt alls staðar þar sem það
hefur verið kannað að tíðni geðsjúkdóma er miklu hærri á meðal
innflytjenda og barna þeirra en annarra. Tímabært er að opna þessa
umræðu og leiða fram gagnstæð sjónarmið, vega þau og meta.
Opnun ráðstefnu: Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.
Fyrirlesarar: Diana Bass, Tosiki Toma, Sabine Leskopf, Bergþór Grétar
Böðvarsson, fulltrúi notenda, Gunnar Hersveinn.
Fundarstjóri: Páll Matthíasson
Kl. 20:00 Minningarguðsþjónusta í Hallgrfmskirkju og
geðganga niður að tjörn
Fjölmennum f Hallgrfmskirkju og hlýðum á hugleiðingu séra Birgis
Ásgeirssonar. Sigrún Hjálmtýsdóttir og kammerkór Hallgrímskirkju
Scola Cantorum munu syngja við athöfnina undir stjórn Harðar
Áskelssonar. Þvf næst göngum við saman niður á Tjörn og fleytum
kertum til minningar um þá sem við höfum misst vegna sjálfsvíga og
til minningar um þá sem eiga um sárt að binda vegna geðsjúkdóma.