Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Blaðsíða 23

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Blaðsíða 23
ÖBÍ áfram I 23 Geðheilsa í breyttum heimi: Áhrif menningar og margbreytileika Vigdfs Finnbogadóttir er verndari Alþjóða geðheilbrigðisdagsins 2007 Sunnudagurinn 7. október Kl. 11:00 Geðhlaup í Nauthólsvík: Mæting 10:30 10 km tímataka og 2 km skemmtiskokk. Skráning fer fram á staðnum eða fsfma 570 1700 Kl. 12:00 Geðsjósund: Hugrakkir kasta af sér spjörunum (þó ekki alveg öllum) og stinga sér til sunds undir handleiðslu Sjósundfélags Islands. Kl. 14:00 Opnun myndlistasýningar og kynningar á úrræðum í Perlunni. Kl. 14:30 Skemmtun f Perlunni: Kynnir Valgeir Guðjónsson. Fram koma: Vigdís Finnbogadóttir, Regnbogakórinn, tælenskur danshópur, Tríótó, Ljóðamaðurinn Hörður og Magadanshópur. Frummælandi verður Þráinn Bertelsson. Kl. 20:30 Við Perluna: Flugeldasýning: Fordómunum skotið upp. Miðvikudagurinn 10. október Kl. 14-18 Þverfagleg ráðstefna „Innflytjendur og geðheilbrigði" Þjóðir sem hafa verið mjög einsleitar eru að vakna upp við það að svo er ekki lengur. Fólkið sem kemur annar staðar frá, okkar nýju nágrannar hafa framandi menningarleg viðmið, tungumál og trúar- brögð. Áhrif þessara breytinga eru mikil, bæði fyrir þá sem fyrir eru en ekki síður fyrir þá sem taka sig upp og flytja í nýtt land og afkom- endur þeirra. Útlendingar búsettir á Islandi eru nú 6% þjóðarinnar en voru 2.1% fyrir 10 árum. Það er vel þekkt alls staðar þar sem það hefur verið kannað að tíðni geðsjúkdóma er miklu hærri á meðal innflytjenda og barna þeirra en annarra. Tímabært er að opna þessa umræðu og leiða fram gagnstæð sjónarmið, vega þau og meta. Opnun ráðstefnu: Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Fyrirlesarar: Diana Bass, Tosiki Toma, Sabine Leskopf, Bergþór Grétar Böðvarsson, fulltrúi notenda, Gunnar Hersveinn. Fundarstjóri: Páll Matthíasson Kl. 20:00 Minningarguðsþjónusta í Hallgrfmskirkju og geðganga niður að tjörn Fjölmennum f Hallgrfmskirkju og hlýðum á hugleiðingu séra Birgis Ásgeirssonar. Sigrún Hjálmtýsdóttir og kammerkór Hallgrímskirkju Scola Cantorum munu syngja við athöfnina undir stjórn Harðar Áskelssonar. Þvf næst göngum við saman niður á Tjörn og fleytum kertum til minningar um þá sem við höfum misst vegna sjálfsvíga og til minningar um þá sem eiga um sárt að binda vegna geðsjúkdóma.

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.